Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar 27. október 2026 19:59 Flest hugsum við lítið um það hversu mikilvæg þátttaka er fyrir okkur fyrr en eitthvað kemur í veg fyrir hana. Við förum á fætur, sinnum leik, námi eða starfi, innum heimilisverk af hendi, eigum samverustundir með fjölskyldu og vinum, sinnum áhugamálum og tómstundaiðju. Þetta virðast hverdagslegir hlutir en saman móta þeir daglegt líf okkar og reynslu. Að geta tekið þátt í iðju sem er okkur mikilvæg og hefur merkingu og tilgang, skiptir miklu máli fyrir heilsu, líðan, sjálfsmynd og tilfinninguna af því að tilheyra. Þátttaka snýst þannig ekki aðeins um að framkvæma verk og athafnir. Hún snýst líka um raunveruleg tækifæri til að vera með, hafa áhrif, leggja af mörkum, eiga í félagslegum tengslum og lifa lífi sem gerir okkur hamingjusöm. Kjarni iðjuþjálfunar Mörg fara á mis við þátttöku í samfélaginu sökum heilsubrests af ýmsum toga eða umhverfisþátta sem hindra viðkomandi. Afleiðingarnar eru félagsleg einangrun og einmanaleiki með tilheyrandi vanlíðan, upplifun af tilgangsleysi og að tilheyra ekki neinum hópi. Þetta á bæði við um unga sem aldna. Sýn iðjuþjálfunar, sem fag- og fræðigreinar er sú að iðja sé öllu fólki nauðsynleg og frá örófi alda hafi líf manneskjunnar einkennst af þörf til að stunda iðju og taka þátt í samfélagi. Ástæður iðjuvanda geta verið margvíslegar og ávallt er horft til samspils iðju, einstaklings og umhverfis eins og myndin hér gefur til kynna. Iðjuþjálfar hafa menntun og sérþekkingu til að greina og kortleggja iðjuvanda og leita leiða til að efla færni og þátttöku fólks. Iðjuþjálfun er góð fjárfesting - alltaf! Við hér á Íslandi erum í velferðarkreppu líkt og hin Norðurlöndin og heilbrigðiskerfið er ekki haldbært. Það er skortur á heilbrigðisstarfsfólki í nær öllum greinum. Iðjuþjálfar eru skilgreindir sem endurhæfingarstétt og það hefur vantað iðjuþjálfa til starfa hér á landi um árabil. Ég held að við getum öll verið sammála um að það þurfi meira fjármagn í heilbrigðiskerfið og velferðarþjónustu almennt. Hlutfall aldraðra fer hækkandi og það er sá hópur sem mun þurfa hvað mest á heilbrigðis- og félagsþjónustu að halda á næstu áratugum. Fagfélög iðjuþjálfa á Norðurlöndum hafa lengi bent á að það þurfi að finna nýjar leiðir og breyta áherslum svo þokast megi í átt að haldbæru heilbrigðiskerfi. Með því að hafa þjónustu iðjuþjálfa aðgengilega í nærumhverfi fólks er hægt að spara stórar fjárhæðir og fyrirbyggja að til dæmis aldrað fólk þurfi á sérhæfðari og dýrari þjónustu að halda. Í Noregi hefur verið reiknað út að það spari töluverða fjármuni og mannafla að vera með forvirkar aðgerðir á vegum sveitarfélaga og heilsugæslu, til dæmis þegar um er að ræða aldraða sem þurfa stuðning til þess að geta búið heima. Það að einstaklingur með færniskerðingu fái þjálfun, hjálpartæki og eftirfylgd iðjuþjálfa til að ná sjálfstæði við eigin umsjá getur frestað þörf hans fyrir heimaþjónustu jafnvel um nokkur ár. Þjónusta iðjuþjálfa þarf að verða aðgengilegri í heilsugæslunni Þótt iðjuþjálfum hafi fjölgað í heilsugæslu landsmanna allra síðustu ár, þá er þjónusta þeirra ekki nægilega aðgengileg. Oftar en ekki er hún ætluð tilteknum hópum eins og öldruðum í gegnum heimahjúkrun eða fólki með geðrænar áskoranir í gegnum geðheilsuteymin. Gerð er krafa um læknisvottorð auk fleiri aðgangsstýringa í stað þess að hafa lágan þröskuld í fyrsta stigs þjónustunni og treysta iðjuþjálfum til að meta iðjuvanda viðkomandi skjólstæðinga og þörf fyrir þjónustu. Iðjuþjálfafélag Íslands var stofnað 1976 og fagnar því 50 ára afmæli um þessar mundir. Þegar á fyrstu árum félagsins bentu iðjuþjálfar á hversu brýnt það