Loka framleiðslueldhúsi vegna listeríu Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 2. febrúar 2026 17:49 Framleiðslueldhúsinu á Vitatorgi hefur verið lokað. Reykjavíkurborg Reykjavíkurborg hefur lokað framleiðslueldhúsinu á Vitatorgi eftir að bakterían Listeria monocytogenes, betur þekkt sem listería, fannst þar við reglubundna sýnatöku. Yfir níu hundruð máltíðir eru framleiddar í eldhúsinu á dag.
Máltíðirnar sem framleiddar eru á Vitatorgi fara ýmist í heimsendingu eða eru bornar fram í félagsmiðstöðvum og þjónustuíbúðum velferðarsviðs. Listería getur valdið matarsýkingum, einkum hjá viðkvæmum einstaklingum líkt og öldruðum, ófrískum konum, ungum börnum og fólki með skert ónæmiskerfi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Haft er eftir Rannveigu Einarsdóttur, sviðsstjóra velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, að allt kapp sé lagt á að leysa hratt úr stöðunni. Einkenni á við mild flensueinkenni, vöðvaverki, hita og ógleði geta komið fram allt að þremur vikum eftir neyslu. Þeir sem fengu heimsendan mat í dag frá Vitatorgi eru beðnir um að farga honum. Bílstjórar velferðarsviðs eru samkvæmt tilkynningunni á ferðinni að sækja máltíðirnar og sjá til þess að fólk sé meðvitað um stöðuna. Hefja matargerð í öðru eldhúsi „Ekki verður þjónustuskerðing hvað varðar heimsendan mat, en því miður verður ekki hægt að bjóða upp á heitan mat í hádeginu á eftirfarandi félagsmiðstöðvum á morgun: Vitatorgi, Borgum, Hraunbæ, Hæðargarði, Árskógum, Hvassaleiti, Dalbraut 18-20, Aflagranda og Bólstaðarhlíð,“ segir í tilkynningunni. Stefnt er á að maturinn verði framreiddur í félagsmiðstöðvunum þegar líður á vikuna. Starfsemi hefst á morgun í öðru eldhúsi til að framreiða mat fyrir þá sem eiga von á heimsendingu.
Reykjavík Eldri borgarar Heilbrigðismál Heilbrigðiseftirlit Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Sjá meira