

Á fundi borgarráðs lagði ég til fyrir hönd Flokks fólksins að reglur um strætókort handa nemendum í grunnskólum Reykjavíkurborgar yrðu rýmkaðar. Taka ætti mið af bæði lögheimili og búsetuheimili barns og að börn, sem sækja skóla í öðru skólahverfi en lögheimili þeirra segir til um, ættu einnig rétt á strætókorti.
Skólastarf í Fossvogsskóla mun allt fara fram í Fossvogsdal frá og með næsta skólaári. Ráðist verður í umfangsmiklar framkvæmdir á húsnæði skólans til þess að komast fyrir mygluvandræði sem plagað hafa skólastarfið að undanförnu.
Borgarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins líst ekkert á áform meirihlutans um að koma upp smáhýsum fyrir heimilislaust fólk í Laugardalnum og finnst að dalurinn eigi að „fá að vera í friði fyrir íbúðaáformum“. Meirihlutinn vill koma þeim fyrir í Laugardalnum þar sem ekki hefur reynst auðvelt að ná sátt um slík úrræði fyrir heimilislausa í íbúðabyggð.
Alls verða 460 íbúðir byggðar á Hlíðarendasvæðinu í Reykjavík, gangi eftir áætlanir um að breyta skipulagi á þremur reitum á svæðinu. Tveir reitanna voru áður ætlaðir undir atvinnuhúsnæði, þar á meðal hótel, og sá þriðji var skilgreindur sem opið svæði, til bráðabirgða.
Tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um útboð allra þátta stafrænnar umbreytingar var felld á borgarstjórnarfundi í gær. Ekki var hægt að bregðast öðruvísi við og komu hörkuleg viðbrögð, m.a. frá dómsmálaráðherra, á óvart en hún taldi málið vera „til skammar“.
Formaður nýsköpunarráðs Reykjavíkurborgar vísar ásökunum Samtaka iðnaðarins um lygar á bug og segir ummæli sín hafa verið byggð á misskilningi. Þá sé gagnrýni minnihluta borgarstjórnar á verkefnið Stafræn umbreyting lituð rangfærslum - borgin standi með heilbrigðum markaði.
Borgaryfirvöld vinna að því hörðum höndum að starfsemi Skotfélags Reykjavíkur geti haldið áfram í Álfsnesi. Starfsleyfið var óvænt fellt úr gildi í síðustu viku.
Á Álfsnesi hafa tvö íþróttafélög verið með sína æfingar aðstöðu í yfir tíu ár. Áframhaldandi starfsleyfi fyrir Skotfélag Reykjavíkur gaf Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur út í vor. Leyfið var allt annað en það leyfi sem fyrir var og verulega dregið úr þeim tíma sem hægt var að hafa skotsvæðið opið.
Mætum börnum þar sem þau eru óháð greiningum. Verum fyrri til og styðjum við þau og styrkjum áður en þau hrasa. Grípum þau sem þess þurfa. Höldum á sama tíma vel utan um peningana og pössum að þeir nýtist börnunum okkar sem allra best. Þetta eru allt áherslur í Eddu, sem er nýtt úthlutunarlíkan fyrir grunnskóla í Reykjavík og var samþykkt í vikunni.
Borgarráð samþykkti í dag einróma að setja á fót sjálfstæða starfseiningu á sviði jafnlaunamála. Starfseiningin ber heitið Jafnlaunastofa og verður einingin sameignarfélag í eigu Reykjavíkurborgar og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir er formaður borgarráðs og staðgengill borgarstjóra í Reykjavík, segist slegin yfir því að skotæfingasvæði Skotfélags Reykjavíkur á Álfsnesi hafi verið lokað fyrirvaralaust í gær.
Nú er tilbúið nýtt úthlutunarlíkan grunnskóla Reykjavíkur, sem heitir Edda sem stýrir því hvernig fjármagni er úthlutað til einstakra skóla. Líkanið er stórt framfaraskref í menntamálum borgarinnar og mikið fagnaðarefni.
Sérstökum frístundastyrk er ætlað að gera börnum keift að stunda fjölbreyttar tómstundir óháð efnahag foreldra en rannsóknir hafa sýnt að þáttaka barna efnaminni foreldra er mun minni í skipulögðu tómstundastarfi en annarra. Ljóst er að tómstundastarf barna getur verið þungur baggi fyrir tekjulág heimili og kostnaður valdið því að börn tekjulágra taka síður þátt í slíku starfi.
Sigríður Mogensen, sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs hjá Samtökum iðnaðarins, segir borgina þramma með yfirgengilega freklegum hætti inn á viðkvæman samkeppnismarkað.
Maður, sem skaut á bíl borgarstjóra fyrr á árinu og hafði í hótunum við varaborgarfulltrúa fyrr í vikunni, hefur hvorki verið handtekinn né yfirheyrður.
Varaborgarfulltrúi Miðflokksins sætti alvarlegum hótunum af hálfu sama manns og er grunaður um að hafa skotið á bíl borgarstjóra fyrr á árinu á þriðjudag. Sérsveit ríkislögreglustjóra vaktaði Ráðhús Reykjavíkur meðan borgarstjórnarfundur stóð yfir vegna hótananna.
Ólafur Guðmundsson, varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, hefur tekið aftur sæti sem varamaður í ráðum sem hann sat í hjá borginni áður en hann vék úr þeim í byrjun árs vegna ummæla sem hann lét falla um skotárás á fjölskyldubíl Dags B. Eggertssonar borgarstjóra. Borgarfulltrúi Pírata furðar sig á þessu og segir það hafa verið óþægilegt að sitja fund með Ólafi í morgun.
Forhönnun Laugarvegar og Skólavörðustígs hefur nú verið kynnt, meðal annars í borgarstjórn í dag. Þarna eru margar skemmtilegar hugmyndir sem munu án ef gera miðborgina okkar fallegri og bæði auðveldari og skemmtilegri til að ferðast um.
Reykjavík er hinsegin borg. Hún hefur stutt ríkulega við bakið á hinsegin fólki með margvíslegum hætti og hefur gengið fram með góðu fordæmi og það á undan ríkinu og öðrum sveitarfélögum. Hún hefur stutt Samtökin ´78, Hinsegin daga, Gleðigönguna og mörg önnur áríðandi mannréttindamál.
Til þeirra sem málið varðar. Ég er foreldri tveggja barna á leikskólaaldri. Yngri sonur minn er að hefja skólagöngu sína í leikskóla hjá Reykjavíkurborg núna á föstudaginn, hann er rúmlega tveggja ára. Eldri sonur minn er að hefja síðasta vetur sinn á leikskólanum.
Í gær ákvað meirihlutinn í borgarstjórn að skerða opnunartíma leikskólanna í Reykjavík. Frá og með næstu áramótum verður opnunartíminn aðeins til 16:30, en ekki 17:00.
Göngugötuhluti Laugavegar, Skólavörðustígs og Vegamótastígs fær nýja umgjörð þar sem fagurfræði og auga fyrir sögunni er rauður þráður í gegnum alla hönnun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar. Regnboginn á Skólavörðustíg fær nýtt heimili og stendur leit yfir.
Reykjavíkurborg mun greiða 1,2 milljónir króna í leigu mánaðarlega fyrir húsnæði Hjálpræðishersins sem ætlað er að brúa bilið vegna kennslu fyrir yngstu nemendur Fossvogsskóla á meðan unnið er við uppsetningu bráðabirgðahúsnæðis á lóð skólans meðan viðgerðir fara fram á aðal húsnæði Fossvogsskóla.
Með fjölgun aldraðra stöndum við frammi fyrir þeirri áskorun að mæta þjónustuþörfum þessa stækkandi hóps. Við þurfum sem samfélag að mæta fólki þar sem það er statt af virðingu og umhyggju. Tryggja fjölbreytta þjónustu sem uppfyllir allar gæðakröfur nútímans.
Málefni sveitarstjórna er nærþjónustan. Þetta sem birtist íbúum í sínum hversdegi. Þess vegna er svo mikilvægt að hafa góða lýðræðislega ferla til að skapa vettvang fyrir hugmyndir íbúa um hvernig hlutirnir eiga að vera.
Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir ákvörðun meirihluta skóla- og frístundaráðs Reykjavíkur um styttingu opnunartíma leikskóla koma verst niður á mæðrum, fólki í vaktavinnu og fólki af erlendum uppruna.
Rekstrarniðurstaða A-hluta Reykjavíkurborgar var neikvæð um 7.322 milljónir króna á fyrri helmingi ársins. Áætlun gerði ráð fyrir 7.994 milljarða halla en frávik eru einkum sögð skýrast af hærri útsvarstekjum.
Meirihluti skóla- og frístundaráðs Reykjavíkur hefur samþykkt að opnunartími leikskóla borgarinnar verði frá 7:30 til 16:30, frá og með 1. nóvember næstkomandi.
Borgarfulltrúar hafa að undanförnu fengið mörg skilaboð frá foreldrum barna í Fossvogsskóla um óánægju þeirra með upphaf þessa skólaárs, óvissuna sem þau búa við og að þeim finnst, skort á skilningi Reykjavíkurborgar á aðstæðum þeirra.
Málefni Fossvogsskóla hafa verið í umræðunni og þrátt fyrir hávær mótmæli foreldra og aðfinnslur hefur harla lítið gerst. Í raun hefur svo mörgum tekist að gera svo lítið að um einhverskonar met í lélegri stjórnsýslu ætti að falla í skaut hins myglaða meirihluta og þeirra sem þau hafa sett í nefndir, ráð og forystu innan skóla og frístundasviðs Reykjavíkurborgar.