Körfubolti

Martin með tvö­falda tvennu í sigri á topp­liðinu

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Martin Hermannsson var öflugur í kvöld.
Martin Hermannsson var öflugur í kvöld. Getty Images/Regina Hoffmann

Martin Hermansson átti virkilega fínan leik þegar Alba Berlín lagði Ulm í efstu deild þýska körfuboltans.

Alba vann leikinn með 8 stiga mun, lokatölur 96-88. Martin og Trevian Williams voru einu leikmenn Alba sem skiluðu tvöfaldri tvennu í kvöld en það var þó ekki í sömu flokkum.

Williams var stigahæstur með 23 stig ásamt því að taka flest fráköst eða 11 talsins. Martin var hins vegar stoðsendingahæstur með 11 slíkar ásamt því að skora 11 stig sjálfur og taka eitt frákast.

Alba Berlín hefur ekki byrjað tímabilið frábærlega og er nú í 11. sæti með þrjá sigra í fyrstu sjö leikjum tímabilsins. Ulm er eitt af betri liðum deildarinnar en liðið jafnt Bayern á toppnum með fimm sigra og tvö töp.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×