Ráðgátan með dularfulla peningaseðilinn í leik Íslands leyst Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 29. nóvember 2025 11:31 Seðilinn sem féll á gólfið í Porsche Arena. ihf Peningaseðill féll á gólfið í leik Þýskalands og Íslands á heimsmeistaramóti kvenna í handbolta á dögunum. Í ljós er komið hvaðan hann kom og hverjum hann tilheyrði.
Þýskaland sigraði Ísland, 32-25, í upphafsleik HM 2025 á miðvikudaginn. Leikurinn fór fram í Porsche-Arena í Stuttgart eins og aðrir leikir í C-riðli mótsins. Athygli vakti þegar peningaseðill féll á gólfið á meðan leik Þjóðverja og Íslendinga stóð. TV 2 í Danmörku leitaði skýringa hjá Alþjóða handknattleikssambandinu á þessum dularfulla seðli. Samkvæmt upplýsingum frá IHF var ekki um raunverulegan peningaseðil að ræða heldur eins konar leikmun frá tónleikum þýska rapparans Dardan í Porsche-Arena. Seðlarnir voru notaðir sem eins konar konfettí á tónleikum hans. Einn af seðlunum festist uppi í rjáfri í Porsche-Arena en rataði síðan alla leið niður á gólf í leik Þýskalands og Íslands. Að sögn IHF tengist seðillinn heimsmeistaramótinu ekki á neinn hátt og er aðeins leikmunur sem varð eftir í höllinni eftir tónleika Dardan. Þjóðverjar fylgdu sigrinum á Íslendingum eftir með því að rúlla yfir Úrúgvæa í gær, 38-12. Með sigrinum tryggði Þýskaland sér sæti í milliriðli. Íslendingar fylgja Þjóðverjum og Serbum í milliriðla svo lengi sem þeir tapa ekki gegn Úrúgvæum í lokaleik sínum í C-riðli á morgun.
HM kvenna í handbolta 2025 Mest lesið Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Willum hrifinn af norska módelinu Sport Györ - Víkingur | Víkingar stefna á aðra umferðina Fótbolti Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Sport „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Körfubolti Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti Sakar lækni landsliðsins um loddaraskap Fótbolti Bróðir Yamals slær í gegn á HM Fótbolti „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Íslenski boltinn Aukinn viðbúnaður vegna sögu Englands og Argentínu Fótbolti Fleiri fréttir Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Sjá meira