Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 12. apríl 2026 13:23 Hægt er að kaupa bjór í Hlíðarfjalli á Akureyri en ekki í Bláfjöllum. Árni Guðmundsson, forvarnarsérfræðingur og Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík eru ósammála um það hvort leyfa eigi bjórsölu í Bláfjöllum. Þau eru þó sammála um eitt, fjögur hundruð mál eru líklega brýnni fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. vísir Oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík segir hugmyndir um bjórsölu í Bláfjöllum til þess fallnar að skapa ánægju og gleði í fjallinu. Sérfræðingur í forvörnum segir um gargandi vitleysu að ræða, fjögur hundruð mál séu brýnni.
Bjórbann í Bláfjöllum, hver bað um það? Þessi orð mátti finna á flennistórum LED auglýsingaskiltum á Akureyri yfir páskahelgina og var í boði Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Aðspurð hvort um kosningamál sé að ræða segir oddviti flokksins í borginni að um ákveðið gamanmál hafi verið að ræða. „Við vorum bara á léttu nótunum yfir páskana. Við vorum með á þessum skiltum textann: Bjórbann í Bláfjöllum, hver bað um það? Og erum þá auðvitað að vísa til þess að til að mynda í Hlíðarfjalli á Akureyri er leyfð bjórsala sem hefur gengið glimrandi vel og ekki verið neitt teljandi vandamál.“ En í Bláfjöllum er áfengissala óheimil. Hildur segir að uppátækið tali inn í baráttu flokksins fyrir áfengissölu á íþróttaleikjum fullorðinna sem komst í gegnum borgarráð í febrúar. „Við erum bara að velta þessu sjónarmiðið upp. Af hverju ekki að leyfa bjórsölu í Bláfjöllum g skemmtilega stemningu á góðviðrisdögum eins og við þekkjum í Ölpunum og nú í Hlíðarfjalli á Akureyr? Þetta er ekki stærsta kosningamálið. Þetta er bara svolítið gamanmál.“ Gargandi vitleysa Árni Guðmundsson, forvarnarsérfræðingur hefur lengi barist gegn auknu aðgengi að áfengi. Hann var heldur betur hissa þegar fréttamaður sló á þráðinn. Árni Guðmundsson er sérfræðingur í forvörnum.vísir/vilhelm „Ég hélt bara að þetta væri 1. apríl, eða eitthvað. Ég sá reyndar ekki skiltið. En ég myndi segja að það væru svona þrjú til fjögur hundruð mál sem séu brýnni en þetta og þetta mál ekki einu sinni brýnt. Þannig mér finnst þetta mjög sérstakt að þetta sé eitthvað kosningamál að koma áfengi inn í íþróttirnar, fjölskyldusamveru eins og skíðin eru. Mér finnst þetta eiginlega alveg gargandi vitleysa bara ef ég á að vera alveg hreinn og beinn.“ Ekki stórt mál Hildur tekur undir með Árna, fjögur hundruð mál séu brýnni. „Það eru alveg örugglega fjögur hundruð mál sem eru brýnni, ég tek alveg undir það. En það er auðvitað ekki þannig að maður eigi alltaf bara að tala um brýnustu málin. Við munum kynna okkar brýnustu mál á fundi í næstu viku. En þetta var bara svona á léttu nótunum yfir páskana.“ Hildur segir bjórsölu í Hlíðarfjalli hafa gengið vel.vísir/vilhelm „Þetta hefur gengið vel í Hlíðarfjalli á Akureyri, hefur verið gott samstarf við lögreglu um að láta fólk blása þannig að enginn aki undir áhrifum áfengis og ég hef bara séð þetta skapa góða stemningu. Þetta er bara til þess fallið að skapa ánægju og gleði í fjallinu,“ segir Hildur. Skilur ekki hvað fólki gengur til „Það eru margir punktar í þessu, það er þetta frelsisdæmi sko. Mér finnst að börn og ungmenni eigi að hafa frelsi til að vera laus við áfengistengt umhverfi. Fjölskylduumhverfi eins og skíðaiðkun er tilvalin til að vera með góða og uppbyggilega samveru og það þarf ekkert að vera áfengi nálægt því. Mér finnst alveg furðulegt að það eigi að beita sér fyrir því að taka umhverfi sem er uppbyggilegt og gott og blanda áfengismenningu inn í það. Ég skil bara ekki hvað fólki gengur til,“ sagði Árni Guðmundsson.
Áfengi Áfengi í íþróttastarfi Sjálfstæðisflokkurinn Sveitarstjórnarkosningar 2026 Skíðasvæði Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Fleiri fréttir Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Sjá meira