Viðskipti innlent

Aukinn vaxta­munur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða

Eiður Þór Árnason skrifar
Jón Guðni Ómarsson er bankastjóri Íslandsbanka.
Jón Guðni Ómarsson er bankastjóri Íslandsbanka. Vísir/Anton Brink

Hagnaður af rekstri Íslandsbanka nam 7,3 milljörðum króna á þriðja ársfjórðungi þessa árs. Jókst hann ár frá ári en bankinn hagnaðist um 6,9 milljarða á sama þriggja mánaða tímabili árið 2025. Alls hefur Íslandsbanki hagnast um 21,8 milljarða króna á fyrstu níu mánuðum þessa árs, samanborið við 19,3 milljarða á sama tímabili árið 2025. 

Hreinar vaxtatekjur námu 15,8 milljörðum króna á þriðja ársfjórðungi 2026 og hækkuðu um 2,6 milljarða samanborið við tímabilið í fyrra. Þetta kemur fram í tilkynningu Íslandsbanka til Kauphallar.

Vaxtamunur, það er mismunurinn milli þeirra vaxta sem bankinn rukkar vegna útlána og þeirra sem hann greiðir út vegna innlána, jókst milli ára og fór úr 3,1 prósenti á þriðja ársfjórðungi 2025 í 3,5 prósent á nýliðnum ársfjórðungi.

Hreinar þóknanatekjur, sem ná yfir ýmis gjöld sem rukkuð eru fyrir þjónustu bankans, voru 3,3 milljarðar króna á ársfjórðungnum samanborið við 3,2 milljarða á sama tímabili í fyrra.

Viðsnúningur í virðisrýrnun og hærri stjórnunarkostnaður

Hrein fjármagnsgjöld lækkuðu og fóru úr 353 milljónum króna á þriðja ársfjórðungi síðasta árs í 223 á nýliðnum ársfjórðungi. Stjórnunarkostnaður hækkaði og fór úr 6,5 milljörðum króna í 7,3 milljarða króna. Íslandsbanki keypti eigin bréf fyrir um 3,7 milljarða króna á þriðja ársfjórðungi 2026.

Eigið fé nam 215,4 milljörðum króna í lok þriðja ársfjórðungs og minnkar lítillega en það var 225,4 milljarðar í lok árs 2025. Arðsemi eigin fjár á þriðja ársfjórðungi var 13,6 prósent á ársgrundvelli samanborið við 12,2 prósent á þriðja ársfjórðungi 2025. Eiginfjárhlutfall var 21,8 prósent í lok þriðja ársfjórðungs, að meðtöldum hagnaði, samanborið við 24,0 prósent í lok árs 2025.

Virðisrýrnun fjáreigna nam um 1.021 milljón króna á þriðja ársfjórðungi samanborið við jákvæða virðisbreytingu að fjárhæð 7 milljónir króna á sama tímabili 2025. Áhættukostnaður útlána var 29 punktar á ársgrundvelli á þriðja ársfjórðungi samanborið við 0 punkta á sama tímabili í fyrra. 

Reksturinn þróist vel 

Haft er eftir Jóni Guðna Ómarssyni, bankastjóra Íslandsbanka, að rekstur bankans hafi „áfram þróast vel í samræmi við stefnu hans.“ Hann gerir athugasemdir við fyrirætlanir stjórnvalda um aukna skattheimtu. 

„Í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027 er lagt til að bankaskattur hækki úr 0,145% í 0,254%, sem jafngildir um 75% hækkun. Því hefur verið haldið fram að lækkun bankaskattsins árið 2020 hafi ekki skilað sér til viðskiptavina, en gögnin benda til annars. Síðan þá hefur vaxtamunur gagnvart heimilum dregist saman þrátt fyrir mikla hækkun stýrivaxta og þjónustugjöld hafa lækkað að raunvirði. Sérstakir skattar á íslenska banka eru nú þegar meira en fimmfalt hærri en að meðaltali í Vestur-Evrópu. Það veikir samkeppnisstöðu íslenska fjármálakerfisins nú þegar og fyrirhuguð hækkun myndi draga enn frekar úr samkeppnishæfni þess,“ segir Jón í tilkynningu bankans. 

Fréttin hefur verið uppfærð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×