Engin miðlæg skráning slysa í ferðaþjónustu Engin markviss skráning slysa og óhappa í ferðaþjónustu er fyrir hendi á Íslandi. Starfshópur leggur til að bætt verði úr með því með miðlægri skráningu. Hins vegar mælir starfshópurinn ekki með banni við jöklaferðum yfir sumartímann. Sérfræðingur segir aukið eftirlit og tryggari öryggisferla vænlegri lausn en boð og bönn. Innlent 9.11.2024 20:01
Herði kröfur um reynslu leiðsögumanna eftir banaslysið Starfshópur sem var skipaður eftir banaslys á Breiðamerkurjökli í sumar leggur til að auknar kröfur verði gerðar um menntun og reynslu leiðsögumanna. Mörg fyrirtæki sem bjóða upp á jöklaferðir hafi ekki leiðsögumenn með nauðsynlega menntun. Innlent 8.11.2024 15:09
Brá sér frá í sauðburð og kvíðinn ferðamaður flúði Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa féllst ekki á kröfu erlendrar konu, sem kom hingað til lands til að ferðast, um að fyrirtæki sem seldi henni gistingu skyldi endurgreiða henni hluta þess sem hún hafði greitt fyrirtækinu. Neytendur 8.11.2024 12:17
Er ferðaþjónusta útlendingavandamál? Píratar hafa nú greint meintan útlendingavanda og telja það vera ferðamanninn sem sækir okkur heim. Erlendur ferðamaður sem ekur um landið, gistir á hótelum, borðar góðan mat og sækir afþreyingu sem í boði er á hverjum stað. Skoðun 4. nóvember 2024 13:30
Er Kristófer talsmaður skyndilegrar skattheimtu á ferðaþjónustu? Í Morgunblaðinu í síðustu viku birti Kristófer Oliversson, formaður Fyrirtækja í hótel- og gistiþjónustu (FHG), svargrein við annarri grein undirritaðs sem Kristófer taldi ómálefnalega vegna aðdróttana um atvinnuróg annars vegar og hins vegar vegna staðhæfingar um að Kristófer ynni gegn hagsmunum ferðaþjónustunnar. Best er að hver dæmi fyrir sig hvað er málefnalegt og hvað ekki. Skoðun 1. nóvember 2024 09:00
Bein útsending: Haustfundur Landsvirkjunar Haustfundur Landsvirkjunar fer fram á Hótel Selfossi milli klukkan 13 og 15 í dag. Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinu streymi í spilara að neðan. Viðskipti innlent 30. október 2024 12:32
Nei eða já? Af eða á? Nú er það svo að ferðaþjónusta hefur á tiltölulega fáum árum vaxið í að vera ein af meginundirstöðum íslensks hagkerfis. Árið 2023 var hlutur ferðaþjónustu af verðmætasköpun landsins nærri 9% og útflutningstekjur samtals um 600 milljarðar, eða hvorki meira né minna en þriðjungur af heildarútflutningi Íslands. Skoðun 29. október 2024 14:45
Öryggi og sjálfbærni í ferðaþjónustu: Hvað segir ný könnun? Undanfarið hefur töluvert verið fjallað um mikilvægi landvarða og leiðsögumanna í íslenskri ferðaþjónustu en ný könnun sem unnin var meðal starfsmanna á þessu sviði varpar ljósi á þær áskoranir sem steðja að þessum mikilvægu stéttum. Skoðun 28. október 2024 10:01
„Erfitt að vera kominn á stað sem ég hélt að yrði minn hinsti hvíldarstaður“ Zak Nelson og Elliot Griffiths, breskir ferðamenn frá Norwich, lentu í alvarlegu bílslysi á Íslandi í vor, þegar þeir voru nýkomnir til landsins í draumafríið. Þeir sneru aftur til Íslands nú í október til að þakka starfsfólki Landspítalans lífsbjörgina. Við fylgdumst með tilfinningaþrungnum endurfundum í Íslandi í dag. Lífið 25. október 2024 11:32
Ætla að sækja einn og hálfan milljarð frá skemmtiferðaskipum Nýtt innviðagjald sem heimta á af erlendum skemmtiferðaskipum á að skila ríkissjóði 1,5 milljörðum króna umfram þær tekjur sem hann hefði annars fengið. Tilgangurinn er sagður að jafna samkeppnisstöðu innlendra og erlendra ferðaþjónustufyrirtækja. Viðskipti innlent 24. október 2024 10:45
Grindavík eins og „Tsjernobyl án kommúnisma“ Grindavíkurbær var opnaður fyrir almenningi klukkan sex í morgun. Bandarískir ferðamenn líkja bænum við Tsjernobyl án kommúnisma en formaður framkvæmdanefndar um málefni Grindavíkur viðurkennir að mistök hafi verið gerð við vinnslu bæklings með mikilvægum upplýsingum um öryggisatriði. Innlent 21. október 2024 20:00
Ferðaþjónustan og fyrirsjáanleikinn Tíminn leikur stórt hlutverk þegar kemur að ferðaþjónustunni sem atvinnugrein. Gestirnir okkar taka sér tíma í að láta sig dreyma, taka tíma í ákvörðun, tíma í að bóka og síðast en ekki síst tíma til að láta sig hlakka til. Skoðun 21. október 2024 14:32
Grindavíkurbær nú opinn almenningi Grindavíkurbær opnaði klukkan sex í morgun, en aðgengi að bænum hefur verið verulegum takmörkunum háð síðustu misserin vegna eldsumbrota. Ferðir fólks eru á eigin ábyrgð. Innlent 21. október 2024 07:55
Biðla til fólks að sýna virðingu í nýopnaðri Grindavík Frá og með klukkan sex í fyrramálið verður Grindavíkurbær opinn fyrir almennri umferð. Ferðamálastofa biðlar til fólks að sýna ábyrgð og virðingu þar sem enn er töluverð hætta á ferð. Innlent 20. október 2024 13:39
Fyrirtækin greiða ekki virðisaukaskatt Það er makalaust að heyra hvernig sumir stjórnmálamenn og nú síðast forseti ASÍ tala af fákunnáttu um ýmsa skatta og gjöld eins og t.d. virðisaukaskatt (VSK), sérstaklega þegar talað er um útflutningsgrein eins og ferðaþjónustu. Skoðun 16. október 2024 07:32
„Þokkaleg sátt“ um ný skilyrði fyrir íshellaferðum Framkvæmdastjóri Vatnajökulsþjóðgarðs segir þokkalega sátt ríkja hjá ferðaþjónustufyrirtækjum um ný skilyrði sem voru sett fyrir íshellaferðum eftir banaslys á Breiðamerkurjökli í sumar. Ferðir eru meðal annars háðar daglegu hættumati. Innlent 16. október 2024 07:02
Atvinnurógur Kristófers um skemmtiferðaskipageirann Í ár hefur íslensk ferðaþjónusta glímt við áskoranir vegna eldsumbrota, harðnandi samkeppni og verðlags en við þær aðstæður hefur geirinn venjulega þétt raðirnar og staðið vörð um orðspor Íslands sem áhugaverðs áfangastaðar. Skoðun 13. október 2024 09:30
Talið að snjór hafi villt um fyrir ferðamönnum Leit eftir tveimur hvítabjörnum við Laugarfell, norðaustan við Snæfell, sem erlendir ferðamenn tilkynntu um fyrr í dag hefur verið hætt. Lögreglan segir að mögulega hafi ferðamönnunum missýnst. Til að gæta fyllsta öryggis verður leit haldið áfram í birtingu í fyrramálið. Innlent 11. október 2024 21:08
Á sama tíma, á sama stað Fyrir ári síðan kom fram frumvarp til fjárlaga. Þar kom fram líkt og lengi hafði verið vitað að gistináttaskattur kæmi til framkvæmda á ný en hann hafði aðeins verið felldur niður tímabundið vegna heimsfaraldurs. Það kom því engum á óvart að hann tæki aftur gildi en það sem fylgdi einnig með í pakkanum – og kom á óvart – voru breytingar á skattinum til hækkunar. Þær breytingar voru endanlega lagðar fram mánuði fyrir gildistöku og skatturinn tvöfaldaðist! Þannig hækkaði þessi sértæki skattur á gististaði með nær engum fyrirvara. Skoðun 11. október 2024 12:33
Halda íshellaferðum áfram þrátt fyrir að fá ekki leyfi Ferðaþjónustufyrirtækið Niflheimar heldur áfram íshellaferðum þrátt fyrir að leyfi fyrirtækisins verði ekki endurnýjað og það hafi verið kært fyrir ólöglegar framkvæmdir í Breiðamerkurjökli. Eigandi Niflheima segir ferðirnar farnar undir leyfi annarra fyrirtækja. Innlent 11. október 2024 11:22
Kæra ferðaþjónustufyrirtæki fyrir framkvæmdir í íshellum Vatnajökulsþjóðgarður hefur kært ferðaþjónustufyrirtækið Niflheima til lögreglu fyrir framkvæmdir í íshellum í garðinum. Fyrirtækið hélt meðal annars við svelg í Breiðamerkurjökli þar sem erlendur ferðamaður lést í sumar. Innlent 10. október 2024 14:33
Ferðaþjónusturisi kaupir Fjaðrárgljúfur Íslenska ferðaþjónustufyrirtækið Arctic Adventures hefur fest kaup á Fjaðrárgljúfri. Forstjóri fyrirtækisins segir markmiðið að gera friðlýstu náttúruperluna aðgengilegri ferðamönnum á sama tíma og gætt sé að náttúrunni. Viðskipti innlent 10. október 2024 08:49
Í vandræðum í Bláa lóninu Ökumaður bíls komst í hann krappann á bílastæði Bláa lónsins í gær þegar bíll hans endaði úti í skurði. Bandarískur ferðamaður festi vandræðin á filmu. Lífið 10. október 2024 06:38
The Guardian fjallar um túrismann sem gleypi íslenska tónleikastaði Tíðindi af fækkun tónlistarstaða í Reykjavík þar sem listamenn á borð við Björk, Sigur Rós og Ólaf Arnalds stigu áður á stokk hafa ratað í heimsfréttirnar. The Guardian fjallar um hina miklu fjölgun ferðamanna og hótela sem hafi hreinlega gleypt minni tónleikastaði. Innlent 9. október 2024 16:13