Stefán mættur með sínar stelpur í fimmta úrslitaleikinn á sex árum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. desember 2015 14:30 Stefán Arnarson, þjálfari Fram. Vísir/Valli
Stefán Arnarson og stelpurnar hans í Fram slógu út Íslands-, deildar- og bikarmeistara Gróttu í undanúrslitum deildarbikars Flugfélags Íslands í gær og mæta Val í úrslitaleiknum klukkan 18.30 í kvöld. Framkonur eiga titil að verja því þær unnu Stjörnuna í úrslitaleik fyrir ári síðan. Fram og Valur eru bæði neðar en liðin sem þau slógu út í gær, Grótta og ÍBV. Valskonur virðast vera komnar með tak á liði gamla fyrirliða síns Hrafnhildar Skúladóttur því Valsliðið burstaði ÍBV í deildarleik liðanna í lok október. Lið Stefáns Arnarsonar þekkja það mjög vel að komast í úrslitaleik á milli jóla og nýárs en þau hafa verið þar fimm sinnum á síðustu sex árum. Stefán Arnarson stýrði áður Valsliðinu sem fór í úrslitaleikinn þrjú ár í röð frá 2010 til 2012. Hann tók síðan við liði Fram sumarið 2014 og vann deildarbikarinn á fyrsta tímabili. Valskonur unnu tvo af þremur úrslitaleikjum sínum undir stjórn Stefáns, 23-22 sigur á Fram 2010 og 30-25 sigur á Fram 2011. Valsliðið tapaði aftur á móti í úrslitaleik á móti Fram 2012. Lið Fram og Vals þekkja það vel að spila til úrslita í deildarbikar kvenna en þetta verður fimmti úrslitaleikur félaganna í keppninni síðan að hún var fyrst spiluð á milli jóla og nýárs í desember 2007. Liðin mættust 2007, 2010, 2011, 2012 og nú 2015.Þjálfarar með lið í úrslitaleik deildarbikars kvenna frá 2010: 5 - Stefán Arnarson (Valur 2010, 2011, 2012, Fram 2014, 2015) 2 - Einar Jónsson (Fram 2010, 2011) 1 - Alfreð Örn Finnsson (Valur 2015) 1 - Ragnar Hermannsson (Stjarnan 2014) 1 - Skúli Gunnsteinsson (Stjarnan 2013) 1 - Kári Garðarsson (Grótta 2013) 1 - Halldór Jóhann Sigfússon (Fram 2012)
Olís-deild kvenna Mest lesið Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Íslenski boltinn Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust Körfubolti Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Íslenski boltinn Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Stelpurnar okkar hálfa leið á HM með sigri Fótbolti Sara Björk snýr heim í Hauka Íslenski boltinn Er búinn að glíma við þunglyndi Fótbolti „Eins og fjölskylda í sólarlandaferð“ Fótbolti Fleiri fréttir Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Sjá meira