Ljóst hvar stórmótin í kringum HM á Íslandi verða Sindri Sverrisson skrifar 14. desember 2024 13:32 Íslenskir stuðningsmenn hafa verið duglegir að fjölmenna á stórmót. vísir/Vilhelm Handknattleikssamband Evrópu, EHF, greindi frá því í dag hvar EM karla 2030 og 2032 verða haldin, og hvar EM kvenna 2032 verður haldið. Engar þjóðir sóttu um að halda EM kvenna 2030 og því óvíst hvar það fer fram.
Bæði karla- og kvennalandslið Íslands eru nú farin að gera sig gildandi á Evrópumótum og því vel hægt að ímynda sér að Íslendingar ferðist á stórmótin sem hér um ræðir. Strákarnir okkar hafa komist á hvert einasta EM frá og með árinu 2000 og er búið að raða þeim í riðil í Kristianstad í Svíþjóð á næsta EM, sem fram fer í janúar 2026. Eftir niðurstöðu EHF í dag eru þetta næstu gestgjafar EM karla: 2026: Danmörk, Noregur og Svíþjóð (úrslitahelgin í Herning) 2028: Portúgal, Spánn og Sviss (úrslitahelgin á Spáni) 2030: Tékkland, Pólland og Danmörk (úrslitahelgin í Prag) 2032: Þýskaland og Frakkland (úrslitahelgin í Þýskalandi) Áður hafði komið fram að strákarnir okkar yrðu á heimavelli á HM 2031 því Ísland mun halda það mót ásamt Noregi og Danmörku, að því gefnu að ný þjóðarhöll verði þá risin. EHF þarf að finna gestgjafa 2030 Stelpurnar okkar léku á EM sem brátt er að ljúka og farið hefur fram í Ungverjalandi, Sviss og Austurríki, og var það fyrsta Evrópumót þeirra síðan árið 2012. Rússar áttu að halda næsta Evrópumót en það var tekið af þeim eftir innrás þeirra í Úkraínu. Gestgjafar næstu Evrópumóta kvenna eru: 2026: Tékkland, Pólland, Rúmenía, Slóvakía og Tyrkland 2028: Danmörk, Noregur og Svíþjóð 2030: Engin umsókn og í höndum framkvæmdaráðs EHF að ákveða 2032: Þýskaland, Danmörk og Pólland (úrslitahelgin í Þýskalandi)
Landslið kvenna í handbolta Landslið karla í handbolta Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Íslenski boltinn Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Enski boltinn Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Handbolti Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn „Af öllum stöðum þá er KA-heimilið alltaf best“ Sport Fleiri fréttir Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Sjá meira