Efnahagsmál „
1 2 3 4 5 6 … 69 ›
„Dapurlegt að stjórnmálafólk loki augunum fyrir stöðunni“ Ragnar Þór Ingólfsson oddviti Flokks fólksins í Reykjavík norður sakar Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík suður um að loka auguunum fyrir bágri stöðu Íslendinga. Innlent 10.11.2024 22:02
Kosningar og ,ehf gatið‘ Það er eðlilegt að skattamál beri á góma í aðdraganda kosninga og síðustu daga hefur nokkuð verið rætt um tillögu sem snýr að því að takmarka tekjutilflutning þeirra sem starfa í eigin atvinnurekstri, sem einnig hefur verið kallað ‚að loka ehf-gatinu‘. Sú tillaga felst í því að endurskoða fyrirkomulag reiknaðs endurgjalds og koma í veg fyrir að launatekjur séu ranglega taldar fram sem fjármagnstekjur. Áformin eru umdeild, stjórnmálamenn tala um „meintar skattaglufur“ og telja sumir að tillögurnar hafi sérstaklega neikvæð áhrif á iðnaðarmenn. Hvort tveggja er rangt. Skoðun 9.11.2024 12:32
Flestir treysta Kristrúnu fyrir efnahagnum Ný könnun Gallup bendir til þess að flestir landsmenn treysti helst Kristrúnu Frostadóttur, formanni Samfylkingar, af leiðtogum stjórnmálaflokkanna á Alþingi til að leiða stjórn efnahagsmála á Íslandi. Innlent 8.11.2024 06:53
Viðræður hafnar um kaup á Perlunni, Toppstöðinni og 125 bílastæðum Viðræður standa nú yfir á milli Reykjavíkurborgar og Perlunnar þróunarfélags ehf. um kaup á Perlunni og tveimur tönkum. Í tilkynningu frá borginni segir að Perlan þróunarfélag ehf. hafi verið leigutaki síðustu átta ár. Þá kemur fram í sömu tilkynningu að gengið verði til samningaviðræðna við hæstbjóðendur í Toppstöðina í Elliðaárdal og 125 bílastæði í bílakjallara Hörpu. Innlent 7.11.2024 17:59
Inga muni varpa efnahagslegum gjöreyðingarvopnum Hugmyndir Ingu Sæland um að sækja níutíu milljarða á ári með aukinni skattheimtu á innborganir í lífeyrissjóði hafa farið öfugt ofan í ýmsa. Varaþingmaður segir Ingu lýsa því hvernig hún muni „varpa efnahagslegum gjöreyðingarvopnum á framtíðarkynslóðir“ og formaður Samfylkingar telur áformin feigðarflan. Innlent 7.11.2024 11:57
„Afskaplega slæmar fréttir fyrir heimshagkerfið“ Ætli Trump að efna margítrekað kosningaloforð sitt um að hækka innflutningstolla verulega mun það hafa slæm áhrif á heimshagkerfið og ýta undir verðbólgu að mati framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda. Tollahækkanirnar muni hafa sérstaklega neikvæð áhrif á Ísland Innlent 6.11.2024 12:01
Þetta lítur ekki vel út Það er vaxtaákvörðunardagur 20. nóvember. Verðbólgan hefur verið að hjaðna og raunvextir í hæstu hæðum. Við fyrstu sýn virðist ákvörðun peningastefnunefndar einföld og auðveld. Lækkun stýrivaxta er borðleggjandi, hressileg lækkun væri vel þegin. Skoðun 6.11.2024 07:17
Rekstur borgarinnar allur að braggast segir borgarstjóri Borgarstjóri segir að takast muni að snúa halla í afgang á rekstri borgarsjóðs strax á þessu ári. Afgangurinn verði síðan tæpir tveir milljarðar á næsta ári. Oddviti Sjálfstæðisflokksins sakar meirihlutann um að hagræða sannleikanum. Innlent 5.11.2024 19:32
Örvæntingarfullur maður sker út grasker Nú er kosningabarátta. Það sést best á allskyns greinum og mis skondnum myndböndum þar sem Sjálfstæðisflokkurinn er að reyna að hræða kjósendur til að kjósa sig. Um kunnuglega taktík er að ræða. Skoðun 5.11.2024 07:01
Spá auknu atvinnuleysi og hagvexti Útlit er fyrir að verg landsframleiðsla aukist um 0,1% í ár. Samkvæmt þjóðhagsreikningum dróst verg landsframleiðsla saman um 1,9% á fyrri hluta ársins sem einkenndist af neikvæðum áhrifum utanríkisviðskipta og birgðabreytinga, meðal annars vegna loðnubrests. Viðskipti innlent 4.11.2024 10:26
