„Bara vá, ég er svo glaður“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 20. janúar 2026 22:02 Gísli Þorgeir hafði ástæðu til að brosa í leikslok. EPA/Johan Nilsson SWEDEN OUT „Vá, maður er bara ótrúlega léttur á því einhvernveginn,“ sagði brosmildur Gísli Þorgeir Kristjánsson eftir sigur Íslands gegn Ungverjalandi á EM í handbolta í kvöld. „
Þetta var stórt próf fyrir okkur sem lið og við stóðumst það og ég bara gæti ekki verið glaðari með niðurstöðuna,“ bætti Gísli við. Hann tók þó undir það að íslenska liðið hafi þurft að hafa fyrir hlutunum. „Enda er þetta helvíti gott lið þessir Ungverjar og þeir hafa reynst okkur mjög erfiðir í gegnum árin. Það vita það held ég bara flestir landsmenn að þeir henta okkur oft illa sem lið. Þetta var erfið fæðing í byrjun, en þegar við náum svona aðeins að leikgreina þá þá fannst mér við finna betri lausnir á þeirra vörn og við fengum betri færi. Auðvitað vorum við að klikka á helvíti mörgum dauðafærum sem hefði getað gert okkur auðveldara fyrir. Þeirra markmaður varði vel en við fengum líka góða bolta frá Viktori. En bara vá, ég er svo glaður.“ Á tímabili virtust dómarar leiksins ekki alveg vera með hlutina á hreinu og Gísli segir það einnig hafa verið að trufla leikmenn. „Kannski aðeins of mikið, ég veit það ekki. Einhvernveginn þegar maður fær hendi í andlitið finnst manni að dómarinn eigi að sjá það, en þegar þeir dæma ekki neitt þá kannski var maður aðeins of fljótur upp. Við þurfum líka að passa okkur að verða ekki of tense, en mér fannst við finna fínt jafnvægi þegar við hættum að pæla í þessu og einbeittum okkur að því að spila handbolta.“ Að lokum segir hann að þessi sigur gefi liðinu mikið fyrir framhaldið. „Að sjálfsögðu. Þetta var næsta skref fyrir okkur sem lið og ég er mjög spenntur fyrir framhaldinu og að takast á við þessa erfiðu mótherja sem bíða okkar í milliriðlinum.“ Klippa: Gísli Þorgeir eftir sigurinn gegn Ungverjum
Landslið karla í handbolta EM karla í handbolta 2026 Mest lesið FIFA: Örflagan sýnir enga snertingu við vírinn Fótbolti Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa Fótbolti Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Körfubolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti Þjálfarinn rekinn eftir hótun leikmanns Fótbolti Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Fótbolti McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Sport Uppgjörið: FH - Valur 2-0 | Gils gerði gæfumuninn í langþráðum sigri FH-liðsins Íslenski boltinn Haaland eldri hraunar yfir dómarana Fótbolti Sýður á Svisslendingum Fótbolti Fleiri fréttir Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Sjá meira