Skoðun

Er þetta ekki nóg?

Sigurður Líndal Þórisson skrifar

Síðustu dagar Gnarrsins hafa sýnt með óyggjandi hætti að þörf er á vinnustaðasálfræðingi á ríkisstjórnarskrifstofurnar. Hitt opinberast þó, með sífellt skýrari hætti, að þörf er á klínískum sálfræðingi líka, til að greina hið stæka landsbyggðahatur sem ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur er heltekin af.

Áratugum saman hafa 70-90% af útflutningstekjum Íslands komið utan af landi eða vegna auðlinda sem þar eru.

Er þetta ekki nóg?

Nei, segir ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur sem vængstýfir Loftbrúna.

Um 92% af heildarafla og 85% aflaverðmætis er landað utan höfuðborgarsvæðisins. Sjávarafurðir voru 38,9% af heildarverðmæti vöruútflutnings árið 2025. Útflutningsverðmæti fiskeldis var 53,4 milljarðar króna sama ár.

Er þetta ekki nóg?

Nei, segir ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur sem ætlar að hækka kílómetragjaldið um 15,9%.

Orkan er undirstaða lífsgæða Íslendinga, hún verður til úti á landi. Landsvirkjun framleiðir yfir 70% allrar raforku landsins, og ríkissjóður á 99,9% í fyrirtækinu.

Er þetta ekki nóg?

Nei, segir ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur sem ætlar að setja gjaldið á þyngstu vörubílana upp í um 52 krónur á kílómetra, álögur sem skila sér beint út í verð á vörum og þjónustu, sérstaklega úti á landi.

Um 70% ríkisstöðugilda eru á höfuðborgarsvæðinu, þar sem 64% landsmanna búa.

Er þetta ekki nóg?

Nei, segir ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur sem nær tvöfaldaði veiðigjaldið á þorsk. Gjald á þorsk fór úr 26,68 í 50,79 krónur á kíló, sem er 90,4% hækkun, og makríll hækkaði um 151%. Þau 64% landsmanna sem búa á höfuðborgarsvæðinu greiða aðeins um 15% veiðigjaldsins.

Ferðaþjónustan á sér stað úti á landi, en verðmætu störfin og stórfyrirtækin í greininni eru á höfuðborgarsvæðinu. Sjávarútvegur, fiskeldi, stangveiði, orkuvinnsla, útflutningur á hrossum, ál- og gagnaver - allt gerist þetta að stærstum hluta úti á landi og stendur undir lífsgæðum og velferð landsmanna allra.

Er þetta ekki nóg?

Nei, segir ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur. Nei. Nei. Nei. Aftur og aftur.

Ef þetta er ekki nóg, hvað má þá bjóða ykkur?

Svo maður vitni nú bara í besta áramótaskaup sögunnar:

Viljiði ekki bara sjá á okkur brjóstin líka?

Höfundur er oddviti sveitarstjórnar Húnaþings vestra.




Skoðun

Sjá meira


×