Rakst í Hernandez og var drepinn Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 29. maí 2014 23:30 Vísir/Getty
Saksóknari í einni lögsókninni gegn Aaron Hernandez, fyrrum NFL-leikmanni, fullyrðir að lítið hafi þurft til að reita hann til mikillar reiði. Hernandez var fangelsaður í fyrra þegar hann var grunaður um að hafa myrt Odin Lloyd þann 17. júní í fyrra. Stuttu síðar vöknuðu grunsemdir um að hann hefði átt þátt í tvöföldu morði sem átti sér stað í Boston í fyrra og var hann nýlega ákærður fyrir þau. Hernandez var á mála hjá New England Patriots og skrifaði undir nýjan fimm ára samning við liðið aðeins sex vikum eftir að morðin í Boston áttu sér stað. Samningurinn hefði tryggt Hernandez 40 milljónir Bandaríkjadala í tekjur á samningstímanum. Aðdragandi morðanna, eins og saksóknari lýsti honum, var með ólíkindum. Hernandez var staddur á næturklúbbi með vinum sínum þegar ókunnugur maður rakst óvart í hann með þeim afleiðingum að hann hellti niður drykknum sínum. Fullyrt var að Hernandez hafi túlkað þetta sem svo að maðurinn, Daniel de Abreu, hafi gert þetta viljandi til að egna hann og vanvirða. Samkvæmt frásögn saksóknara mun Abreu hafa rekið sig í Hernandez á dansgólfinu, brosað til hans og vikið sér svo frá honum án þess að biðjast afsökunar. Abreu gerði sér ekki grein fyrir því hver Hernandez væri. Þegar Abreu keyrði svo í burtu frá skemmtistaðnum ásamt tveimur félögum sínum veitti Hernandez honum eftirför og dró upp byssu þegar bílarnir námu staðar við umferðarljós. Hann er svo sakaður um að hafa skotið bæði Abreu og Safiro Furtado, sem sat í farþegasætinu, til bana og sært annan sem sat í baksætinu. Óvíst er hvort morðmálin tvö tengist en þó er staðfest að Lloyd er ekki þriðji maðurinn sem sat í bíl Abreu. Hernandez var rekinn frá Patriots sama dag og hann var handtekinn.
NFL Tengdar fréttir Lögreglan fann leyniíbúð Hernandez Sönnunargögnin halda áfram að hlaðast upp gegn NFL-leikmanninum Aaron Hernandez en hann var handtekinn og ákærður fyrir morð um daginn. 4. júlí 2013 13:30 Fær ekki að horfa á leikinn í steininum Aaron Hernandez, fyrrum leikmaður New England Patriots, fær ekki að horfa á sitt gamla lið spila til úrslita í AFC-deildinni í NFL annað kvöld. 18. janúar 2014 23:30 Hernandez verður handtekinn fljótlega Samkvæmt heimildum bandarískra fjölmiðla virðast það ekki vera spurning um hvort heldur hvenær Aaron Hernandez, leikmaður New England Patriots, verður handtekinn út af morðmáli. 23. júní 2013 14:15 Hernandez bendlaður við tvöfalt morð NFL-leikmaðurinn Aaron Hernandez virðist eiga langa fangelsisvist fyrir höndum en hann var í gær ákærður fyrir morð. 27. júní 2013 23:30 Hernandez lamdi mann í fangelsinu Fyrrum NFL-stjarnan, Aaron Hernandez, er ekki hættur að komast í fjölmiðla þó svo hann sitji á bak við lás og slá grunaður um morð. 27. febrúar 2014 23:30 Hernandez handtekinn og rekinn frá Patriots Aaron Hernandez, einn besti innherji NFL-deildarinnar, var í dag handtekinn og ákærður fyrir morð. Lið hans, New England Patriots, tilkynnti í dag að Hernandez væri ekki lengur leikmaður þess. 26. júní 2013 18:48 Búið að ákæra Hernandez fyrir morð Aaron Hernandez, fyrrum leikmaður New England Patriots í NFL-deildinni, var í gær ákærður fyrir morð. Hann var einnig ákærður fyrir vörslu ólöglegra skotvopna. 23. ágúst 2013 16:30 Hernandez er toppmaður Það er ekki beint slegist um að taka upp hanskann fyrir Aaron Hernandez þessa dagana. Búið er að kæra hann fyrir morð og hann var í kjölfarið rekinn frá NFL-liðinu New England Patriots. 1. júlí 2013 23:00 Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Vinirnir deila heimsmetinu en hvorugur er sigurvegari Sport Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 98-90 | Fyrsti sigur Grindavíkur en Stjarnan bíður enn Körfubolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Fleiri fréttir Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Rúnar Ingi um bannið hans Veigars Páls: „Ég er bara niðurbrotinn sem þjálfarinn hans“ „Kærkominn“ og „lífsnauðsynlegur“ sigur „Ég hef áhyggjur en ég er ekki áhyggjufullur“ Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Uppgjörið: KR - Ármann 108-74 | Frystir í Frostaskjóli Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ „Vonandi ekki okkar einkennismerki“ „Af öllum stöðum þá er KA-heimilið alltaf best“ Hituðu upp fyrir United-leikinn með því að bursta AC Milan Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 98-90 | Fyrsti sigur Grindavíkur en Stjarnan bíður enn Uppgjörið: Njarðvík-Valur 85-93 | Ólík staða eftir öruggan Valssigur Orri Steinn skoraði í Evrópudeildinni „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Þrír Íslendingar í byrjunarliði Brann í Evrópusigri Uppgjörið: Höttur - ÍR 108-96 | Heimamenn sterkari í seinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Vinirnir deila heimsmetinu en hvorugur er sigurvegari Matthías hættur hjá Val Sýður á Hlyni eftir að met hans var bætt Vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili fyrrum markmanns PSG Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta Ömurleg menning hjá Man. Utd Sjá meira
Lögreglan fann leyniíbúð Hernandez Sönnunargögnin halda áfram að hlaðast upp gegn NFL-leikmanninum Aaron Hernandez en hann var handtekinn og ákærður fyrir morð um daginn. 4. júlí 2013 13:30
Fær ekki að horfa á leikinn í steininum Aaron Hernandez, fyrrum leikmaður New England Patriots, fær ekki að horfa á sitt gamla lið spila til úrslita í AFC-deildinni í NFL annað kvöld. 18. janúar 2014 23:30
Hernandez verður handtekinn fljótlega Samkvæmt heimildum bandarískra fjölmiðla virðast það ekki vera spurning um hvort heldur hvenær Aaron Hernandez, leikmaður New England Patriots, verður handtekinn út af morðmáli. 23. júní 2013 14:15
Hernandez bendlaður við tvöfalt morð NFL-leikmaðurinn Aaron Hernandez virðist eiga langa fangelsisvist fyrir höndum en hann var í gær ákærður fyrir morð. 27. júní 2013 23:30
Hernandez lamdi mann í fangelsinu Fyrrum NFL-stjarnan, Aaron Hernandez, er ekki hættur að komast í fjölmiðla þó svo hann sitji á bak við lás og slá grunaður um morð. 27. febrúar 2014 23:30
Hernandez handtekinn og rekinn frá Patriots Aaron Hernandez, einn besti innherji NFL-deildarinnar, var í dag handtekinn og ákærður fyrir morð. Lið hans, New England Patriots, tilkynnti í dag að Hernandez væri ekki lengur leikmaður þess. 26. júní 2013 18:48
Búið að ákæra Hernandez fyrir morð Aaron Hernandez, fyrrum leikmaður New England Patriots í NFL-deildinni, var í gær ákærður fyrir morð. Hann var einnig ákærður fyrir vörslu ólöglegra skotvopna. 23. ágúst 2013 16:30
Hernandez er toppmaður Það er ekki beint slegist um að taka upp hanskann fyrir Aaron Hernandez þessa dagana. Búið er að kæra hann fyrir morð og hann var í kjölfarið rekinn frá NFL-liðinu New England Patriots. 1. júlí 2013 23:00