Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar 26. október 2026 14:33 Innviðaráðherra tilkynnti fyrir helgina nýtt fyrirkomulag vegna afsláttarkóða Loftbrúar sem felur í sér að afslátturinn verður héðan í frá í fastri krónutölu í stað þess að vera prósentutala af fargjaldi. Upphaflega krónutalan sem var kynnt mætti ekki þörfum landsbyggðarinnar og við því var brugðist hratt síðustu daga. Niðurstaða þeirrar vinnu er að 200 milljónum króna verður bætt við þær 600 milljónir króna sem áður voru fyrirhugaðar í að greiða niður Loftbrúna á næsta ári. Því verða 800 milljónir króna settar í að niðurgreiða allt að sex flugleggi fyrir íbúa á landsbyggðinni til að bæta aðgengi þeirra að miðlægri þjónustu á suðvesturhorninu og Norðurlandi. Um verður að ræða hæstu upphæð sem nokkru sinni hefur verið sett í verkefnið. Hver ferð fram og til baka mun geta verið niðurgreidd um samtals 18 þúsund krónur. Nauðsynleg kerfisbreyting Loftbrúin var sett á laggirnar árið 2020 og síðustu árin sem ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Vinstri grænna sat að völdum voru áætlaðar um 600 milljónir króna í hana á ári. Frá 2023 hefur heildarkostnaðurinn við Loftbrú farið yfir þá tölu og því hefur þurft að sækja frekari framlög á fjáraukalög. Mest fór heildarkostnaðurinn í 740 milljónir króna í fyrra og því ljóst að sú upphæð sem er ætluð í afslátt á næsta ári er töluvert hærri upphæð. Ástæða þess að verið er að færa afsláttinn úr hlutfalli yfir í krónur er margþætt. Í fyrsta lagi getur afslátturinn orðið hærri í prósentum talið ef fólk bókar ódýrari fargjöld, hafi það tök á að gera það ef góður fyrirvari gefst á ferðinni. Í öðru lagi dregur föst krónutala úr hvata flugfélaga til að hækka verð á innanlandsflugi sem nýtist bæði landsbyggðarfólki sem þarf að fljúga og hefur góð áhrif til að draga úr verðbólgu. Skrúfað fyrir krana Í þriðja lagi er ekki efnahagslega ábyrgt að vera með svokallaða krana í ríkisbúskapnum. Þar á ég við útgjaldaliði sem fara alltaf fram úr þeim upphæðum sem úthlutað er til þeirra um ófyrirséða upphæð. Slíkir kranar voru algengir í tíð síðustu ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og Vinstri grænna og léku sitt hlutverk í því að ríkissjóður hefur verið rekinn á mörg hundruð milljarða króna yfirdrætti árum saman með miklum tilkostnaði fyrir alla íbúa landsins, bæði í dreifbýli og þéttbýli. Það má til að mynda benda á að vaxtakostnaður ríkissjóðs var um 59 milljarðar króna árið 2021 en er áætlaður um 168 milljarðar í ár. Það er 109 milljarða króna munur. Það er ansi margt hægt að gera til að bæta líf landsmanna fyrir 109 milljarða króna á ári. Látum verkin tala á meðan aðrir bara tala Loftbrúin er landsbyggðinni lífsnauðsynleg. Það þekki ég vel sem íbúi á Austurlandi. Við þurfum að sækja alls kyns þjónustu í höfuðborgina og nágrenni hennar. Þar er miðstöð stjórnsýslu og heilbrigðisþjónustu. Auk þess kallar lífið oft á skyndileg ferðalög, til dæmis þegar sækja þarf jarðafarir þvert yfir landið með skömmum fyrirvara. Sú breyting sem nú verður á þessu fyrirkomulagi mun skila meira fé en nokkru sinni áður í Loftbrúna. Því er dapurt að sjá pólitíska fulltrúa þeirra flokka sem fóru hér með völd árum saman, en völdu að setja minna fjármagn í að greiða niður flug fyrir fólk á landsbyggðinni og létu þá fjárhæð alls ekki fylgja verðlagi, setja á fót pólitískt leikrit um annað. Ég og ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur, höfum einbeitt okkur að því að láta verkin tala og skila árangri fyrir umbjóðendur okkar, í stað þess að standa í þannig leikgerð í fjölmiðlum. Að ná tökum á ríkisfjármálum, leggja fram atvinnustefnu sem stuðlar að því að störf verði til um allt land, stórauka framlög til heilbrigðismála með uppbyggingu út um allt land og rjúfa kyrrstöðu í samgöngumálum með fjármagnaðri áætlun og stofnun innviðafélags. Sá árangur sem náðist um breytingu á Loftbrúnni um helgina er gott dæmi um þau vinnubrögð. Með samtölum og samvinnu leystum við málið. Höfundur er þingmaður Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Eydís Ásbjörnsdóttir Mest lesið Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson Skoðun Skoðun Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar vernd barns týnist milli kerfa? Inga Henriksen skrifar Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Öryggi þjóðarinnar verður ekki tryggt í Excel-skjali Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Þegar stóru ríkin verða veikasti hlekkurinn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Viðreisn – góð stefna dugar ekki ein og sér Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson skrifar Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Hallgrímskirkja heillar Sigurður Árni Þórðarson skrifar Skoðun Sameiginleg þjónusta þarf að vera aðgengileg öllum Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar Skoðun Þegar báðir græða Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Opið bréf til innviðaráðherra og atvinnuvegaráðherra Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar Skoðun Bókaklúbbur borgarstjórans Michelle Spinei skrifar Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty skrifar Skoðun Nýi kaflinn í iðnsögunni Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Loftbrú: Ráðherra í 0% tengingu við landsbyggðina Ásta Kristín Pjetursdóttir skrifar Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Orð eru ekki heldur stefna – opið bréf til bæjarstjóra Ölfuss Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Aðeins annar hluti jöfnunnar er ekki nóg Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Hvernig viljum við eldast? Janus Guðlaugsson skrifar Skoðun Þekkingin hefur aukist en hvað með þjónustuna? Hanna Birna Valdimarsdóttir skrifar Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Það er kominn tími á löggjöf um dánaraðstoð á Íslandi Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir skrifar Sjá meira
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason Skoðun
Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar
Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar
Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason Skoðun