Öll höllin æpti nafn Gísla í spennutrylli Sindri Sverrisson skrifar 23. desember 2025 19:50 Gísli Þorgeir Kristjánsson varði Þorláksmessu í að ráðast á varnarmenn Kiel. Getty/Ronny Hartmann Það var sannkallaður spennutryllir í þýska handboltanum í kvöld þegar Magdeburg og Kiel mættust, og að sjálfsögðu voru Íslendingarnir í Magdeburg áberandi.
Leiknum lauk með jafntefli, 26-26, eftir rosalegar lokamínútur. Magdeburg hafði lent undir, 25-24, en Ómar Ingi Magnússon jafnaði metin og allt ætlaði svo um koll að keyra þegar Gísli Þorgeir Kristjánsson náði að koma Magdeburg yfir, mínútu fyrir leikslok. Allir í höllinni, sem var þéttsetin af heimamönnum, kyrjuðu nafn Gísla sem allt stefndi í að yrði hetja Magdeburgar-liðsins. Þegar aðeins tvær sekúndur voru eftir náði Hendrik Pekeler hins vegar að jafna metin fyrir Kiel og tryggja liðinu stig. Magdeburg tók þó leikhlé og Elvar Örn Jónsson reyndi svo lokaskot frá miðju en Andreas Wolff sá við því í marki gestanna. Gísli endaði markahæstur hjá Magdeburg ásamt Lukas Mertens með sex mörk auk þess að gefa flestar stoðsendingar, eða einnig sex. Ómar skoraði fjögur mörk og gaf þrjár stoðsendingar, og Elvar skoraði eitt mark. Hjá Kiel voru Harald Reinkind og Lukas Zerbe markahæstir með sjö mörk hvor. Magdeburg er áfram á toppnum og hefur ekki tapað leik en þetta var annað jafntefli liðsins. Hina sextán leikina hefur liðið unnið og er með 34 stig, fimm stigum á undan Flensburg sem er í 2. sæti. Kiel jafnaði Füchse Berlín að stigum í 4.-5. sæti með 26 stig.
Þýski handboltinn Mest lesið „Ég mun að minnsta kosti sofa vel í nótt“ Fótbolti Markmaður Noregs forðast að fara í búðina eftir heimsmeistaramótið Fótbolti Nýr leikmaður Arsenal á skotskónum í sínum fyrsta leik Fótbolti Er með þriggja högga forskot fyrir lokahringinn á Opna breska Golf Fimmtán ára ungstirni spilaði sínar fyrstu mínútur fyrir Manchester United Fótbolti Real Madrid missti niður tveggja marka forskot gegn Alberti og félögum Fótbolti „Versta ákvörðun sem ég hef tekið að styðja Tottenham“ Enski boltinn „Þetta er mikið áfall fyrir okkur“ Íslenski boltinn Segir Richarlison vera tvístigandi hvort hann vilji vera áfram Fótbolti Enn skorar Emelía Fótbolti Fleiri fréttir Strákarnir áfram með fullt hús Ungverjagrýlan hrjáir ekki U18 lið Íslands Yngsti Skipagötu-bróðirinn skoraði þrettán mörk í fyrsta leik á EM Fjórtán marka stórsigur í fyrsta leik Var sagt upp á stórafmælinu og er haldinn út í heim Besti handboltamaður heims fór í markið Hafnaði mörgum góðum tilboðum og fór frekar heim „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Sjá meira