Breytingar á veiðigjöldum „
1 2 3 4 5 6 … 8 ›
„Liggur alveg ljóst fyrir að þetta frumvarp er drasl“ Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, spáir því að þingmeirihlutinn muni á morgun leggja fram breytingar á veiðigjaldafrumvarpinu. Meirihlutinn muni gera það vegna þess að hann viti það innst inni í hjarta sér að frumvarpið sé ekki gott. Innlent 11.7.2025 20:07
Sögulegur dagur á Alþingi: Lýðræðisákvæði eða kjarnorkusprengja? Sögulegur þingfundur fór fram í dag. Forseti Alþingis, beitti 71. grein þingskaparlaga og í kjölfarið samþykkti meirihluti þingsins að önnur umræða um veiðigjaldafrumvarp ríkisstjórnarinnar yrði stöðvuð. Í kjölfarið voru greidd atkvæði um frumvarpið og það sent til þriðju umræðu. Stjórnarliðar segja beitingu ákvæðisins nauðsynlega í lýðræðisríki, en stjórnarandstæðingar hafa talað um beitingu kjarnorkuákvæðis. Innlent 11.7.2025 17:04
Fordæmalaus ákvörðun sem gæti breytt Alþingi til framtíðar Prófessor í stjórnmálafræði segir það fordæmalaust að svokölluðu kjarnorkuákvæði sé beitt gegn málþófi á Alþingi. Ekki sé algengt að jafn þung orð séu látin falla í þinginu líkt og síðustu daga. Of snemmt sé að segja til um áhrifin sem beiting ákvæðisins geti haft á þingið en möguleiki er á að það málþófshefðir íslenskra þingmanna breytist til muna. Innlent 11.7.2025 11:53
„Þetta er alvarlegur áfellisdómur yfir forsætisráðherra“ Formaður Sjálfstæðisflokksins segist harma ákvörðun forseta Alþingis að virkja svokallað „kjarnorkuákvæði“ þingskapalaga til þess að stöðva umræður um frumvarp um hækkun veiðigjalda. „Þetta er alvarlegur áfellisdómur yfir forsætisráðherra, hennar ríkisstjórn og virðingu þeirra fyrir Alþingi Íslendinga.“ Innlent 11.7.2025 10:29
Vaktin: Tillagan samþykkt og annarri umræðu um veiðigjöld lokið Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, hefur lagt til að umræðum um veiðigjaldafrumvarp atvinnuvegaráðherra verði hætt og gengið til atkvæða um málið. Þetta gerði Þórunn við upphaf þingfundar í morgun. Innlent 11.7.2025 09:48
„Eftir þetta hvassviðri í þinginu í gær heldur lífið áfram“ Þingflokksformennirnir Ragnar Þór Ingólfsson, í Flokki fólksins, og Bergþór Ólason, í Miðflokki, segja að hnúturinn á þinginu verði alltaf leystur með samningum. Valkostirnir séu skýrir. Bergþór og Ragnar Þór voru til viðtals um stöðuna í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Innlent 11.7.2025 09:16
Hugtakið valdarán gengisfellt Málþóf er vitanlega umdeilt. Sjálfur var ég ekki sérlega ánægður með það til dæmis þegar Samfylkingin og aðrir þáverandi stjórnarandstöðuflokkar gripu til málþófs á fyrri hluta árs 2014 með það að yfirlýstu markmiði að koma í veg fyrir það að þingsályktunartillaga þáverandi ríkisstjórnar Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins, um að umsókn Samfylkingarinnar og Vinstri grænna um inngöngu í Evrópusambandið yrði dregin til baka, næði fram að ganga. Sem tókst. Ég áfelldist þó ekki þáverandi stjórnarandstöðu heldur stjórnarmeirhlutann fyrir það að hafa ekki staðið í lappirnar. Skoðun 11.7.2025 07:33
Halda áfram að ræða veiðigjöldin Þingfundur hefur verið boðaður á Alþingi klukkan tíu dag þar sem eina málið á dagskrá er frumvarp atvinnuvegaráðherra um veiðigjöldin. Fundurinn kemur í kjölfar viðburðaríks þingfundar gærdagsins. Innlent 11.7.2025 07:30
Þingfundi frestað: Stjórnarandstaðan lagði fram „aðeins mýkri“ tillögu Þingfundi hefur verið slitið án árangurs í þinglokaviðræðum eftir dramatískan dag. Stjórnarandstaðan lagði fram „aðeins mýkri“ tillögu fyrir ríkisstjórnina í kvöld í von um að leysa úr þráteflinu sem myndast hefur í málþófinu um veiðigjaldafrumvarpið. Innlent 10.7.2025 20:59
