Ein og hálf milljón í sekt vegna villandi auglýsinga Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 26. febrúar 2026 14:12 Norðursiglingar bjóða upp á hvalaskoðun. Vísir/Vilhelm Neytendastofa hefur sektað Norðursiglingu ehf. um eina og hálfa milljón króna fyrir að auglýsa umhverfisvænar hvalaskoðanir með óskýrum hætti. Fullyrðingar um umhverfisáhrif fyrirtækisins þyrftu að vera sannreynanlegar. Norðursiglingum hefur verið bannað að nota fullyrðingar um umhverfisvænar, hljóðlausar og kolefnislausar hvalaskoðunarferðir.
Málið hófst er annað hvalaskoðunarfyrirtæki á Húsavík, Gentle Giants-Hvalaferðir ehf., sendi Neytendastofu kvörtun vegna auglýsinga Norðursiglingar. Sett var út á notkun fyrirtækisins á hugtökum á við carbon neutral (kolefnishlutlaust), eco-friendly (umhverfisvænt) og silent whale watching (hljóðlát hvalaskoðun). Þetta er í þriðja sinn sem kvartað er yfir því að Norðursigling hafi gerst sekt um að blekkja neytendur en Neytendastofa hefur áður tekið afstöðu í máli Norðursiglingar árin 2012 og 2017. Í báðum ákvörðununum taldi Neytendastofa rétt að banna fyrirtækinu að nota fullyrðingar í markaðsefni sínu. „Sýni þetta hinn skýra brotavilja fyrirtækisins í að blekkja neytendur og að hafa ákvarðanir Neytendastofu að litlu sem engu,“ segir í ákvörðun Neytendastofu. Ósætti milli fyrirtækjanna tveggja Í kvörtun Gentle Giants segja þau auglýsingarnar og annað markaðsefni vera rangar, ófullnægjandi og villandi. Þær hafi áhrif á eftirspurn eftir þjónustu Norðursiglingar, á þeirra kostnað. Flestir bátar fyrirtækisins gangi fyrir olíu og gefi því frá sér hljóð líkt og aðrir bátar. Rafmagnsbátur í eigu Norðursiglingar sé þá sjaldan notaður. Öllum ásökununum er neitað í svari Norðursiglingar og segjast þau leggja mikið upp úr því að bjóða eins umhverfisvænar ferðir og unnt sé. Þau hafi hlotið vottanir vegna umhverfisstefnu og hljóti félaginu að vera heimilt að auglýsa það sem það standi fyrir. Lýsingarnar á starfsemi Norðursiglingar í kærunni séu fráleitar og auglýsingarnar teknar úr samhengi. Villandi markaðssetning Neytendastofa mat markaðsefni Norðursiglingar og taldi fullyrðingarnar vera villandi fyrir neytendur. Því er Norðursiglingum gert skylt að greiða stjórnvaldssekt upp á eina og hálfa milljón króna vegna brotsins. Fyrirtækinu er einnig bannað að nota áðurnefndar fullyrðingar í markaðs- og kynningarefni þar sem það sé villandi fyrir neytendur. Markaðsefnið gefi með villandi hætti til kynna að þjónusta fyrirtækisins hafi minni skaðleg áhrif á umhverfið en vara eða þjónusta keppinauta.
Neytendur Ferðaþjónusta Auglýsinga- og markaðsmál Norðurþing Umhverfismál Hvalir Mest lesið Feðgin í Firðinum: „Pabbi er besti vinur minn“ Atvinnulíf Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Viðskipti innlent Flugmenn og Icelandair funda á morgun Viðskipti innlent Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Icelandair hefur flug til Qaqortoq Viðskipti innlent Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Viðskipti innlent Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur Atvinnulíf Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Viðskipti erlent Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Fleiri fréttir Ölgerðin hækkar verðin Segir sjaldan hafa verið auðveldara að vera fyrsti kaupandi Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Innkalla pipar vegna eiturs Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Súperdósin snýr aftur Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Sjá meira