Körfubolti

Elvar góður og með aðra hönd á verðlaunagrip

Sindri Sverrisson skrifar
Elvar Már Friðriksson er lykilmaður í toppliðinu í Svíþjóð.
Elvar Már Friðriksson er lykilmaður í toppliðinu í Svíþjóð. vísir/getty

Elvar Már Friðriksson átti flottan leik í kvöld fyrir Borås sem er með aðra hönd á deildarmeistarabikarnum í sænska körfuboltanum.

Borås er með 54 stig og sex stiga forskot á Luleå þegar aðeins fimm umferðir eru eftir.

Í kvöld vann Borås 105-78 útisigur á Nässjö og var Elvar atkvæðamikill í leiknum. Hann skoraði 20 stig og var næststigahæstur, átti fjórar stoðsendingar og tók þrjú fráköst.

Þetta var tíundi sigurleikur Borås í röð gegn Nässjö sem er í 8. sæti af 12 liðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×