Veit „óvinur númer eitt“ að hann er númer eitt? Jón Steinar Sæmundsson skrifar 12. júní 2026 16:00 Ég átti leið um höfnina í Grindavík í gær hvar verið var að skipa upp úr flutningaskipi 1500 tonnum af salti fyrir saltfiskvinnslu Vísis hvar enga uppgjöf er að finna. Vinnslan hefur verið á fullum afköstum frá því á vordögum ársins 2024 og ekkert annað á teikniborðinu á þeim bænum en fulla ferð áfram. Það verður að teljast ansi magnað að fyrirtæki eins og Vísir megi vinna á fullum afköstum alla daga, þess vegna allan sólarhringinn ef því væri skipta án nokkurra afskipta yfirvaldsins. Þegar hinsvegar kemur að fólkinu sem mannar þessa vinnslu þá horfa hlutirnir öðruvísi við varðandi það að vera á staðnum til taks. Til útskýringar áður en lengra er haldið. Skuggafyrirtæki ríkisins Þórkatla hefur keypt um það bil 80% af 1200 íbúðareiningum í bænum sem gerir um 950 keyptar einingar. Eftir standa um 250 íbúðaeiningar sem ekki voru seldar af hinum ýmsu ástæðum. Það sem hér fer á eftir er ekki lygasaga þó hún sé lyginni líkust. Það starfsfólk sem vinnur hjá Vísi og á eða leigir einhverja af þessum 250 íbúðum sem ekki eru í eigu Þórkötlu getur verið til staðar 24 tíma sólarhringsins allt árið um kring án nokkurra vandkvæða annarra en kannski þeirra að vinna bug á valkvíða um í hvaða sokkum skuli klæðast að morgni dags. Svo komum við að því starfsfólki sem gerði Hollvinasamning með gistiákvæði við Þórkötlu. Þetta er fólk sem gekk að þessum samningum í góðri trú til að aðlaga og finna sig aftur í "sínum" eignum á ný. Þessi hópur mun ekki eftir 1. september geta verið til taks á staðnum alla daga mánaðarins. Þar komum við að lygasöguhlutanum. Það er nefnilega þannig að innan skuggafyrirtækis ríkisins fundu menn það út að það væri bara öruggt að dvelja í bænum í 12 daga í senn eftir 1. september og tilkynna ber hvaða daga fólk hyggst dvelja. Ótrúlegt en satt! Hvar er jafnræðisreglan? Þetta minnir óþægilega mikið á þegar skammtað var aðgengi að bænum á sínum tíma og fundin út einhver tala fyrir þá sem dvelja máttu í bænum hverju sinni til að sækja sitt hafurtask. Ef eitthvað hefur skvett góðri gusu af olíu á baráttubál okkar Grindvíkinga er það nákvæmlega þetta útspil ríkisins. Þetta er til umræðu um allan bæ og í öllu samfélagi okkar Grindvíkinga. Í þessari umræðu hvar sem hún fer fram, er "óvinur númer eitt" ríkisstjórnin með Forsætisráðherra Kristrúnu Frostadóttur í fararbroddi. Ég þykist nú vita án þess að þekkja Forsætisráðherra nokkuð að hún sé hin vænsta manneskja, bráðgáfuð og klár. Þess vegna velti ég því fyrir mér hvort hún viti hvernig okkur Grindvíkingum líður með svona útspil? Vill hún hafa þetta svona? Þar sem að sérfræðingar skuggafyrirtækis ríkisins eru svona afburðaklárir að finna út að öruggt sé fyrir okkur að dvelja 12 daga í mánuði í húsunum fyndist mér að í stað þess að láta okkur fáfróðan pöpulinn velja dagana, þá myndu þeir velja þá fyrir okkur þar sem við Grindvíkingar höfum enga þekkingu á þessu né berum nokkurt skynbragð á umhverfi okkar. Það gera hinsvegar þessir fjarvinnusérfræðingar okkur öllum fremur. Það hebbði ég nú haldið... Höfundur er verkstjóri og Grindvíkingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar