Stjarnan

Óskar Örn kveður Stjörnuna
Óskar Örn Hauksson, leikjahæsti leikmaður í sögu efstu deildar, hefur yfirgefið Stjörnuna eftir eitt tímabil í herbúðum liðsins.

„Eru að hugsa um sjálfa sig eða einhverja tölfræði eða blablablablabla“
Arnar Daði Arnarsson hélt mikla eldræðu um lið Stjörnunnar í Seinni bylgjunni í gær. Stjörnumenn unnu ÍR-inga, 33-28, á sunnudagskvöldið. Sigurinn var þó tæpari en í stefndi í hálfleik.

„Það er gaman að fara inn í hálfleik með ellefu mörk en það þarf að sýna gæði áfram“
Patrekur Jóhannesson, þjálfari Stjörnunnar, var sérstaklega sáttur með frammistöðu sinna manna í fyrri hálfleik er liðið tók á móti ÍR í Olís-deild karla í kvöld. Stjarnan var ellefu mörkum yfir í hálfleik 21-10 en misstu forskotið niður í seinni hálfleik. Leikurinn endaði með fimm marka sigri Stjörnunnar 33-28.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan-ÍR 33-28| Öruggur sigur Stjörnunnar á ÍR
Stjarnan tók á móti ÍR í 8. umferð Olís-deildar karla í kvöld. Stjarnan byrjaði leikinn af krafti og leiddi með ellefu mörkum í hálfleik , 21-10. ÍR-ingar mættu talsvert ákveðnari í seinni hálfleik og tókst að laga stöðuna en Stjarnan hleypti þeim aldrei of nálægt sér og sigruðu að lokum með fimm mörkum, 33-28.

Einar Karl hefur rift samningi sínum við Stjörnuna
Miðjumaðurinn Einar Karl Ingvarsson hefur rift samningi sínum við lið Stjörnunnar í Bestu deild karla í fótbolta. Einar Karl nýtti sér uppsagnarákvæði í samningi sínum sem átti að renna út eftir tímabilið 2023.

Tindastóll á sigurbraut á ný
Tindastóll lagði Stjörnuna að velli í Subway-deild karla í körfuknattleik í kvöld en leikið var á Sauðárkróki. Lokatölur 98-89 og Tindastóll því kominn á sigurbraut á ný eftir tvö töp í deildinni í röð.

Jafnt hjá KA og Stjörnunni fyrir norðan
KA og Stjarnan gerðu 29-29 jafntefli þegar liðin mættust í Olís-deild karla í handknattleik á Akureyri í kvöld. Stjarnan náði mest sjö marka forystu í leiknum en KA átti frábæra endurkomu og var nálægt því að tryggja sér stigin tvö undir lokin.

Auður Scheving til liðs við silfurlið Stjörnunnar
Markvörðurinn Auður Sveinbjörnsdóttir Scheving hefur ákveðið að söðla um og ganga í raðir Stjörnunnar í Bestu deild kvenna í fótbolta. Hún var samningsbundin Íslandsmeisturum Vals.

Guðmundur yfir í Garðabæinn
Guðmundur Kristjánsson er genginn í raðir Stjörnunnar frá FH en Garðabæjarfélagið tilkynnti um komu Guðmundar með myndbandi á samfélagsmiðlum sínum í dag.

Umfjöllun og viðtöl: KR - Stjarnan 0-2 | KR-ingar halda fjórða sætinu þrátt fyrir tap
Stjarnan vann góðan 0-2 sigur er liðið heimsótti KR í lokaumferð Bestu-deildar karla í dag. Lítið sem ekkert var undir í leiknum, en KR-ingar halda þó fjórða sætinu þrátt fyrir tap í dag.

Ísak Andri valinn efnilegastur | Pétur besti dómarinn
Stjörnumaðurinn Ísak Andri Sigurgeirsson var í dag valinn efnilegasti leikmaður Bestu-deildar karla af leikmönnum deildarinnar.

Ísak gæti orðið efnilegastur og bestur
Eftir að lokaumferðinni í Bestu deild karla lýkur á morgun verður tilkynnt hvaða leikmenn urðu fyrir valinu sem besti og efnilegasti leikmaður deildarinnar í ár.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Stjarnan - Njarðvík 67-88 | Njarðvík grillaði Stjörnuna í Mathús Garðarbæjarhöllinni
Njarðvík vann öruggan 21 stigs sigur er liðið heimsótti Stjörnuna í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld. Lokatölur 67-88 í leik þar sem Njarðvíkingar höfðu mikla yfirburði.

Samblanda af fínum varnarleik hjá okkur og að þeir hafi aðeins misst hausinn
Njarðvíkingar tóku Stjörnumenn í kennslustund í Garðabænum í Subway-deild karla í kvöld, í leik sem endaði 67-88 og sigur gestanna í raun aldrei í neinni hættu. Benedikt Guðmundsson þjálfari Njarðvíkinga sagði að varnarleikur hans manna hefði lagt grunninn að sigrinum, í bland við vont kvöld Stjörnumanna.