Hélt á lokuðu umslagi Stjórn og stjórnarandstaða hafa átt í heitum deilum um „lokuð umslög“ í dag þar sem forsætisráðherra sagði stjórnarandstæðinga hafa lagt fram sitt eigið frumvarp í umslagi í þinglokaviðræðum. Stjórnarandstæðingar neituðu því en þingflokksformaður Samfylkingarinnar hélt einmitt á lokuðu umslagi í viðtali í kvöldfréttum Sýnar í kvöld. Innlent 10.7.2025 20:09
Tillögur „ekki afhentar í lokuðu umslagi“ Þingflokksformenn stjórnarandstöðunnar hafna því að stjórnarandstöðuflokkarnir hafi lagt fram tillögur „í lokuðu umslagi yfir borðið“ í þinglokaviðræðum. Þeir segja óæskilegt að ræða um viðræðurnar, sem eigi að vera bundnar trúnaði, á opinberum vettvangi. Innlent 10.7.2025 18:19
Reyna að stilla til friðar í bakherbergjum Alþingis Formenn stjórnmálaflokka á Alþingi sitja nú fund vegna þráteflisins sem myndast hefur í umræðu um veiðigjöldin á Alþingi. Mikill hiti hefur verið í þingmönnum í dag. Innlent 10.7.2025 17:48
Um fundarstjórn forseta Vegna margumtalaðs atburðar sem átti sér stað í gærkvöldi þegar Hildur Sverrisdóttir, varaforseti Alþingis, sleit þingfundi, vil ég sem 1. varaforseti Alþingis halda eftirfarandi til haga: Skoðun 10.7.2025 17:03
Samtal við stjórnarandstöðuna fullreynt Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra segir ljóst að frumvarp hennar um hækkun veiðigjalda verði að lögum. Hún segir að ríkisstjórnin muni beita þeim úrræðum sem henni standa til boða til að keyra málið í gegn og útilokar ekki að svokölluðu „kjarnorkuákvæði“ þingskaparlaga verði beitt. Innlent 10.7.2025 14:49
Kemur kjarnorkuvetur á eftir kjarnorkuákvæðinu? „Þær nefndu ekki 71. greinina. En mér sýndist algjörlega augljóst að það sé í rauninni það sem þær eru að tala um,“ segir Ólafur Þ. Harðarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði, um ávarp Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra og málflutning ráðherranna Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur og Ingu Sæland á Alþingi í morgun. Innlent 10.7.2025 14:45
„Alvarleg yfirlýsing frá formanni flokks“ Guðrún Hafsteinsdóttir segir að forseti Alþingis hafi ekki upplýst um lengd þingfundar í gær, og spurði forseta af hverju ekkert samtal hefði átt sér stað milli forseta og varaforseta þess efnis. Kristrún Frostadóttir segir að allir sem þekki til þingstarfa eigi að vita að varaforsetar slíti ekki fundi nema eftir samtal við forseta. Innlent 10.7.2025 12:22
„Þjóðin þarf að fá að vita hvernig þau hafa hagað sér á bak við tjöldin“ Forsætisráðherra segir þjóðina þurfa að vita hvernig stjórnarandstaðan hegði sér á bak við tjöldin. Hún fordæmir fordæmalausa ákvörðun Hildar Sverrisdóttur að slíta þingfundi án samráðs við forseta og segir minnihlutann hafa lagt fram eigið frumvarp í lokuðu umslagi og krafist þess að ríkisstjórnin legði það fram sem hennar eigið. Innlent 10.7.2025 12:09
Minnihlutinn hafi lagt fram eigið veiðigjaldamál: „Þetta er skrumskæling á lýðræðinu“ Starfsaldursforseti Alþingis segist aldrei hafa upplifað annað eins ástand í þinginu og uppi er núna. Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins hafi kippt lýðræðinu úr sambandi með því að slíta þingfundi óvænt í gærkvöldi, sem sitjandi forseti þingsins. Innlent 10.7.2025 11:29
Spyr hvort draga eigi valdhafa undir húsvegg og skjóta Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, spyr hvort minnihlutinn stefni Alþingi í átt að stjórnleysi líkt og í löndum þar sem valdhafar eru teknir af lífi. Minnihlutinn hafi ekki áhuga á samtali og þingflokksformenn hans mæti óundirbúnir þegar fundað er. Innlent 10.7.2025 11:07
Sauð upp úr þegar Bryndís sagði Hildi fylgja vinnureglum Allt ætlaði um koll að keyra þegar Bryndís Haraldsdóttir sagði að ákvörðun Hildar Sverrisdóttur að slíta þingfundi í gær, væri í samræmi við vinnureglur og handbók forseta. Hróp og köll heyrðust úr þingsal, „Jesús“ sögðu sumir og „hvaða kjaftæði“ sagði einhver hátt og snjallt. Innlent 10.7.2025 10:57
Rölt að botninum Oft er það talið fólki til tekna að hafa gert manna mest af einhverju. Að hafa hlaupið hraðast, stokkið lengst, toppað aðra mælikvarða á mannlega frammistöðu. Að vera bestur er helvíti fínt. Skoðun 10.7.2025 08:32
Að fortíð skal hyggja þegar framtíð skal byggja Veiðigjaldafrumvarpið sem nú liggur fyrir er hvorki tilviljun né afleiðing einnar ríkisstjórnar. Það er niðurstaða fjögurra áratuga deilna milli útgerðar og almennings. Í gegnum tíðina hefur útgerðin sýnt lítinn sem engan vilja til málamiðlana – og ítrekað talað um kvótann eins og hann sé einkaeign. Skoðun 10.7.2025 08:00
Aðilar „einfaldlega ekki tilbúnir að teygja sig nógu langt“ Þingfundur hefst klukkan tíu og eina málið á dagskrá er veiðigjaldafrumvarpið margumrædda. Þingfundinum í gær lauk klukkan 23:40, eftir umræður um fjármálaáætlun og veiðigjaldafrumvarpið. Innlent 10.7.2025 07:40
Svigrúm Eydísar á fölskum grunni Það er villandi að halda því fram, líkt og Eydís Ásbjörnsdóttir þingmaður Samfylkingar heldur fram í grein í Morgunblaðinu í dag 9. júlí að svigrúm til tvöföldunar veiðigjalda í sjávarútvegi sé ótvírætt og mikið, byggt á samanlögðum rekstrarhagnaði og eigin fé heillar atvinnugreinar. Slíkt mat er bæði yfirborðskennt og hættulegt, enda tekur það hvorki tillit til raunverulegrar greiðslugetu né þeirra miklu sveiflna og áhættuþátta sem einkenna sjávarútveginn. Að nota bókhaldstölur af þessu tagi sem eina röksemd er annað hvort byggt á vanþekkingu eða meðvitaðri einföldun. Skoðun 9.7.2025 14:01
„Orðaskiftismetið tikið“ Kringvarp Færeyja fjallar um málþóf stjórnarandstöðunnar í annarri umræðu um veiðigjaldafrumvarpið. Greint er frá því að „viðgerðin um veiðigjøldini tikið metið sum longsta viðgerð um einstakt mál í Altinginum.“ Innlent 9.7.2025 10:27
Stór meirihluti þjóðarinnar hlynntur veiðigjaldafrumvarpinu Tæp sjötíu prósent þjóðarinnar eru hlynnt veiðigjaldafrumvarpinu. Þetta kemur fram í nýrri könnun frá Prósent. Kjósendur Sjálfstæðisflokksins eru þeir einu sem eru líklegri til að vera andvígir og fleiri Miðflokksmenn eru hlynntir en andvígir. Innlent 9.7.2025 08:09
Þeir sem verja stórútgerðina – og heimsvaldastefnuna Alþingi hefur verið haldið í gíslingu í 147,35 klukkustundir — lengsta málþóf lýðveldissögunnar — þar sem þingmenn Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins tefja atkvæðagreiðslu um einfalda og sjálfsagða leiðréttingu veiðigjalda. Þessi breyting myndi færa þjóðinni réttmætari hlut af sameiginlegri auðlind, en samt sem áður verja þessir sömu stjórnmálamenn áfram gjafastefnu gagnvart stórútgerðinni, sem hefur árum saman hagnast gríðarlega á kostnað almennings. Skoðun 9.7.2025 08:02
„Íslandsmet í óvandaðri lagasetningu“ Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins lýsir Íslandsmeti í óvandaðri lagasetningu en Íslandsmet í málþófi var slegið í annarri umræðu veiðigjaldafrumvarpsins í dag. Þingmaður Viðreisnar segir metið dapurlegt og vill að þingið standi með lýðræðinu. Innlent 8.7.2025 20:36
Íslandsmet slegið í málþófi Ekkert mál hefur verið rætt eins lengi og veiðigjaldafrumvarp Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra. Málið hefur verið til umræðu í ríflega samtals 147 klukkustundir og hreppir fyrsta sætið af fyrri methafa, sem var þriðji orkupakkinn. Innlent 8.7.2025 17:35
Kúnstin að vera ósammála sjálfum sér Úr ræðustól Alþingis heyrast oft og iðulega þessa dagana upphrópanir um 26 sveitarfélög. Gjarnan í þeim stíl að talað er í hástöfum um þessi TUTTUGU OG SEX SVEITARFÉLÖG. Þessu er svo gjarnan fylgt eftir með upptalning á téðum sveitarfélögum. Skoðun 8.7.2025 17:03