Aubameyang hlóð í tvennu í fyrsta byrjunarliðsleiknum í La Liga Arnar Geir Halldórsson skrifar 20. febrúar 2022 17:10 Marki fagnað með glæsibrag. vísir/Getty Pierre-Emerick Aubameyang stimplaði sig inn af krafti í spænsku úrvalsdeildina í dag þegar Barcelona sótti Valencia heim og vann stórsigur. Þetta var fyrsti byrjunarliðsleikur Aubameyang í deildinni síðan hann gekk í raðir félagsins á lokadegi félagaskiptagluggans í janúar og hann sá um að koma Barcelona á bragðið með marki eftir 23 mínútna leik. Skömmu síðar, eða á 32.mínútu tvöfaldaði Frenkie De Jong forystuna fyrir Börsunga eftir stoðsendingu frá Ousmane Dembele. Börsungar léku við hvurn sinn fingur í fyrri hálfleik og Aubameyang var aftur á skotskónum á 38.mínútu þegar hann skoraði eftir undirbúning spænska ungstirnisins Gavi. Hálfleikstölur 0-3 og úrslitin svo gott sem ráðin. Heimamenn byrjuðu þó síðari hálfleik af krafti því Carles Soler minnkaði muninn á 52.mínútu. Pedri sá hins vegar um að gera út um leikinn þegar hann skoraði fjórða mark gestanna frá Katalóníu á 63.mínútu og öruggur 1-4 sigur Barcelona staðreynd. Mikilvæg stig í baráttunni um Meistaradeildarsæti fyrir Barcelona sem situr nú í 4.sæti deildarinnar með 42 stig, stigi á eftir Real Betis sem situr í 3.sæti. Spænski boltinn
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti