„Örugglega orðinn hundleiður á umræðunni“ Sindri Sverrisson skrifar 20. janúar 2026 10:00 Haukur Þrastarson sækir gegn pólsku vörninni í sigrinum góða á sunnudaginn. EPA/Cornelius Poppe Haukur Þrastarson átti skínandi leik í sigrinum örugga gegn Pólverjum á EM í handbolta á sunnudaginn. Sérfræðingarnir í Besta sætinu segja það sýna styrk hve margir geti látið til sín taka í íslenska liðinu.
Ljóst er að Ísland þarf á kröftum sem flestra að halda í kvöld þegar liðið mætir Ungverjalandi í fyrstu stóru prófrauninni á mótinu, klukkan 19:30. Haukur náði hundrað mörkum og hundrað stoðsendingum fyrir áramót í sterkustu landsdeild í heimi, þýsku deildinni, með liði Rhein-Neckar Löwen en beðið hefur verið eftir því að hann sýni sínar bestu hliðar í íslensku landsliðstreyjunni. Þessi 24 ára Selfyssingur sýndi þær gegn Póllandi. „Þetta er frábært fyrir Hauk. Hann er örugglega orðinn hundleiður á umræðunni um að hann sé ekki að finna sig í búningnum, vanti sjálfstraust og allt þetta. Þetta er náttúrulega bara frábær leikmaður sem hefur átt frábært tímabil og hann þurfti bara aðeins að fá „mómentið“. Maður gerir bara ráð fyrir að hann leggi áfram eitthvað á borðið,“ sagði Jóhann Gunnar Einarsson í Besta sætinu. Hægt er að hlusta á þáttinn hér að neðan og í helstu hlaðvarpsveitum. Jóhann segir nauðsynlegt að menn eins og Haukur og fleiri létti á byrðunum á lykilmönnum íslenska liðsins. „Það þarf alltaf einhver að koma með eitthvað extra í svona móti. Það geta ekki allir átt góðan leik, það er nánast óheyrt að slíkt gerist. Núna var það Ómar, „maður leiksins“, sem tók það svolítið á sig [að eiga ekki góðan leik] en þá kemur Viggó bara með frábæra innkomu og það sýnir styrkleika. Þetta er það sem maður vill sjá. Maður ólst ekki upp við þetta í liðunum hans Gumma Gumm. Þá voru þetta bara sjö leikmenn sem spiluðu, nánast allt mótið, og svo kom Logi kannski inná og Ásgeir til að leysa af í vörn. Núna erum við með 12-13 leikmenn sem koma inná og hann treystir. Ekki bara í einhverjar ruslmínútur,“ sagði Jóhann. „Þetta skiptir öllu máli“ Stefán Árni Pálsson benti á að bestu landsliðin í dag, Danmörk og Frakkland, væru með svo marga öfluga leikmenn og það væri nauðsynlegt í nútímahandbolta. Þess vegna væri mikilvægi Hauks og manna á borð við Janus Daða Smárason og Viggó Kristjánsson mikið. „Þetta skiptir öllu máli. Handboltinn í dag er þannig að við þurfum að geta notað alla,“ sagði Einar Jónsson og hélt áfram: „Mér finnst Snorri í dag vera með 14 leikmenn sem hann spilar á. Með fullri virðingu held ég að Andri sé ekki að fara að vera í einhverju burðarhlutverki, og ég held að Teitur sé ekki að fara að vera það, en hinir 14 eru allt leikmenn sem geta skilað sínu. Maður leiksins gegn Ungverjum gæti þess vegna orðið Óðinn eða einhver annar sem hefur ekki gert mikið í síðustu tveimur leikjum. Við erum með ógeðslega mikla breidd og mér finnst Snorri líka vera að gera þetta vel. Hann er búinn að vera að byggja þetta upp með þessum hætti og er á frábærum stað,“ sagði Einar.
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Mest lesið Nýr leikmaður Arsenal á skotskónum í sínum fyrsta leik Fótbolti Markmaður Noregs forðast að fara í búðina eftir heimsmeistaramótið Fótbolti „Ég mun að minnsta kosti sofa vel í nótt“ Fótbolti Er með þriggja högga forskot fyrir lokahringinn á Opna breska Golf Fimmtán ára ungstirni spilaði sínar fyrstu mínútur fyrir Manchester United Fótbolti Real Madrid missti niður tveggja marka forskot gegn Alberti og félögum Fótbolti „Ég er rasisti og ég gerði þetta viljandi“ Sport Segir Richarlison vera tvístigandi hvort hann vilji vera áfram Fótbolti „Þetta er mikið áfall fyrir okkur“ Íslenski boltinn „Versta ákvörðun sem ég hef tekið að styðja Tottenham“ Enski boltinn Fleiri fréttir Strákarnir áfram með fullt hús Ungverjagrýlan hrjáir ekki U18 lið Íslands Yngsti Skipagötu-bróðirinn skoraði þrettán mörk í fyrsta leik á EM Fjórtán marka stórsigur í fyrsta leik Var sagt upp á stórafmælinu og er haldinn út í heim Besti handboltamaður heims fór í markið Hafnaði mörgum góðum tilboðum og fór frekar heim „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Sjá meira