Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir skrifar 25. október 2026 07:01 Það skaut verulega skökku við þegar við fréttum nú síðsumars að leggja ætti niður leið landsbyggðarstrætós hér í uppsveitum. Í kjölfar mótmæla fékkst í gegn að halda inni tveimur ferðum á dag, að morgni og síðdegis, en þó aðeins á virkum dögum. Eftir stendur þjónusta sem gegnir fyrst og fremst hlutverki skólabíls. Til upprifjunar eru ekki svo mörg ár síðan skólaakstur í FSu var sameinaður landsbyggðarstrætó í hagræðingarskyni. Nú sitja almennir farþegar eftir með takmarkaða ferðamöguleika. Þegar almenningssamgöngur eru skornar niður á landsbyggðinni þurfa íbúar að reiða sig enn meir á bílinn með tilheyrandi vaxandi kostnaði vegna hækkunar skatta í formi kílómetragjalds. Allt leggst á eitt Hér í uppsveitum er ferðaþjónustan ein grunnstoða atvinnulífsins. Að baki henni standa fyrirtæki sem hafa fjárfest í uppbyggingu, sum í áratugi, starfsfólk sem á afkomu sína undir rekstrinum og sveitarfélög sem hafa byggt upp innviði og þjónustu þessu til stuðnings. Breytingar á rekstrarskilyrðum þessara fyrirtækja snerta því samfélagið allt. Þegar rætt er um kílómetragjald, virðisaukaskatt á aðgang að baðlónum og náttúrupassa þarf að leggja mat á samanlögð áhrif. Hvaða áhrif getur þetta haft á ákvörðun ferðamanna um val á áfangastöðum? Hver eru áhrifin á samkeppnishæfni fyrirtækja og möguleika þeirra til að halda áfram að fjárfesta og skapa störf? Lykilspurningin er kannski: Hver er tilgangurinn? Ég efast ekki um að hver og ein þessara breytinga eigi sér rökstuðning hjá hverjum og einum ráðherra sem leggja þær fram. Raunar er sorglegt að horfa uppá að ríkisstjórnarflokkarnir virðast samstíga í þessum aðgerðum. Fyrir okkur íbúana eru heildaráhrifin hins vegar augljós og hreint og beint skaðleg. Þrengt er að möguleikum fólks til að komast til og frá vinnu. Fyrirtæki verða fyrir skaða vegna kostnaðaráhrifa. Sveitarfélögin kunna að þurfa að hægja á uppbyggingu. Allt leggst á eitt að þyngja róðurinn. Uppbygging krefst fyrirsjáanleika Þetta kemur á sama tíma og sveitarfélögin eru að byggja upp innviði til að mæta vexti undanfarinna ára og gera frekari uppbyggingu mögulega. Fjárfestingar liggja fyrir í vatnsveitu, fráveitu og annarri grunnþjónustu sem bæði íbúar og atvinnulíf treysta á. Þessum fjárfestingum fylgir viðvarandi kostnaður við rekstur og viðhald. Gleymum því ekki að vöxtur ferðaþjónustunnar snýst líka um fólkið sem kemur til starfa og sest að í sveitarfélögunum og byggir þar upp sitt líf. Ný störf kalla á húsnæði, leikskólapláss, grunnskóla og fjölbreytta þjónustu. Sveitarfélögin þurfa með góðu móti að geta skipulagt og lagt í fjárfestingu til lengri tíma til að mæta þessari þróun. Slíkar ákvarðanir eru teknar í trausti þess að hér verði áfram rekstrarskilyrði fyrir samkeppnishæft atvinnulíf. Skyndilegar breytingar á forsendum koma sér þannig illa fyrir alla viðkomandi: fyrirtækin, sveitarfélögin og heimilin. Við eigum að geta treyst því að ákvarðanir ríkisins byggi á samráði og fyrirsjáanleika. Aðför ríkisvaldsins gegn landsbyggðinni, ekki síst uppsveitum Árnessýslu, vekur ugg og eykur á áhyggjur af afkomu heimila, rekstri fyrirtækja og möguleika samfélaganna til að halda áfram að vaxa og dafna. Við höfum komið sjónarmiðum okkar á framfæri í formi fjölda umsagna um fyrirhugaðar breytingar sem hér hefur verið tæpt á. Þingmenn þurfa að sýna í verki að tekið sé mið af þeim ábendingum og áhyggjum sem þar koma fram. Ríkisstjórnin þarf að standa við sín eigin orð um öfluga byggð og atvinnulíf um land allt. Annað má líta á sem aðför gegn landsbyggðinni. Henni verður mætt af hörku. Höfundur er sveitarstjóri Grímsnes- og Grafningshrepps. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Byggðamál Samgöngumál Grímsnes- og Grafningshreppur Mest lesið Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen Skoðun Skoðun Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir skrifar Skoðun Protocol 35: Could Iceland be right after all? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nei nú stækkar nefið þitt Gosi.. sönn frásögn Sonja Lind Eyglóardóttir skrifar Skoðun Við getum ekki mælt okkur út úr vandanum Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Sjá meira
Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir Skoðun
Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir Skoðun