Viðskipti innlent

Bein út­sending: Hlýtur Car­b­fix Nýsköpunar­verð­laun Norður­landanna?

Atli Ísleifsson skrifar
Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna (Nordic Innovation Award) eru ný verðlaun sem hugverkastofur Norðurlandanna standi að í sameiningu til að vekja athygli á mikilvægi nýsköpunar og hugverkaverndar.
Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna (Nordic Innovation Award) eru ný verðlaun sem hugverkastofur Norðurlandanna standi að í sameiningu til að vekja athygli á mikilvægi nýsköpunar og hugverkaverndar.

Fimm norræn fyrirtæki eru tilnefnd til Nýsköpunarverðlauna Norðurlandanna sem afhent verða í fyrsta skipti á á ráðstefnu dönsku hugverkastofunnar í Kaupmannahöfn klukkan 12 í dag. Hugverkastofan hefur tilnefnt Carbfix til verðlaunanna fyrir Íslands hönd.

Hægt verður að fylgjast með útsendningu frá verðlaunahátíðinni í spilaranum að neðan.

Í tilkynningu frá Hugverkastofu segir að Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna (Nordic Innovation Award) séu ný verðlaun sem hugverkastofur Norðurlandanna standi að í sameiningu til að vekja athygli á mikilvægi nýsköpunar og hugverkaverndar.

Fyrirtækin fimm sem eru tilnefnd til verðlaunannar árið 2025 eru:

Ísland: Carbfix

Carbfix hefur þróað byltingarkennda og einkaleyfisvarða aðferð til að binda koltvísýring í bergi til að vinna gegn gróðurhúsaáhrifum

Danmörk: SiteCover

SiteCover hefur hefur þróað einkaleyfisvarðar yfirbyggingar fyrir byggingarstaði til að hægt sé að vinna við þurrar aðstæður óháð veðri. Uppistöður bygginganna virka einnig sem uppistöður fyrir hlaupaketti.

Finnland: Origin by Ocean

Origin by Ocean hefur þróað einkaleyfisvarðar aðferðir til að vinna ýmis efni úr brúnþörungum, m.a. fyrir snyrti- og matvælaiðnað.

Svíþjóð: GreenIron

GreenIron hefur þróað nýja og einkaleyfisvarða aðferð til að framleiða járn og aðra málma án þess að losa gróðurhúsalofttegundir.

Noregur: Cartesian

Cartesian hefur þróað nýja og einkaleyfisvarða aðferð til að geyma og miðla varmaorku í byggingum og þannig spara orku og orkukostnað.


„Dómnefnd sem skipuð er forstjórum hugverkastofa Íslands, Danmerkur, Svíþjóðar, Noregs og Finnlands, auk fulltrúa nýsköpunarsamfélagsins í hverju landi, mun velja eitt fyrirtæki sem hlýtur verðlaunin. Við mat á tilnefndum fyrirtækjum verður horft til fimm þátta:

  • Nýsköpun - Nýsköpunin verður að fela í sér nýja og frumlega nálgun, vísindi eða tækni, einstakar aðferðir eða skapandi lausnir við úrlausn vandamála.
  • Sjálfbærni - Nýsköpunin þarf að stuðla að aukinni sjálfbærni og framgangi heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna (SDG).
  • Viðskiptalegur lífvænleiki og vaxtarmöguleikar - Nýsköpunin þarf að skapa grundvöll fyrir raunhæfa og skalanlega viðskiptahugmynd sem líklegt er að skili arði til framtíðar.
  • Mælanlegur árangur – Sýna þarf fram á að nýsköpunin hafi skilað mælanlegum árangri, hvort sem það er í formi sölutekna, markaðssóknar, viðskiptaáætlana eða nýrrar og viðurkenndrar aðferðafræði.
  • Skráð hugverk – Nýsköpunin þarf að vera vernduð með skráðum hugverkaréttindum (einkaleyfi, vörumerki eða hönnun) á viðeigandi mörkuðum.

Markmið verðlaunanna er að hvetja og verðlauna norræn fyrirtæki sem þróað hafa framúrskarandi nýsköpunarhugmyndir og tryggt hugverkarétt sinn. Þeim er ætlað að stuðla að auknum skilningi á mikilvægi hugverkaréttar í nýsköpun og framlagi nýsköpunar til sjálfbærrar þróunar atvinnulífs og samfélags.

Hugverkastofan hefur ákveðið, í samráði við samstarfsaðila um Nýsköpunarverðlaun Íslands: Rannís, Íslandsstofu og Nýsköpunarsjóð atvinnulífsins, að það fyrirtæki sem hlýtur Nýsköpunarverðlaun Íslands hverju sinni verði tilnefnt fyrir Íslands hönd til Nýsköpunarverðlauna Norðurlandanna,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×