Landsliðstreyjan ekki í sölu fyrir jól Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 11. desember 2024 13:30 Landsliðstreyjan fer ekki í jólapakkana í ár. hsí Ný landsliðstreyja HSÍ fer ekki í sölu fyrir jólin en stefnt er að því að hefja sölu á henni áður en HM karla hefst í næsta mánuði.
Þegar Vísir ræddi við Róbert Geir Gíslason, framkvæmdastjóra HSÍ, 20. nóvember, sama dag og nýr búningasamningur HSÍ og Adidas var kynntur, sagðist að það kæmi von bráðar í ljós hvar og hvenær nýja treyjan færi í sölu. „Það er í fullum undirbúningi eins og staðan er. Við vonum að við getum tilkynnt í næstu viku hvar hún fæst. Við leggjum gríðarlega áherslu á að hún fari sem fyrst í sölu og sem víðast,“ sagði Róbert. Það hefur eitthvað tafist en samkvæmt tilkynningu frá HSÍ eru margvíslegar ástæður fyrir því að treyjan fer ekki í sölu fyrir jólin. Í viðtalinu við Róbert sagði hann að það væri ekki jafn fjárhagslega nauðsynlegt fyrir HSÍ og áður að treyjan seljist sem mest. „Nei, það er bara mikilvægt fyrir okkur að geta boðið upp á treyjuna okkar sem við erum stoltir af og fyrir aðdáendur okkar. Ólíkt fyrri samningum er ekki það ekki úrslitaatriði fjárhagslega fyrir okkur að hún seljist sem mest en það er að sjálfsögðu von okkar. Það er munur á eðli samningsins,“ sagði Róbert en að hans sögn er samningurinn við Adidas langstærsti búningasamningur sem HSÍ hefur gert. Kvennalandslið Íslands spilaði í nýja búningnum á Evrópumótinu sem nú stendur yfir. Heimsmeistaramót karla hefst svo 14. janúar. Fyrsti leikur Íslands á mótinu er gegn Grænhöfðaeyjum 16. janúar.
Landslið karla í handbolta Landslið kvenna í handbolta HSÍ Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Íslenski boltinn „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Enski boltinn Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Handbolti Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn „Af öllum stöðum þá er KA-heimilið alltaf best“ Sport Fleiri fréttir Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Sjá meira