Innlent

Hafa lagt fram stjórn­sýslu­kæru vegna grænu vöruskemmunnar

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Græna vöruskemman er í um fjórtán metra fjarlægð frá fjölbýlishúsi Búseta.
Græna vöruskemman er í um fjórtán metra fjarlægð frá fjölbýlishúsi Búseta. Vísir/Vilhelm

Búseti hefur lagt fram stjórnsýslukæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála vegna grænu vöruskemmunar við Álfabakka 2. Í kærunni er farið fram á að framkvæmdirnar verði stöðvaðar. Niðurstöðu er að vænta innan fárra vikna.

Græna vöruskemman sem rís við Álfabakka hefur varla farið fram hjá neinum en kraftmikil umræða hefur átt sér stað um málið, ekki síst vegna íbúanna sem nú sjá aðeins grænt út um gluggann. Vöruhúsið er staðsett í um fjórtán metra fjarlægð frá fjölbýlishúsi Búseta. Morgunblaðið greindi frá því í morgun að Búseti hefði nú lagt fram stjórnsýslukæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Erlendur Gíslason hæstaréttarlögmaður gætir hagsmuna Búseta.

„Kæran snýst um að ákvörðun byggingafulltrúa um að synja stöðvun framkvæmda við Álfaabakka verði felld úr gildi. Við fórum fram á það í desember en synjunin varð 20. desember. Búseti telur skipta máli að þó að framkvæmdirnar séu langt komnar þá séu þær engu að síður stöðvaðar svo hægt sé að bregðast við og grípa til einhverra ráðstafana sem lýst hefur verið yfir af Reykjavíkurborg og fleirum; að sé hægt að draga úr umfangi byggingarinnar og það er auðveldara að gera það ef framkvæmdirnar eru stöðvaðar heldur en ef þær halda áfram,“ segir Erlendur.

Í ljósi þess að forsvarsmenn Búseta fara í kærunni fram á að framkvæmdir verði stöðvaðar þarf nefndin að taka kæruna fyrir svo fljótt sem auðið er.

„Við vonumst til þess að það verði innan fárra vikna. Við skilum inn kærunni um miðjan janúar og Reykjavíkurborg er nýbúin að fá að skila athugasemdum, fékk vikufrest til þess, þannig að við vonum að nefndin taki sér ekki margar vikur til þess að taka ákvörðun.“


Tengdar fréttir

Högum þykir miður að byggingin valdi óþægindum

Forstjóri Haga segir félaginu þykja miður að byggingin við Álfabakka 2, sem félagið hyggst leigja undir ákveðinn hluta starfsemi sinnar, valdi óþægindum fyrir nágranna og hafi fullan skilning á sjónarmiðum íbúa sem fram hafa komið eftir að byggingin reis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×