Þýski boltinn

Skiptir úr besta liði Þýskalands í það næst besta
Þýski miðvörðurinn Niklas Süle mun í sumar ganga í raðir Borussia Dortmund en hann er í dag leikmaður Þýskalandsmeistara Bayern München.

Glódís skoraði og lagði upp í stórsigri Bayern
Glódís Perla Viggósdóttir lagði upp fyrsta mark Bayern München og skoraði það fjórða er liðið vann 4-0 stórsigur gegn Sand í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Leverkusen vann stórsigur gegn Dortmund
Bayer Leverkusen vann 5-2 stórsigur er liðið heimsótti Borussia Dortmund í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Bayern jók forskot sitt á toppnum í fimm marka leik
Bayern München er nú með níu stiga forskot á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar eftir 3-2 sigur gegn RB Leipzig í kvöld.

Guðlaugur Victor og félagar halda í við toppliðin
Guðlaugur Victor Pálsson og félagar hans í Schalke unnu mikilvægan 2-1 sigur er liðið tók á móti Regensburg í þýsku B-deildinni í dag.

Ronaldo um Haaland: Verður sá besti í heimi en er það ekki í dag
Brasilíska goðsögnin Ronaldo hefur trú á því að hinn norski Erling Braut Haaland verði besti framherji heims en segir að hann sé ekki þar ennþá.

Vekur stundum konuna með því að kalla nöfn leikmanna sinna
Julian Nagelsmann er enn bara 34 ára gamall en hefur fyrir löngu skapað sér nafn sem einn besti knattspyrnustjóri heims. Það þarf ekki að koma neinum á óvart að hann hugsar um fótbolta allan sólarhringinn og líka í svefni.

Íslensku stelpurnar í Bayern geta spilað sögulegan leik á Allianz Arena
Íslendingaliðið Bayern München hefur ákveðið að taka risastórt skref fyrir kvennalið félagsins með því að leyfa konunum að spila á Allianz Arena í Meistaradeildinni.

Uppgjör á gluggadegi: Auba endaði í Barcelona
Félgaskiptaglugganum hefur nú verið lokað í stæstu deildum Evrópu. Það voru mikið um félagaskipti á lokadegi félagaskiptagluggans núna, eins og áður.

Sveindís þreytti frumraun sína í öruggum sigri
Sveindís Jane Jónsdóttir lék sinn fyrsta leik í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag þegar hún hjálpaði liði sínu, Wolfsburg, að innbyrða sigur á Turbine Potsdam.

Bayern Munich styrkir stöðu sína í efsta sætinu
Bayern Munich heldur áfram að hala inn stigum í þýsku Bundesliga en liðið sigraði Hertha Berlin með fjórum mörkum gegn einu í dag.

Þriðji sigur Dortmund í röð
Borussia Dortmund vann sinn þriðja deildarleik í röð er liðið heimsótti Hoffenheim í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Lokatölur urðu 3-2 og Dortmund er nú aðeins þremur stigum á eftir toppliði Bayern München.

Cecilía lánuð til Bayern München
Þýskalandsmeistarar Bayern München hafa fengið íslenska landsliðsmarkvörðinn Cecilíu Rán Rúnarsdóttur á láni frá Everton.

Bikarmeistararnir úr leik eftir tap gegn B-deildarliði St. Pauli
Þýsku bikarmeistararnir í Borussia Dortmund eru úr leik eftir 2-1 tap í 16-liða úrslitum gegn B-deildarliði St. Pauli fyrr í kvöld.

Íslendingar á varamannabekkjum | Alfreð spilaði sínar fyrstu mínútur í tvo mánuði
Alfreð Finnbogason, Arnór Sigurðsson, Þórir Jóhann Helgason og Albert Guðmundsson þurftu allir að sætta sig við að byrja leiki sinna liða í dag meðal varamanna.