væri að iðjuþjálfar störfuðu í heilsugæslunni enda var það beinlínis ávarpað eldri lögum um heilbrigðisþjónustu. Í gildandi reglugerð nr. 1111/2020 um hlutverk, starfsemi og þjónustu heilsugæslustöðva er áréttað að heilsugæslan eigi að veita þverfaglega þjónustu og endurhæfingu. Það er afar brýnt að yfirvöld fari í raunverulegar aðgerðir varðandi forvarnir og endurhæfingu í fyrsta stigs heilbrigðisþjónustu með því að bæta til muna aðgengi að þjónustu iðjuþjálfa og annarra endurhæfingarstétta. Iðjuþjálfun á alþjóðavísu Alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar er í dag 27. október og iðjuþjálfar um víða veröld fagna honum með því að kynna fag og störf. Við viljum draga fram að „þátttaka skiptir máli“. Iðjuþjálfar vita að þátttaka byggir á samspili einstaklings, iðju og umhverfis en það er ekki nóg að skilja það. Við þurfum markvisst að vinna að því að breyta þessu samspili skjólstæðingnum í hag og rýna í hvað hindrar iðju og þátttöku. Það er til dæmis ekki nóg að vísa fólki í endurhæfingu hjá VIRK eða Reykjalundi ef henni er ekki fylgt eftir og ef aðgerðirnar ná ekki til umhverfisins. Oft snýst endurhæfingin um þjálfun til að bæta færni en hún snýst ekki síður um að rýna vel í fyrrnefnt samspil og gera breytingar á iðjunni og umhverfinu, svo sem með hjálpartækjum og aðlögun í takt við markmiðin sem skjólstæðingurinn setur sér í samstarfi við iðjuþjálfann. Aukin færni er ekki alltaf markmiðið í sjálfu sér. Það hefur sýnt sig að það er ekki síður mikilvægt að skjólstæðingurinn sem um ræðir upplifi tilgang og sjái tækifæri og leiðir til að auka þátttöku sína hvort sem það er í daglegu lífi heima, við störf eða tómstundaiðju. Höfundur er formaður Iðjuþjálfafélags Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðismál Mest lesið Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Málverkið og mælikvarðinn - Um litadýrð, líffræði og fegurð Hilmar Kristinsson Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Málverkið og mælikvarðinn - Um litadýrð, líffræði og fegurð Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Um Stafræna heilsu: Karp er best með forsjá Alma D. Möller skrifar Skoðun Piparsveinar fagna nýútkominni skýrslu um strandveiðar Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Loftbrúin fjarlægist skosku leiðina Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Þingmaðurinn sem ruglaði saman gagnrýni og andstöðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir skrifar Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson skrifar Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar Skoðun Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason skrifar Skoðun Hefði Evrópa getað keypt sigur á Rússum fyrir tveimur árum?! Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Það er dýrt að hafa lítið val Svanfríður Bergvinsdóttir,Andri Ólafsson skrifar Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar Skoðun Nýr einkunnakvarði er aðeins hluti af sögunni Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar vernd barns týnist milli kerfa? Inga Henriksen skrifar Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Öryggi þjóðarinnar verður ekki tryggt í Excel-skjali Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Þegar stóru ríkin verða veikasti hlekkurinn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Viðreisn – góð stefna dugar ekki ein og sér Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Sjá meira
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar
Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar
Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar
Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun