Hugrekkið sem felst í því að óska eftir dánaraðstoð Ingrid Kuhlman skrifar 22. febrúar 2026 08:02 Það er lífseig mýta í umræðunni um dánaraðstoð að hún sé „auðveld leið út“, merki um uppgjöf eða veikleika. Þeir sem hafa hlustað á fólk sem íhugar slíka ákvörðun vita að þessi mynd stenst ekki. Að óska eftir dánaraðstoð er sjaldnast einföld ákvörðun. Hún verður til í flóknum líkamlegum, félagslegum og tilvistarlegum aðstæðum. Hún krefst mikils hugrekkis. Dýpri ígrundun en margir gera sér grein fyrir Þeir sem óska eftir dánaraðstoð vilja yfirleitt ekki deyja í þeim skilningi að þeir hafni lífinu sjálfu. Lífsviljinn er oftar en ekki sterkur. Fólk hafnar aðstæðunum sem það upplifir sem óbærilegar: stjórnleysi, stöðugri þjáningu, missi sjálfræðis eða þeirri tilfinningu að lífið hafi misst fyrri tilgang. Óskin um að hraða dauðanum birtist sjaldnast snemma. Hún kemur eftir langa baráttu. Eftir margvíslegar meðferðir, endurhæfingu, von og vonbrigði. Eftir að hafa reynt að aðlagast nýjum veruleika. Þegar ósk um dánaraðstoð er loks orðuð er hún ekki sprottin af fljótfærni heldur djúpri ígrundun. Margir lýsa því að óskin komi og fari. Að hún sé ekki stöðug heldur innra samtal: „Get ég lifað svona?“ „Hvað ef ástandið versnar?“ „Hvað ef ég missi meira?“ Hún getur verið róleg og yfirveguð einn daginn og fjarlæg þann næsta. Þetta innra samtal er hluti af ígrunduninni. Það sýnir ekki óstöðugleika heldur að ákvörðun er tekin af ábyrgð. Hugrekkið að horfast í augu við dauðann Það að nefna dauðann upphátt krefst hugrekkis. Að segja við lækni, maka eða börn: „Ég vil fá aðstoð við að deyja“ er ekki léttvæg yfirlýsing. Hún getur kallað fram sorg, reiði og þögn. Sá sem orðar hana tekur félagslega og tilfinningalega áhættu. Þetta er ekki uppgjöf heldur ákvörðun um að standa með sjálfum sér, jafnvel þótt hún geti verið öðrum erfið. Í menningu sem dýrkar þrautseigju og baráttu er litið á það sem dyggð að halda áfram hvað sem það kostar. En þegar baráttan sjálf verður aðalorsök þjáningar getur það verið eitt erfiðasta og hugrakkasta skrefið að viðurkenna að mörkum sé náð. Goðsögnin um „auðveldu leiðina“ Ferlið í kringum dánaraðstoð, þar sem hún er leyfð, er langt frá því að vera einfalt. Það felur í sér ítarlegt mat, samtöl við fleiri en einn heilbrigðisstarfsmann, biðtíma og staðfestingu á að ákvörðunin sé sjálfviljug og vel ígrunduð. Fólk þarf að endurtaka ósk sína. Verja hana. Sýna fram á að það skilji afleiðingarnar. Þetta er ekki skyndiákvörðun heldur ferli sem krefst staðfestu. Virðing, sjálfræði og reisn Umræðan um dánaraðstoð snýst ekki um að velja dauðann fram yfir lífið. Hún snýst um mörk, sjálfræði og hvað gerir lífið bærilegt fyrir hvern og einn. Fyrir suma felst reisn í því að halda áfram til síðasta andardráttar. Fyrir aðra felst hún í því að setja mörk þegar aðstæður eru orðnar óbærilegar. Kannski er kominn tími til að hætta að gera lítið úr því hugrekki sem felst í beiðni um dánaraðstoð og spyrja þess í stað hvort við séum tilbúin að hlusta. Erum við tilbúin að viðurkenna að hugrekki getur falist í því að setja mörk, jafnvel þegar þau valda okkur sjálfum og öðrum óþægindum? Höfundur er formaður Lífsvirðingar, sem berst fyrir lögleiðingu dánaraðstoðar á Íslandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ingrid Kuhlman Mest lesið Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Aukinn stuðningur við leigjendur í Reykjavík Sanna Magdalena Mörtudóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Sjá meira