Innlent

Enn ekkert að frétta á skrif­stofu Ríkis­sak­sóknara

Árni Sæberg skrifar
Sigríður Friðjónsdóttir og Helgi Magnús Gunnarsson hafa starfað saman um áratugaskeið. Nú starfa þau aðeins saman að nafninu til.
Sigríður Friðjónsdóttir og Helgi Magnús Gunnarsson hafa starfað saman um áratugaskeið. Nú starfa þau aðeins saman að nafninu til. Vísir/Vilhelm

Vararíkissaksóknari segist enn engin verkefni fá í vinnunni hjá embætti Ríkissaksóknara. Boltinn sé hjá dómsmálaráðherra. Dómsmálaráðherra segir málið í vinnslu.

Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari greindi frá því skömmu fyrir jól að hann væri kominn aftur til starfa hjá Ríkissaksóknara, eftir hafa verið frá störfum frá því síðasta sumar, fyrst að kröfu Sigríðar J. Friðjónsdóttur ríkissaksóknara og svo í skömmu veikindaleyfi.

Frá því að hann kom aftur til starfa, eftir að þáverandi dómsmálaráðherra ákvað að verða ekki við kröfu Sigríðar um að honum yrði vikið úr starfi, hafi hann ekki fengið neinum verkefnum úthlutað. Þannig hafi hann mætt til vinnu en ekki haft neitt fyrir stafni. Fyrir það fær hann full laun.

Ekkert nýtt í málinu mánuði síðar

Í samtali við Vísi segir Helgi Magnús ekkert nýtt að frétta af skrifstofu Ríkissaksóknara, hann fái enn engum verkefnum úthlutað. „Boltinn er hjá ráðherra,“ segir hann.

Sá ráðherra er Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra. Hún fékk málið í fangið þegar ný ríkisstjórn var mynduð rétt fyrir jól. Þá sagði hún í samtali við fréttastofu að sú staða sem væri uppi hjá embættinu gæti ekki staðið í langan tíma. Bagalegt væri að þau Helgi Magnús og Sigríður gætu ekki unnið saman.

Búin að taka einn fund 

Þorbjörg Sigríður sagði á dögunum að hún hefði fundað með þeim Helga Magnúsi og Sigríði um málið. Að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun ræddi hún við Heimi Má Pétursson fréttamann og sagði í raun ekkert nýtt að frétta af málinu.

Hún hefði ekki fundað aftur með aðilum málsins. Málið væri til í vinnslu inni í ráðuneytinu og starfsmenn þess að rýna í möguleika í stöðunni. Ljóst væri að afgreiðsla þess megi ekki taka of langan tíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×