Nauðguðu íslenskri landsliðskonu í keppnisferðalagi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. janúar 2018 12:30 Tinna Óðinsdóttir. Vísir/EPA
Fimleikakonan Tinna Óðinsdóttir hefur sagt frá skelfilegri reynslu sinni í keppnisferðalagi með íslenska landsliðinu í fimleikum. Fimleikasamband Íslands fékk nýverið að vita af þessu máli en þetta er í fyrsta sinn sem Tinna segir frá þessu opinberlega. Atvikið gerðist þegar Tinna var 22 ára gömul. Hún var þá stödd í Þýskalandi þar sem henni var nauðgað af keppenda frá öðru landi. Tinna sagði Nútímanum frá sögu sinni.Ellefu sinnum bikarmeistari Tinna á að baki flottan feril í fimleikunum en hún var í íslenska landsliðinu sem varð Norðurlandameistari árið 2016. Í mars á síðasta ári náði hún því að verða bikarmeistari í fimleikum í ellefta sinn og er nú sigursælasti keppandi bikarmótsins. Hún hefur unnið titlana með Gerplu (10) og Björk (1) en upphaflega kemur hún frá Akureyri. Íslenskar íþróttakonur hafa síðustu daga sagt frá kynferðislegri áreitni og ofbeldi sem þær hafa orðið fyrir í íþróttaheiminum. Tinna bætist nú í þann hóp.Tinna á heimsmeistaramótinu í áhaldafimleikum í Belgíu árið 2013.Vísir/GettyAndrúmsloftið gjörbreyttist þegar fólk fór að týnast heim „Á lokahófinu var ég með mínum vinum og var að hafa gaman. Þetta var síðasta mótið á tímabilinu og við fórum á skemmtistað með öllum keppendum mótsins. Það var mjög gaman og það voru strákar frá öðru landi með okkur sem svo þróaðist út í að þeir buðu okkur stelpunum upp á hótel þar sem að skemmtistaðurinn var að loka,“ segir Tinna í viðtalinu við Nútímann. Þær fóru upp á hótel og skemmtu sér vel í fyrstu en andrúmsloftið gjörbreyttist þegar fólk fór að týnast heim. Tinna lýsir því hvernig mennirnir, sem voru landsliðsmenn frá öðru landi, héldu henni niðri og reyndu að kyssa hana. Tveir menn héldu Tinnu niðri á meðan sá þriðji nauðgaði henni og hún segist hafa gefist upp eftir að hafa ítrekað sagt þeim að hætta. „Það á alveg að vera nóg. Þeir gerðu sér alveg grein fyrir hvað þeir voru að gera. Ég varð alveg máttlaus og ég gerði mér grein fyrir því að ég var ekki að fara að komast neitt í bráð,“ segir hún.Tinna á að baki flottan feril í fimleikunum en hún var í íslenska landsliðinu sem varð Norðurlandameistari árið 2016.Vísir/EPAAldrei liðið jafn skítugri á ævinni Mennirnir hentu loks fötunum í hana og hleyptu henni út. „Mér hefur aldrei liðið jafn skítugri á ævinni. Hann henti mér inn í lyftuna og ég hugsaði með mér: „Þetta er ekki búið. Þetta er rétt að byrja“ og á því augnabliki var mér eiginlega alveg sama. Það var búið að skemma mig og ég var ekki hrædd lengur. Ég var alveg dofin.“ Tinna var 22 ára gömul þegar atvikið átti sér stað og segir að líf sitt hafi hrunið. Hún var búsett í Danmörku á þessum tíma og fór þangað með flugi daginn eftir. Landsliðshópurinn fór hins vegar til Íslands þannig að hún hitti þau ekki meira í ferðinni. Kærastinn hennar sótti hana á flugvöllinn og hún ræddi ekkert um það sem hafði gerst daginn áður. Það er ekki langt síðan Tinna sagði forsvarsfólki Fimleikasambands Íslands frá reynslu sinni og segist hún hafa fengið mikinn stuðning úr þeirri átt Það má lesa allt viðtalið við hana hér.
Fimleikar MeToo Mest lesið Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Er búinn að glíma við þunglyndi Fótbolti „Stúkan er of þögul“ Fótbolti Nottingham Forest hafnar tilboði Manchester City Fótbolti Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Handbolti Danir andlausir gegn Kongó Fótbolti Dagskráin í dag: Golf og vináttulandsleikir Sport Ein karfa skildi liðin að Körfubolti Enn eitt sjokkið í París: „Ég vil bara hætta í tennis núna“ Sport „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Körfubolti Fleiri fréttir „Þetta hefur verið ótrúlega erfitt“ Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Er búinn að glíma við þunglyndi Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Dagskráin í dag: Golf og vináttulandsleikir Nottingham Forest hafnar tilboði Manchester City „Stúkan er of þögul“ Ítali í úrslitaleik Opna franska mótsins ÍBV riftir samning Filip Stuparevic Tryggði sigurinn með glæsimarki Danir andlausir gegn Kongó Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Ein karfa skildi liðin að Jafnir leikir hjá Íslendingunum Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Verða fleiri framúrakstrar í Mónakó? Enn eitt sjokkið í París: „Ég vil bara hætta í tennis núna“ Lofar nýjum stjörnuleikmanni í Real Madrid á morgun Getur Wemby bjargað NBA? Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur Öskubuskuævintýri í gangi í París Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Fékk nýjan samning en Ferrari gefur ekki upp árafjöldann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Messi æfði einn viku fyrir Íslandsleikinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið Sjá meira