Björgvin Páll strax kallaður aftur í landsliðið Sindri Sverrisson skrifar 9. mars 2025 11:37 Björgvin Páll Gústavsson er mættur aftur í íslenska landsliðshópinn fyrir leikina við Grikki. vísir/Anton Viktor Gísli Hallgrímsson verður ekki með íslenska landsliðinu í komandi leikjum gegn Grikkjum í undankeppni EM, vegna meiðsla. Björgvin Páll Gústavsson hefur því verið kallaður inn í hans stað. Meiðslalisti íslenska liðsins er orðinn óhemju langur.
Það verður því tuttugu ára aldursmunur á markvarðapari Íslands því fyrir er í íslenska hópnum nýliðinn Ísak Steinsson sem mun feta í fótspor afa síns, Sigurgeirs Sigurðssonar, með því að spila sína fyrstu A-landsleiki. Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari hafði sagt að eflaust væri Björgvin Páll hundfúll með að fá ekki sæti í hópnum gegn Grikkjum en nú er orðið ljóst að hann verður með eftir allt saman. Íslenski hópurinn kemur saman í dag og á morgun í Grikklandi og hefur þá formlegan undirbúning fyrir leik liðanna sem er á miðvikudaginn klukkan 17. Seinni leikurinn er svo í Laugardalshöll næsta laugardag klukkan 16. Ísland hefur unnið báða leiki sína til þessa í undankeppninni og er í góðum málum í undankeppninni fyrir EM sem fram fer í Danmörku, Svíþjóð og Noregi í byrjun næsta árs. Riðill Íslands verður í Kristianstad í Svíþjóð, nema svo ólíklega fari að Ísland komist ekki á mótið. Afar mikið er um meiðsli í íslenska hópnum og því mikið um forföll. Lykilmenn eins og Gísli Þorgeir Kristjánsson, Ómar Ingi Magnússon og Elvar Örn Jónsson eru ekki með. Viggó Kristjánsson er einnig meiddur sem og Teitur Örn Einarsson, svo að þrjár af helstu hægri skyttum liðsins eru úr leik vegna meiðsla. Línumaðurinn Arnar Freyr Arnarsson er að komast af stað aftur eftir meiðsli og þeir Sveinn Jóhannsson og Bjarki Már Elísson, sem báðir voru í HM-hópnum, eru einnig ekki með núna en báðir meiddust á mótinu.
Landslið karla í handbolta EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Segja einn mann hafa séð um að aflétta banni Balogun Fótbolti „Er að fara vinna þennan gullskó og ég er að fara slá markametið“ Íslenski boltinn Goðsögn tekur við eftir vonbrigðin á HM Fótbolti Lárus Orri: „Erum í bullandi fallbaráttu“ Íslenski boltinn Liðin fjögur eftir sem FIFA vildi að gætu mæst í undanúrslitum Fótbolti McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Sport Þjálfarinn rekinn eftir hótun leikmanns Fótbolti „Þessi sigur sýnir hvað hópurinn er þéttur“ Fótbolti FIFA: Örflagan sýnir enga snertingu við vírinn Fótbolti Haaland eldri hraunar yfir dómarana Fótbolti Fleiri fréttir Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Sjá meira