HK endurheimti toppsæti Inkasso deildarinnar með sigri á Haukum. Víkingur Ólafsvík komst upp að hlið ÍA í öðru sætinu og Selfoss vann Njarðvík fyrir austan fjall.
HK mátti teljast lánsamt að sleppa með jafntefli gegn ÍR í Breiðholtinu í síðustu umferð í leik sem fyrir fram hefði átt að vera nokkuð þægilegur sigur Kópavogsbúa miðað við stöðu liðanna í deildinni.
Mun betur gekk í kvöld á heimavelli þeirra í Kórnum þegar Haukar mættu í heimsókn. Brynjar Jónasson kom HK yfir eftir 19 mínútur eftir stoðsendingu Bjarna Gunnarssonar.
Bjarni sá svo sjálfur um að ganga frá leiknum í seinni hálfleik. Hann skoraði fyrra mark sitt og annað mark HK á 54. mínútu og bætti þriðja marki HK við á 67. mínútu. Öruggur 3-0 sigur og toppsætið í höfn.
Víkingur Ólafsvík heldur í við efstu liðin og jafnaði ÍA að stigum í öðru sæti deildarinnar með sigri á Fram í Ólafsvík.
Kwame Quee kom heimamönnum yfir á 19. mínútu eftir undirbúning Kristins Magnúsar Péturssonar. Áður en fyrri hálfleikur var úti hafði Víkingur bætt við og þar var Kristinn Magnús aftur á ferð, í þetta skipti skoraði hann sjálfur. Boltinn hafði þó viðkomu í varnarmanni Fram áður en hann fór í netið.
Útlitið varð enn verra fyrir Framara í seinni hálfleik þegar Alex Freyr Elísson var rekinn af velli með rautt spjald á 76. mínútu.
Það átti þó eftir að verða mikil dramatík undir lokin. Í uppbótartíma fékk Fram vítaspyrnu. Guðmundur Magnússon fór á punktinn og skoraði. Framarar komust þó ekki nær og urðu að sætta sig við 2-1 tap.
Á Selfossi unnu heimamenn sterkan sigur á Njarðvík í slag liða í neðri hluta deildarinnar. Kristófer Páll Viðarsson kom Selfyssingum yfir snemma leiks og var staðan 1-0 í hálfleik.
Eftir þrjár mínútur í seinni hálfleik kom Gilles Ondo heimamönnum í 2-0 og Ivan Martinez Gutierrez bætti þriðja markinu við á 60. mínútu og virtist gera út um leikinn.
Sú var þó heldur betur ekki raunin. Sjö mínútum síðar skoraði Magnús Þór Magnússon mark fyrir gestina úr Njarðvík og á 70. mínútu nældi Arnór Bjarnason í vítaspyrnu fyrir Njarðvík. Andri Fannar Freysson fór á punktinn en þrumaði boltanum í slánna.
Njarðvíkingar héldu áfram að sækja og reyndu hvað þeir gátu að minnka muninn en það tókst ekki, Selfyssingar bættu í staðinn við fjórða markinu og lokatölur á Selfossi 4-1.
Úrslit kvöldsins:
HK - Haukar 3-0
Víkingur Ó. - Fram 2-1
Selfoss-Njarðvík 4-1
Upplýsingar um úrslit og markaskorara eru fengnar frá Fótbolta.net.
HK aftur á toppinn eftir öruggan sigur
Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar

Mest lesið






Svona verður enski boltinn á Stöð 2 Sport
Enski boltinn

Arnar spilaði með besta „pöbbaliði“ Bretlands
Enski boltinn