Guðlaugur Victor og félagar í Schalke 04 misstigu sig
Þýska stórliðið Schalke 04 náði aðeins jafntefli er Holstein Kiel kom í heimsókn á Veltins-völlinn í Gelsenkirchen í B-deildinni þar í landi, lokatölur 1-1. Guðlaugur Victor Pálsson var fyrirliði Schalke í leiknum.

Lewandowski skoraði þrjú er Bayern vann örugglega
Markamaskínan Robert Lewandowski hefur nú skorað 300 mörk í þýsku úrvalsdeildinni. Hann skoraði þrennu er topplið þýsku úrvalsdeildarinnar, Bayern München vann þægilegan 4-0 sigur á Köln.

Dortmund fylgir fast á hæla Bayern
Borussia Dortmund vann öruggan 5-1 sigur á Freiburg í eina leik kvöldsins í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Dortmund er nú aðeins þremur stigum á eftir toppliði Bayern.

Karólína Lea lét stríðnina ekki slá sig út af laginu
Íslenska landsliðskonan Karólína Lea Vilhjálmsdóttir var í aðalhlutverki í myndbandi sem var sett inn á samfélagsmiðla kvennaliðs Bayern München.

Mögnuð endurkoma Dortmund
Borussia Dortmund vann ótrúlegan sigur á Eintracht Frankfurt í þýsku Bundesligunni í kvöld. Liðið lenti 2-0 undir en vann leikinn á ótrúlegan hátt 2-3.

Borussia Mönchengladbach batt enda á sigurgöngu þýsku meistaranna
Þýskalandsmeistarar Bayern München töpuðu óvænt 2-1 er liðið tók á móti Borussia Mönchengladbach í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

Lið Alfreðs kaupir bandarískt undrabarn
Augsburg, lið Alfreðs Finnbogasonar, hefur fest kaup á bandaríska framherjanum Ricardo Pepi frá Dallas.

Stjóri Frankfurt kjálkabrotnaði eftir að hafa dottið af rafskútu
Oliver Glasner, knattspyrnustjóri Frankfurt, gekkst undir aðgerð í gær eftir að hafa kjálkabrotnað.

Nýr veruleiki Glódísar hjá Bayern: „Mikill lærdómur en mjög gaman að fá nýja áskorun“
Glódís Perla Viggósdóttir, landsliðskona í fótbolta, segir að fyrsta hálfa tímabilið í herbúðum Bayern München hafi verið afar lærdómsríkt. Hún hlakkar til spennandi árs með íslenska kvennalandsliðinu.

Karólína og Glódís spiluðu þegar Bayern tyllti sér á toppinn
Glódís Perla Viggósdóttir og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir voru í eldlínunni með þýska stórveldinu Bayern Munchen í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Dortmund tapaði í Berlín og staða Bæjara styrkist
Borussia Dortmund er að gefa eftir í baráttunni um efsta sæti þýsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta.

Bayern München jók forskot sitt á toppnum með stórsigri
Bayern München er nú með níu stiga forskot á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta eftir 3-0 sigur gegn Wolfsburg í kvöld.

Öruggt hjá Dortmund | Augsburg náði í stig án Alfreðs
Borussia Dortmund vann þægilegan 3-0 sigur á botnliði Greuther Fürth í þýsku úrvalsdeildinni. Alfreð Finnbogason var fjarri góðu gamni er Augsburg náði 1-1 jafntefli gegn RB Leipzig.

Kimmich enn að jafna sig og sér eftir því að hafa ekki fengið bólusetningu
Þýski landsliðsmaðurinn Joshua Kimmich hefur ekki getað æft fótbolta af fullum krafti vegna minni háttar lungnavandamála og viðurkennir að hann sjái eftir því að hafa ekki fengið bólusetningu gegn Covid-19.

Bayern komið með sex stiga forystu eftir að Dortmund missteig sig
Bayern Munchen er komið með sex stiga forystu á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar eftir að Borussia Dortmund náði aðeins jafntefli gegn Bochum.