Silfurliðið fær góðan liðsstyrk
Knattspyrnukonan Andrea Mist Pálsdóttir er gengin til liðs við Stjörnuna frá Þór/KA og mun spila með liðinu næstu árin.

Kominn aftur heim í Heiðar(s)dalinn
Heiðar Ægisson er genginn í raðir Stjörnunnar á ný, eftir eitt ár í Val. Hann fékk samningi sínum við Val rift.

Sjáðu Pohlstjörnuna, hálstakið og stórskrýtið sjálfsmark
KA-menn nýttu sér hrikaleg mistök miðvarða Stjörnunnar og eiga góða möguleika á að enda í 2. sæti Bestu deildar karla í fótbolta, eftir 3-0 sigur í Garðabæ í gær. Fram vann einnig 3-0 gegn FH og frestaði nær óumflýjanlegu falli Skagamanna niður um deild.

„Á þessum aldri er erfitt að sjá svona langt í burtu frá sér“
Ágúst Þór Gylfason, þjálfari Stjörnunnar, var ánægður með margt í spilamennsku síns liðs, þrátt fyrir 0-3 tap gegn KA í Bestu deild karla í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - KA 0-3 | Þægilegt hjá KA gegn tíu Stjörnumönnum
KA vann þægilegan sigur á Stjörnunni í 26.umferð Bestu deildarinnar í fótbolta í dag.

Sjáðu slagsmálin í leik Stjörnunnar og KA
Slagsmál brutust út í leik Stjörnunnar og KA í Bestu deildinni í fótbolta í dag.

Umfjöllun og viðtöl: Valur - Stjarnan 25-23 | Valskonur einar á toppnum
Valur er enn með fullt hús stiga eftir nauman tveggja marka sigur gegn Stjörnunni í toppslag Olís-deildar kvenna í handbolta í kvöld, 25-23.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Hörður 28-25 | Stjarnan aftur á sigurbraut
Stjarnan vann sterkan þriggja marka sigur er liðið tók á móti Herði frá Ísafirði í Olís-deild karla í handbolta í dag, 28-25. Stjörnumenn höfðu ekki unnið deildarleik frá því í fyrstu umferð og var sigurinn því langþráður.

Jasmín Erla framlengir við Stjörnuna
Jasmín Erla Ingadóttir, landsliðskona í fótbolta, hefur framlengt samning sinn við Stjörnuna. Jasmín Erla rifti samningi sínum við Stjörnuna á dögunum en nú hefur hún samið við félagið á nýjan leik.

„Hefði frekar viljað að öll skotin hefðu farið ofan í“
Stjarnan vann tólf stiga útisigur á ÍR í 3. umferð Subway deildar-karla. Arnar Guðjónsson, þjálfari Stjörnunnar, var ánægður með sigurinn.

Umfjöllun og viðtal: ÍR - Stjarnan 80-92 | Stjarnan aftur á sigurbraut
Stjarnan komst aftur á sigurbraut í Subway deildinni eftir tólf stiga sigur á ÍR 80-92. Stjörnumenn byrjuðu leikinn illa og voru fjórum stigum undir í hálfleik. Það var hins vegar allt annað Stjörnulið sem mætti í seinni hálfleik þar sem Stjarnan sýndi klærnar og rúllaði yfir ÍR.

Fagnar því að Katrín og Jasmín vilji hærri laun: „Þetta er nýr veruleiki“
Kristján Guðmundsson, þjálfari kvennaliðs Stjörnunnar í fótbolta, segir að félagið muni bregðast við því ef markahrókarnir Jasmín Erla Ingadóttir og Katrín Ásbjörnsdóttir kveðji félagið í vetur.

Jasmín og Katrín rifta samningi við Stjörnuna
Markadrottningin og nýja landsliðskonan Jasmín Erla Ingadóttir hefur rift samningi sínum við Stjörnuna og stefnir á atvinnumennsku. Katrín Ásbjörnsdóttir, sem varð þriðja markahæst í Bestu deildinni, hefur einnig nýtt ákvæði til að rifta samningi við félagið.

Seinni bylgjan: Amma Hanna sagði 99,9 prósent líkur á að hún myndi hætta en er enn að spila
Engin í Olís-deild kvenna í handbolta kemst með tærnar þar sem Hanna G. Stefánsdóttir er með hælana þegar kemur að reynslu. Hún er nefnilega á sínu 27. tímabili í meistaraflokki.

Mygla fannst undir gervigrasinu í nýju íþróttahúsi Garðbæinga
Mygla hefur fundist í gúmmíundirlagi undir gervigrasinu í Miðgarði, nýrri knattspyrnuhöll Garðbæinga, sem opnuð var fyrr á árinu. Gert er ráð fyrir að fletta þurfi upp gervigrasinu og skipta um gúmmíundirlag þó að enn liggi ekki fyrir tímasetningar hvað það varðar.

Jökull framlengir í Garðabæ
Jökull I. Elísabetarson, aðstoðarþjálfari Stjörnunnar í Bestu deild karla í fótbolta, hefur framlengt samning sinn hjá félaginu. Frá þessu greindi félagið sjálft á samfélagsmiðlum sínum í dag.