Uppgjörið: Stjarnan - Valur 3-2 | Heimamenn í Evrópubaráttu með góðum sigri Pálmi Þórsson skrifar 14. júní 2025 18:33 Stjörnumenn fagna einu marka sinna í kvöld. Vísir/Diego
Valur kom í heimsókn í Garðabæinn og úr varð frábær fótboltaleikur í 11. umferð Bestu deildar karla í fótbolta. Leikurinn endaði 3-2 fyrir Stjörnunni og með sigrinum eru þeir allt í einu komnir í 4. sæti. Það var sól og stemning í Garðabænum og það endurspeglaði klárlega leikinn. Var mikill kraftur í báðum liðum og skiptust liðin á að koma sér í færi og þá aðallega Stjörnumenn að næla sér í hornspyrnur. Emil Atlason og Frederik Schram í kvöld.Vísir/Diego Frederik Schram varði tvisvar dauðafæri frá Örvar Eggertssyni strax í upphafi leiks en síðan á 17. mínútu skoraði Jóhann Árni Gunnarsson laglegt mark og kom Stjörnunni í 1-0. Sú forysta varði ekki lengi en níu mínútum seinna dúkkaði Patrick Pedersen með boltann inn í teig og gat lítið annað en skorað og jafnað metin. Allt janft í hálfleik.Vísir/Diego Þannig stóðu leikar í fyrri hálfleik en seinni hálfleikur fór alveg jafn kröftuglega af stað. Þorri Mar Þórisson kom inn af bekknum í hálfleik og kom hann inn með mikil kraft. Fór Stjarnan að sækja enn meira. Það skilaði sér að lokum á 62. mínútu þegar Emil Atla fékk góða sendingu inn fyrir og laumaði boltanum í netið. Stjörnumenn komnir yfir á nýjan leik. Nokkrum mínútum siðar komst Þorri Mar að endamörkum og renndi boltanum fyrir á Guðmund Baldvin sem kom boltanum í netið og staðan orðin 3-1. Emil fagnar.Vísir/Diego Valsmenn gerðu þá breytingar á liðinu og það var klárlega til hins betra. Á 77. mínútu fékk Patrick Pedersen aftur boltann í teiginn og skoraði sitt annað mark í leiknum til að minnka muninn. Valsmenn voru orðnir mjög líklegir að klára endurkomuna en þá kom sending inn fyrir á Örvar Eggertsson sem lenti á Bjarna Mark og fóru þeir báðir í jörðin. Virkilega klaufalegt og fékk Bjarni að líta rauða spjaldið. Þetta varð til þess að Valsmenn áttu lítil svör og endaði því leikurinn 3-2 fyrir Stjörnunni. Rautt á loft.Vísir/Diego Atvik Leiksins Stærsta atvikið er sennilega rauða spjaldið á Bjarna Mark. En einnig er það stórt að Patrick Pedersen skoraði tvö mörk í sínum 200. leik. Þó svo að hann endaði með tapi. Mörkin tvö þýða að Pedersen hefur nú skorað 127 mörk í efstu deild hér á landi. Það eru því aðeins fjögur mörk í að hann jafni markamet Tryggva Guðmundsonar. Stjörnur og skúrkar. Jóhann Árni og Guðmundur Baldvin voru hreint út sagt frábærir í dag. Báðir með mark og stoðsendingu. Skúrkurinn að þessu sinni fyrir Val var Bjarni Mark eins og komið hefur fram þá fékk hann þetta rauða spjald. Guðmundur Baldvin fagnar.Vísir/Diego Dómarar Þórður Þorsteinn Þórðarson var með flautuna og gerði það með glæsibrag. Birkir Sigurðarson og Gylfi Már Sigurðsson voru með flöggin. Jóhann Ingi Jónsson var 4. dómari. ÞÞÞ dæmdi leik kvöldsins.Vísir/Diego Lítið hægt að setja út á hann nema að Valsmenn vildu að Þorri Mar fengi spjald því fyrsta sem hann gerði þegar hann kom inn á var að henda af sér legghlífunum. Stemmning og umgjörð Loksins var leikur á laugardagskvöldi. Í fínu veðri en mætingin var frekar döpur og sennilega flestir í útskrift í dag. En þeir sem mættu voru í miklum gír. Áhorfendur: 673.Vísir/Diego
Besta deild karla Íslenski boltinn Stjarnan Valur Tengdar fréttir „Meira getur maður ekki beðið um“ Guðmundur Baldvin Nökkvason skoraði það sem reyndist sigurmark Stjörnunnar í 3-2 sigri liðsins á Val í 11. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu. Hann var eðlilega mjög sáttur með sigurinn og stigin þrjú. 14. júní 2025 21:21 „Erum sjálfum okkur verstir“ „Fyrstu viðbrögð án þess að hafa séð leikinn aftur eru að við erum sjálfum okkur verstir,“ sagði Túfa - Srdjan Tufegdzic – þjálfari Vals eftir 3-2 tap liðsins gegn Stjörnunni í 11. umferð Bestu deildar karla í fótbolta. 14. júní 2025 22:01 „Heilt yfir sterkara liðið og áttum skilið að vinna“ „Ég skemmti mér vel, þetta var skemmtilegur fótboltaleikur. Bæði lið sterk og áttu sína kafla. Fannst við þó heilt yfir sterkara liðið og áttum skilið að vinna,“ sagði Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar, eftir 3-2 sigur sinna manna á Val í 11. umferð Bestu deildar karla í fótbolta. 14. júní 2025 21:46 Pedersen í tvö hundruð leikja klúbbinn í kvöld: „Skiptir mig miklu máli“ Valsarinn Patrick Pedersen mun í kvöld komast í tvö hundruð leikja klúbbinn í efstu deild þegar Valur heimsækir Stjörnuna í Bestu deildinni. Stór áfangi sem skiptir Danann miklu máli. Upphaflega ætlaði hann sér að stoppa stutt við á Íslandi en hefur nú hrifist af landi og þjóð. 14. júní 2025 10:00
„Meira getur maður ekki beðið um“ Guðmundur Baldvin Nökkvason skoraði það sem reyndist sigurmark Stjörnunnar í 3-2 sigri liðsins á Val í 11. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu. Hann var eðlilega mjög sáttur með sigurinn og stigin þrjú. 14. júní 2025 21:21
„Erum sjálfum okkur verstir“ „Fyrstu viðbrögð án þess að hafa séð leikinn aftur eru að við erum sjálfum okkur verstir,“ sagði Túfa - Srdjan Tufegdzic – þjálfari Vals eftir 3-2 tap liðsins gegn Stjörnunni í 11. umferð Bestu deildar karla í fótbolta. 14. júní 2025 22:01
„Heilt yfir sterkara liðið og áttum skilið að vinna“ „Ég skemmti mér vel, þetta var skemmtilegur fótboltaleikur. Bæði lið sterk og áttu sína kafla. Fannst við þó heilt yfir sterkara liðið og áttum skilið að vinna,“ sagði Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar, eftir 3-2 sigur sinna manna á Val í 11. umferð Bestu deildar karla í fótbolta. 14. júní 2025 21:46
Pedersen í tvö hundruð leikja klúbbinn í kvöld: „Skiptir mig miklu máli“ Valsarinn Patrick Pedersen mun í kvöld komast í tvö hundruð leikja klúbbinn í efstu deild þegar Valur heimsækir Stjörnuna í Bestu deildinni. Stór áfangi sem skiptir Danann miklu máli. Upphaflega ætlaði hann sér að stoppa stutt við á Íslandi en hefur nú hrifist af landi og þjóð. 14. júní 2025 10:00