Gauti bjargaði stigi en ÍR færist fjær botninum Sindri Sverrisson skrifar 8. mars 2025 15:38 Gauti Gunnarsson skoraði sjö mörk í dag og þar á meðal tvö á lokamínútunni. VÍSIR/VILHELM ÍR missti sigurinn úr höndunum á lokamínútu leiksins við ÍBV í Eyjum í dag, í Olís-deild karla í handbolta, er liðin gerðu 33-33 jafntefli. Haukar unnu risasigur gegn botnliði Fjölnis, 37-18, í Grafarvogi.
Það var Gauti Gunnarsson sem sá til þess að ÍR-ingar færu ekki með bæði stigin heim frá Eyjum í dag, með því að skora tvö af sjö mörkum sínum á lokamínútunni. Samkvæmt HB Statz skoraði Gauti jöfnunarmarkið úr hægra horninu þegar örfáar sekúndur lifðu leiks. Eyjamenn höfðu þó verið 30-28 yfir þegar átta mínútur voru eftir en ÍR-ingar þá skorað fjögur mörk í röð og verið nær sigrinum. ÍBV var 17-16 yfir í hálfleik. ÍR er núna með 11 stig eftir 20 leiki af 22, í 10. sæti deildarinnar. Liðið er stigi fyrir ofan Gróttu sem á leik til góða en Fjölnir er neðst með átta stig. Neðsta liðið fellur beint niður um deild en liðið í næstneðsta sæti fer í umspil við lið úr næstefstu deild, samkvæmt nýjum reglum sem samþykktar voru á síðasta ári. ÍR-ingar eru því langt komnir með að forðast botnsætið en eiga enn á hættu að lenda í fallumspilinu. ÍBV er hins vegar með 21 stig í 6. sæti deildarinnar. Haukar eru sæti ofar með 24 stig eftir sigurinn örugga í Grafarvogi. Sveinn José Rivera var markahæstur hjá ÍBV í dag með níu mörk en Gauti kom næstur með sjö. Hjá ÍR voru Baldur Fritz Bjarnason og Bernard Kristján Owusu Darkoh markaæhstir með tíu mörk hvor. Í Grafarvoginum var Sigurður Snær Sigurjónsson markahæstur Hauka með átta mörk en Skarphéðinn Ívar Einarsson skoraði sjö og Össur Haraldsson sex. Hjá heimamönnum var þjálfarinn Gunnar Steinn Jónsson markahæstur með fjögur mörk.
Olís-deild karla Mest lesið Segja einn mann hafa séð um að aflétta banni Balogun Fótbolti Kærastan birti viðbjóðinn: Sörloth sagt að fremja sjálfsvíg eftir tapið á HM Fótbolti Goðsögn tekur við eftir vonbrigðin á HM Fótbolti „Er að fara vinna þennan gullskó og ég er að fara slá markametið“ Íslenski boltinn Liðin fjögur eftir sem FIFA vildi að gætu mæst í undanúrslitum Fótbolti Lárus Orri: „Erum í bullandi fallbaráttu“ Íslenski boltinn Þjálfarinn rekinn eftir hótun leikmanns Fótbolti McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Sport „Þessi sigur sýnir hvað hópurinn er þéttur“ Fótbolti FIFA: Örflagan sýnir enga snertingu við vírinn Fótbolti Fleiri fréttir Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Sjá meira