Viðskipti innlent

Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verð­bólga eykst ekki

Árni Sæberg skrifar
Daði Már Kristófersson er fjármála- og efnahagsráðherra.
Daði Már Kristófersson er fjármála- og efnahagsráðherra. Vísir/Ívar Fannar

Fjármála- og efnahagsráðherra segir mjög ánægjulegt að sjá verðbólgu standa í stað og að hún sé helst drifin áfram af utanaðkomandi þáttum. Íslands sé nú eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga fari ekki vaxandi.

Hagstofa Íslands birti í morgun niðurstöður verðlagsmælingar októbermánaðar. Verðbólga mælist nú 5,9 prósent og er óbreytt frá því í september. Vísitala neysluverðs hækkar um 0,44 prósent á milli mánaða.

Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, fagnar því að Ísland sé nú eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga er ekki á uppleið. Þó má nefna að verðbólga er enn talsvert meiri hér en í samanburðarlöndum.

„Það er auðvitað mjög ánægjulegt að sjá að verðbólga er ekki vaxandi og við sjáum að það sem drífur hana áfram eru þessir ytri þættir sem eru að drífa áfram verðbólgu alls staðar í kringum okkur. En það verður ekki til þess að hún hækkar og við teljum að þetta sé svona jákvæð vísbending um það hver verðbólguþróun verði næstu mánuðina.“

Engir undirliggjandi þættir ættu að þrýsta verðbólgunni upp eftir ábyrga framlengingu kjarasamninga og aðgerðir sem ríki og sveitarfélög hafa gripið til og því ætti verðbólguþróun að verða jákvæð út árið og fram á næsta. Spár Seðlabankans geri til að mynda ráð fyrir því að verðbólga fari undir fimm prósent í upphafi næsta árs.

„Fyrst og fremst er ánægjulegt að sjá að þetta eru einungis innfluttu þættirnir sem eru að drífa hana áfram. Það er til dæmis núna í fyrsta skipti í mjög langan tíma sem enginn munur er á verðbólgunni með og án húsnæðis þannig að húsnæðisliðurinn er hættur að drífa áfram verðbólgu, það er auðvitað mjög jákvætt. Þannig að ég held að við höfum í þessum samningum sem náðust núna í haust náð mjög góðri viðspyrnu.“


Tengdar fréttir

Verðbólgan verði þrálát út árið

Greining Íslandsbanka spáir því að vísitala neysluverðs muni hækka um 0,45 prósent í október frá fyrri mánuði og að ársverðbólga muni þannig haldast óbreytt í 5,9 prósentum. Spáð er að verðbólga verði áfram þrálát út árið og skapi þróun olíuverðs nokkra óvissu um skammtímahorfurnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×