Færeyingar eru ekki í ESB en… Sigurður Steinar Ásgeirsson skrifar 12. júní 2026 15:01 Í umræðunni um hugsanlega aðild Íslands að ESB hafa Færeyjar nú nokkrum sinnum verið nefndar til samanburðar við Ísland. Ólafur Ragnar Grímsson nefndi t.d. Færeyjar og Grænland í viðtali nýlega sem dæmi um lönd sem hafa kosið að halda sig utan ESB. Í gær og í dag birtust greinar frá Svanborgu Sigmarsdóttur og andsvar frá Hirti J. Guðmundssyni þar sem tekist er á um hvernig ætti að bera Færeyjar og Ísland saman. Færeyjar, rétt eins og Ísland, hafa sinn eigin gjaldmiðil: færeysku krónuna. Færeyingar standa utan ESB og reyndar standa þeir utan EES en samt eru stýrivextir í Færeyjum í dag 1,6% á meðan þeir eru 7,75% hér á Íslandi. Ef maður skoðar málið ekkert frekar má kannski draga af þessu þá ályktun að lítið land geti vel rekið sinn eigin gjaldmiðil. Kannski eru Færeyingar bara mjög góðir í því en við Íslendingar ekki? En ef málið er skoðað aðeins betur má sjá að færeyska krónan fylgir gengi evrunnar algerlega. Það er ekki tilviljun, það er vegna þess að færeyska krónan er bundin við dönsku krónuna og danska krónan er bundin við Evru. Sú gengisbinding er framkvæmd í samstarfi Seðlabanka Danmerkur annars vegar og Seðlabanka Evrópu hins vegar. Það væri mjög erfitt og jafnvel ómögulegt að viðhalda slíkri gengisbindingu einhliða. En hvað með stýrivexti? Af hverju eru stýrivextir svona lágir í Færeyjum? Er ekki verðbólga þar rétt eins og hér? Hefur olíuverð ekki hækkað þar vegna lokunar Hormússunds? Stýrivextir í Færeyjum eru ákveðnir af Seðlabankanum í Danmörku en taka mið af ákvörðunum Seðlabanka Evrópu. Eins og sjá má þá er nánast full fylgni á milli stýrivaxta Evru og Danskrar/Færeyskrar krónu. Lækkunarferli stýrivaxta stöðvaðist þar rétt eins og hér, en þar hefur þó ekki komið til stýrivaxtahækkunar eins og hér. Færeyska krónan er ekki sjálfstæður gjaldmiðill, ekki frekar en Danska krónan. Færeyjar eru í öllum praktískum skilningi hluti af evrusvæðinu í gegnum Dani, jafnvel þótt þeir séu ekki í ESB eða jafnvel EES. Þegar við berum okkur saman við Færeyjar, þá er mikilvægt að halda þessu til haga. Færeyjar og Grænland eru ekki dæmi um lönd sem lifa vel án samstarfs við ESB enda eiga þau í nánu samstarfið við Evrópusambandið í gegnum Seðlabanka Evrópu. Höfundur er lögfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar