Áfengi í íþróttastarfi
Ótækt að íþróttafélögin selji áfengi án leyfis Forseti ÍSÍ segir ótækt að íþróttafélögin selji áfengi á íþróttaviðburðum án þess að hafa til þess leyfi. Innan við helmingur félaga á höfuðborgarsvæðinu má selja áfengi og ekkert þeirra er með útiveitingaleyfi. Heilbrigðisráðherra segir að skýra þurfi reglur. Innlent 16.6.2025 20:02
Teikn á lofti þegar kemur að áfengisneyslu unglinga Teikn á lofti eru um að áfengisneysla meðal unglinga sé að aukast. Þetta segir formaður Foreldrasamtaka gegn áfengisauglýsingum en hann furðar sig á að fimm árum eftir að netsala áfengis var kærð til lögreglu sé enn engin niðurstaða komin í málið. Innlent 16.6.2025 12:52
Áfengi og íþróttaviðburðir geti átt samleið sé farið að lögum Nýr formaður Íþrótta- og ólympíusambands Íslands segir áfengi og íþróttaviðburði geta átt samleið að því gefnu að farið sé að landslögum og tryggt sé að börn og unglingar hafi ekki aðgengi að því. ÍSÍ vilji taka forystu í því að móta sterkari umgjörð um áfengisveitingar á íþróttaviðburðum. Innlent 23.5.2025 19:16
Fólki sé vel treystandi til að fá sér bjór á íþróttaviðburðum Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík segist ekki vita til þess að áfengissala á íþróttaviðburðum hafi skapað sérstök vandamál síðustu ár. Það sé áríðandi að regluverkið verði uppfært en íþróttafélögunum sé almennt treystandi til að skipuleggja söluna og fólki til að fara rólega í neysluna. Innlent 23.5.2025 06:32
Óbreytt ástand kemur ekki til greina Koma þarf böndum á áfengissölu íþróttafélaganna að mati formanns menningar- og íþróttaráðs Reykjavíkurborgar, óbreytt ástand komi ekki til greina. Hann segir áfengisneyslu á íþróttaleikjum illa samræmast forvarnar- og lýðheilsustefnum borgarinnar. Innlent 20.5.2025 19:03
Er vínandinn orðinn hinn sanni andi íþrótta? Í áraraðir hefur verið lögð áhersla á að íþróttir og áfengi fari ekki saman. Íþróttahreyfingin hefur notið víðtæks stuðnings og trausts sveitarfélaga, almennings og styrktaraðila á þeirri forsendu að íþróttir stuðli að heilbrigðum lífsstíl, forvörnum og jákvæðum félagslegum áhrifum – sérstaklega fyrir börn og ungmenni. Skoðun 20.5.2025 07:09
Óheillaskref að áfengi sé selt á vellinum Íþrótta-, æskulýðs- og tómstundafulltrúar telja óheillaskref að farið sé að selja áfengi á íþróttaviðburðum. Mikilvægt sé að umræða fari fram um þetta og að sveitarfélögin komi að henni þar sem þau taki þátt í að fjármagna íþróttastarfið. Innlent 16.5.2025 14:04
Villta vestrið ríki á íþróttaviðburðum og kalla eftir reglum Líkja má aðstæðum sem skapast hafa í kringum áfengissölu á íþróttaviðburðum við villta vestrið að mati stjórna Íþróttabandalaga Reykjavíkur og Reykjanesbæjar sem kalla eftir skýrari reglum. Málið verður rætt á íþróttaþingi. Innlent 15.5.2025 20:43
Efla eftirlit með áfengissölu á íþróttaleikjum Misbrestur er á að leyfi íþróttafélaga til að selja áfengi á kappleikjum sínum séu í lagi og dæmi eru um að lögregla hafi verið kölluð til vegna átaka. Lögreglan ætlar að efla eftirlit með áfengissölu á íþróttaviðburðum. Innlent 7.5.2025 19:09