Íslensk verðtrygging á mannamáli! Það er alkunna hér að ungu fólki er refsað grimmilega af bankastofnunum, taki það ákvörðun að mennta sig á háskólastigi. Hérlendis er því reyndar haldið fram af mörgum að öll verðtrygging sé af hinu góða og kannski einnig bráðnauðsynleg. Skoðun 4.11.2024 07:31
Menntamál eru efnahagsmál: Tími fyrir nýja nálgun Oft er sagt að menntun sé lykillinn að framtíðinni. En hvað gerist þegar við vanrækjum lykilinn sjálfan? Menntakerfið okkar hefur setið á hakanum allt of lengi. Skoðun 2.11.2024 21:31
Fyrirsjáanleikinn ekki „sérlega mikill“ eftir ákvörðun Hagstofunnar Ákvörðun Hagstofunnar um að skilgreina fyrirhugað kílómetragjald á öll ökutæki sem veggjald þannig að það sé tekið inn í mælingu á vísitölu neysluverðs kemur á óvart, að mati hagfræðings, og sú nálgun ólík þeim alþjóðlegu stöðlum og regluverki sem stofnunin hefur í meginatriðum fylgt í sambærilegum málum. Hann telur að með þessari niðurstöðu sé fyrirsjáanleikinn ekki „sérlega mikill“ en ávöxtunarkrafa stuttra verðtryggðra ríkisbréfa lækkaði mikið á markaði í dag. Innherji 30.10.2024 16:48
300 milljónir á dag Spjallið við eldhúsborðið ætti að vera um sumarfrí og framtíðaráform fremur en vexti og hallann á heimilisbókhaldinu. Eitt mikilvægt framlag ríkisins í baráttunni við verðbólguna er að hafa jafnvægi í ríkisfjármálum. Hvernig hefur það gengið hjá ríkisstjórn síðustu sjö ára? Skoðun 28.10.2024 14:32
Vill hefja framkvæmdir við Hvammsvirkjun fyrir árslok Landsvirkjun er komin með öll tilskilin leyfi fyrir Hvammsvirkjun í Þjórsá og stefnir að því að hefja framkvæmdir fyrir árslok. Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkti framkvæmdaleyfi í dag. Innlent 24.10.2024 22:00
Horfin þjóð Nú í tilefni 80 ára afmæli lýðveldisins er vert að líta til baka og meta hversu langt þessi unga þjóð er á veg komin. Sú þjóð sem stóð að stofnun lýðveldisins er fyrir margt löngu horfin. Sumir tala um gamla Ísland og horfa til fortíðar með söknuði eins og allt hafi verið betra þá. Skoðun 24.10.2024 19:31
Ekki allar verslanir sem hleypi verðlagseftirlitinu að Benjamín Julian verkefnastjóri verðlagseftirlits ASÍ segir hækkanir hjá birgjum á kjötvöru helstu ástæðu hækkunar á matvöru. Greint var frá því í gær að eftir tveggja mánaða lækkun á verðlagi matvöru hafi hún hækkað „með rykk“. Neytendur 23.10.2024 23:27
Hugleiðingar ellilífeyrisþega um landsmálin, umhverfis og orkumálin. Víst er hún skondin tík þessi pólitík, ég er oft hugsi yfir þingmönnum okkar sem eru líðræði landsins vægt sagt dýrir í rekstri, eru jafnvel stundum til óþurftar. Heildargreiðslur til nokkura hávaðasamra óbreyttra þingmanna eru fyrstu 8 mánuði yfirstandandi árs kr 16.131.504, á mann, að meðaltali, sem gera þá 2.016.438 kr á mánuði (heimildin er vefur Alþingis). Skoðun 23.10.2024 18:33
Vaxtatekjur Íslandsbanka drógust saman milli ára Hagnaður af rekstri Íslandsbanka nam 7,3 milljörðum króna á þriðja ársfjórðungi 2024. Hagnaðurinn á sama tímabili í fyrra var sex milljarðar króna. Hreinar vaxtatekjur námu 11,8 milljörðum króna á þriðja ársfjórðungi 2024 og lækkuðu um 69 milljónir króna frá fyrra ári. Viðskipti innlent 23.10.2024 16:29
Einkareknir grunnskólar möguleg lausn á brotnu kerfi Framkvæmdastjóri viðskiptaráðs segir grunnskólakerfið hérlendis brotið og einsleitt. Lausnin við því sé ekki að setja meira fjármagn inn í kerfið heldur að laga það innan frá. Hann segir einkarekna grunnskóla mögulega lausn við vandanum. Innlent 21.10.2024 22:48
Bjarni leggur mesta áherslu á afgreiðslu fjárlagafrumvarps Forsætisráðherra til bráðabirgða í nýrri starfsstjórn leggur áherslu á að fátt annað en fjárlagafrumvarpið verði afgreitt frá Alþingi fyrir kosningar. Ný ríkisstjórn geti síðan ákveðið að gera breytingar á því. Innlent 15.10.2024 19:21
Efnahagsmál sem geðheilbrigðismál Það er oft sagt að peningar kaupi ekki hamingju. Það er hálfsannleikur. Hið rétta er að ef fólk hefur áhyggjur af afkomu sinni – næstu mánaðamótum – þá er það áhyggjufullt og mögulega óhamingjusamt vegna þess. Fjárhagslegt öryggi er grunnur að andlegri líðan og skortur á því getur leitt til alvarlegra erfiðleika í andlegri heilsu. Skoðun 15.10.2024 18:31
Íbúðaverð lækkar í fyrsta sinn frá janúar Vísitala íbúðaverðs mældist 108,4 stig í september og lækkaði um 0,28 prósent á milli mánaða og er það í fyrsta skiptið sem íbúðaverð lækkar á milli mánaða frá því í janúarmánuði. Viðskipti innlent 15.10.2024 15:48
Peningar: Verkfæri til að draga úr óvissu, ekki pólitískt vald Nýverið birtist skoðanapistill hér á Vísi þar sem höfundur hélt því fram að sósíalismi náist ekki án sjálfstæðs gjaldmiðils. Þetta sjónarmið vakti upp áhugaverðar spurningar um hlutverk peninga í samfélaginu. Að mínu mati eru peningar ekki tæki til að þjóna pólitískum markmiðum, heldur grundvallarverkfæri sem hjálpa einstaklingum að eiga viðskipti á skilvirkan og sanngjarnan máta. Skoðun 15.10.2024 15:31
Hagkerfið nái andanum og spá um tveggja prósenta hagvexti næstu ár Greiningardeild Landsbankans spáir því að hagkerfið standi nánast í stað á milli ára í ár og að landsframleiðsla dragist saman um 0,1 prósent. Þetta sé mikil breyting frá síðustu árum þar sem hagvöxtur hafi verið fimm til níu prósent árlega, en þeim mikla hagvexti hafi fylgt mikil og þrálát verðbólga. Hagspaín geri ráð fyrir öðrum og rólegri takti. Viðskipti innlent 15.10.2024 08:32
Bein útsending: Ný þjóðhags- og verðbólguspá Landsbankans Ný þjóðhags- og verðbólguspá Greiningardeildar Landsbankans 2024-2027 verður kynnt á fundi í Hörpu sem hefst klukkan 8:30 í dag. Viðskipti innlent 15.10.2024 08:01
Óvissa í efnahagslífinu og erfitt að sjá að verðbólga hjaðni nú Deildarforseti Háskólans á Bifröst segir stjórnarslitin skapa óvissu í efnahagslífinu og erfitt sé að sjá að verðbólga haldi áfram að hjaðna í núverandi ástandi. Hún telur að atvinnulíf muni halda að sér höndum þar til það fer að róast. Nú vilji menn bæði vera í axlaböndum og með belti. Innlent 14.10.2024 11:56
Fjárhagsstaða sveitarfélaga býður ekki upp á aukna skuldsetningu Fjárfesting sveitarfélaga jókst um meira en fimmtung á liðnu ári þegar hún var samtals nálægt áttatíu milljarðar en þungur rekstur þýddi að þær fjárfestingar voru að hluta fjármagnaðar með lántökum sem jók enn á skuldirnar. Ekki er hins vegar útlit fyrir að sveitarfélagastigið megi við lækkandi fjárfestingarstigi á komandi árum, að mati Sambands íslenskra sveitarfélaga, sem vill að virðisaukaskattur á fjárfestingar þeirra verði afnumin. Innherji 13.10.2024 13:09
Áfram engar loðnuveiðar Hafrannsóknastofnun leggur til að engar loðnuveiðar verði leyfðar fiskveiðiárið 2024/2025. Viðskipti innlent 12.10.2024 09:09
Efla Hagstofuna í kjölfar talnaruglsins Bjarni Benediktsson forsætisráðherra hefur skipað nefnd sem skila á tillögum um hvernig megi efla Hagstofu Íslands sem miðstöð opinberrar hagskýrslugerðar í landinu. Innlent 11.10.2024 14:13
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti