Ísafjarðarbær
3 4 5 6 7 8 9 10 11 … 31 ›
Æsispennandi eltingaleikur háhyrninga og sels Litlu mátti muna þegar hópur hárhyrninga gerði atlögu að því að klófesta sel inni í Arnarfirði í gær. Eltingaleikurinn var æsispennandi og náðist á myndband. Innlent 10.9.2023 12:06
Gylfi lætur af störfum sem forstjóri Gylfi Ólafsson hefur látið af störfum sem forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða. Hann hefur gegnt stöðunni síðan í júlí árið 2018 og hefur lokið fimm ára skipunartíma. Innlent 8.9.2023 14:24
Lögreglan óskar upplýsinga um atvik í Edinborgarhúsinu Lögreglan á Vestfjörðum handtók á dögunum mann eftir atvik við Edinborgarhúsinu á Ísafirði. Atvikið sem um ræðir átti sér stað aðfaranótt síðasta sunnudags, þriðja september. Innlent 8.9.2023 09:11
Ísfirðingar opnir fyrir sameiningu Bæjarráð Ísafjarðarbæjar segir sveitarfélagið opið fyrir viðræðum um sameiningu við Árneshrepp. Hreppsnefnd Árneshrepps lýsti í síðasta mánuði yfir vilja til viðræðna við önnur sveitarfélög um sameiningu og óskaði jafnframt eftir að fá að fylgjast með umræðum í nágrannasveitarfélögum. Innlent 5.9.2023 10:11
Ísfirðingar útvega lóð undir lendingarstað fyrir geimverur Bæjarráð Ísafjarðarbæjar hefur samþykkt tillögu nefndar um stofnun lóðar undir listaverkið Lendingarstað fyrir geimskip á Seljalandsdal fyrir ofan bæinn. Innlent 3.9.2023 08:00
Sóttu unglingsstrák í sjálfheldu í Eyrarhlíð Björgunarsveitir voru boðaðar út í dag vegna vegna unglingspilts, farþega af skemmtiferðaskipi sem var á Ísafirði, sem hafði klifið upp Eyrarhlíð og var kominn í sjálfheldu í Gleiðarhjalla. Innlent 1.9.2023 18:50
Þyrla kölluð út vegna slyss á Kistufelli Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti unglingsstrák sem slasaðist þar sem hann var á göngu með skólahópi á Kistufelli á Vestfjörðum í dag. Innlent 28.8.2023 17:31
Sigríður Ragnarsdóttir látin Sigríður Ragnarsdóttir, tónlistarkona og skólastjóri Tónlistarskólans á Ísafirði til þrjátíu ára, er látin, 73 ára að aldri. Innlent 27.8.2023 16:39
Arnarlax boðar skráningu í Kauphöllina síðar á árinu Icelandic Salmon, móðurfélag fiskeldisfyrirtækisins Arnarlax á Vestfjörðum, hefur ákveðið að hefja undirbúning að skráningu félagsins á hlutabréfamarkað á Íslandi síðar á þessu ári en félagið er fyrir skráð á Euronext Growth markaðinn í Noregi. Arnarlax er stærsta fiskeldisfyrirtæki landsins með markaðsvirði upp á meira en 60 milljarða. Innherji 24.8.2023 08:53
Aftur kölluð út vegna bráðra veikinda í skemmtiferðaskipi Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út um klukkan 11 í dag eftir að tilkynnt var um bráð veikindi manns um borð í skemmtiferðaskipi sem statt er í Dynjandisvogi í Arnarfirði. Innlent 22.8.2023 13:15
Þrisvar reitt til höggs Um hvað snýst lífið annað en að líða vel og það gerist ef fólk hefur góða heilsu, fjölskyldu hjá sér og lífsviðurværi, þ.e. vinnu sér og sínum til framdráttar. Á Íslandi velur fólk að búa víða um land. Í dreifbýli eða þéttbýli. Skoðun 21.8.2023 07:19
Allir 27 starfsmenn missa vinnuna í hópuppsögn á Ísafirði Stjórn hátæknifyrirtækisins Skagans 3X hefur ákveðið að leggja niður starfsstöð fyrirtækisins á Ísafirði og hefur öllum 27 starfsmönnum fyrirtækisins þar verið sagt upp störfum. Í tilkynningu segir að ákvörðunin sé þungbær en byggi á umfangsmikilli endurskipulagningu. Öll framleiðsla verður samþætt á Akranesi. Viðskipti innlent 18.8.2023 13:03
Keflavík til sölu Jörðin Keflavík, milli Skálavíkur og Súgandafjarðar, er til sölu. Galtarviti, sem stendur í vík milli Súgandafjarðar og Skálavíkur er að vísu undanskilinn í sölunni. Lífið 11.8.2023 18:28
Mikið fjármagn til Vestfjarða sem njóti nýjustu jarðganganna Innviðaráðherra segir rétt að gera þurfi betur í vegagerð á Vestfjörðum. Þó sé gert ráð fyrir töluverðri uppbyggingu í landshlutanum í núverandi samgönguáætlun. Mikla uppbyggingu á Suðurlandi í samanburði við aðra landshluta líkt og Vesturland megi skýra með því að fjármagni hafi verið forgangsraðað eftir umferðarþunga. Innlent 11.8.2023 15:01
Vestfirðir verði áfram jaðarsettir í nýrri samgönguáætlun Lækningavörufyrirtækið Kerecis lýsir yfir miklum vonbrigðum með fyrirliggjandi samgönguáætlun og segir Vestfirði áfram verða jaðarsetta, verði hún að veruleika. Fyrirtækið segir skattgreiðslur af nýlegri sölu fyrirtækisins duga einar og sér til að koma vegum landshlutans, sem eru sagðir með öllu óviðunandi, í viðunandi horf. Innlent 9.8.2023 21:59
Hafa samið um sjóböð í Önundarfirði Samingur hefur verið undirritaður um land undir „umhverfisvæn sjóböð“ á Hvítasandi í landi Þórustaða innst í Önundarfirði. Böðin munu nýta varmaorku úr sjó til að hita laug, potta og sturtur og verða staðsett í gamalli sandnámu við hvíta skeljasandsströnd nálægt Holtsbryggju. Viðskipti innlent 8.8.2023 13:12
Tekur við stöðu skólastjóra Lýðskólans á Flateyri Sigríður Júlía Brynleifsdóttir hefur tekið við stöðu skólastjóra Lýðskólans á Flateyri og þá hefur Erla Margrét Gunnarsdóttir tekið við stöðu kennslustjóra. Innlent 8.8.2023 12:51
Drónar bannaðir en ekki þyrlur: „Þarna leggurðu heilu hóteli inn í miðju friðlandi“ Fornleifafræðingur furðar sig á því að skemmtiferðaskipum og þyrlum sé leyfilegt að ferja ferðamenn að Dynjanda í friðlandi í Arnarfirði á meðan drónaflug sé óheimilt á þeim forsendum að það raski friði fugla og manna í friðlandinu. Innlent 4.8.2023 06:46
Fékk nýra úr frænku sinni og öðlaðist nýtt líf um leið Ísfirðingurinn Glóð Jónsdóttir öðlaðist nýtt líf fyrir tæpu ári þegar frænka hennar Svanlaug Björg Másdóttir gaf henni nýra. Reynslan hefur tengt þær stöllur órjúfanlegum böndum og 30. maí hefur nú ávallt sérstaka merkingu í huga Glóðar. Lífið 28.7.2023 12:59
Eins og að kynda upp stóran hluta Ísafjarðar Á næsta ári munu smærri skemmtiferðaskip að öllum líkindum geta landtengt sig á Ísafirði. Hafnarstjóri segir að sterkari flutningsgetu þurfi á höfnina fyrir stærri skip. Orkustjóri Orkubús Vestfjarða segir nauðsynlegt að virkja meira á Vestfjörðum. Innlent 26.7.2023 21:01
Slæm loftgæði á Ísafirði og í Hveragerði í dag Mikil loftmengun er á Ísafirði og í Hveragerði í dag og gætu viðkvæmir fundið fyrir einkennum vegna slæmra loftgæða. Gasmengun frá gosinu berst til norðurs og austurs yfir suðvestanvert landið. Innlent 24.7.2023 07:46
Gosmóðan komin til Vestfjarða: „Ef þú getur ekki komið að gosinu kemur gosið til þín“ Gosmóðan úr eldgosinu í Litla-Hrúti er nú komin til Vestfjarða. Búast má við því að hún haldi þaðan til austurs í átt að Tröllaskaga. Innlent 22.7.2023 15:01
Vonbrigði á Vestfjörðum og áfall í Árneshreppi vegna niðurskurðar Niðurskurður samgönguáætlunar seinkar uppbyggingu Vestfjarðahringsins um þrjú ár sem veldur Fjórðungssambandi Vestfirðinga miklum vonbrigðum. Í Árneshreppi eru íbúar í áfalli vegna áforma um að slá af marglofaðar vegarbætur, sem áttu að hefjast á næsta ári. Innlent 18.7.2023 23:33
„Ég er þakklátur fyrir að þetta fór ekki verr“ Betur fór en á horfðist þegar öflug alda strandaði bátnum Hesteyri ÍS 95 á Hornströndum og hvolfdi slöngubát sem notaður var til að flytja fólk og farangur í land. Reynslumikill skipstjórinn segist aldrei hafa séð annað eins. Innlent 17.7.2023 11:28
Farþegaskip strandaði á Hornströndum Farþegaskip, sem var á leið frá Ísafirði til Hornstranda, strandaði þegar komið var á leiðarenda. Engin hætta var á ferðum og komust farþegar sjálfir úr skipinu. Þeir afþökkuðu ferð til baka með björgunarbát, enda komin á áfangastað. Innlent 16.7.2023 21:30
Mýrarboltinn á Ísafirði heyrir sögunni til Mýrarboltinn á Ísafirði verður ekki haldinn í ár, frekar en fyrri ár frá því að mótið var blásið af vegna kórónaveiru árið 2020. Aðalritari hátíðarinnar segir skipuleggjendur hafa fundið sér önnur áhugamál. Innlent 13.7.2023 18:42
Met í komum skemmtiferðaskipa til Ísafjarðar Algengt er að ferðamenn sem heimsækja Ísafjörð á góðum degi séu nærri tvöfalt fleiri en fólkið sem býr í bænum. Stærstu skemmtiferðaskipin hafa þó afbókað komu sína á þessu sumri vegna tafa á stækkun Sundahafnar. Innlent 11.7.2023 20:22
Samkomulag um áframhaldandi uppbyggingu Arctic Fish á Vestfjörðum Arctic Fish ehf. hefur undirritað samkomulag um 25 milljarða króna endurfjármögnun á félaginu með sambankaláni DNB, Danske Bank, Nordea og Rabobank. Um er að ræða lánasamning til þriggja ára með möguleika á framlengingu. Fjármagnið verður notað til uppgreiðslu núverandi lána og fjármögnunar áframhaldandi vexti félagsins. Viðskipti innlent 10.7.2023 16:41
Lífsverk seldi í Kerecis rétt fyrir risasölu upp á 180 milljarða Lífeyrissjóður Verkfræðinga, sem forstjóri og stofnandi Kerecis gagnrýnir harðlega fyrir að hafa sett sig ítrekað upp á móti kaupréttaráætlun félagsins, losaði um hlut sinn skömmu áður en fyrirtækið var selt til alþjóðlegs heilbrigðisrisa í lok síðustu viku fyrir nærri 180 milljarða. Tveir aðrir lífeyrissjóðir, sem komu fyrst inn í hluthafahópinn í fyrra, tvöfölduðu fjárfestingu sína í Kerecis á innan við einu ári. Innherji 10.7.2023 12:10
Segir þörf á mannsæmandi samgöngum til Vestfjarða Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi Kerecis, segir þörf á mannsæmandi samgöngum á Vestfjörðum. Mikill vöxtur væri á svæðinu og gera þyrfti mun betur þegar kæmi að samgöngum. Innlent 9.7.2023 14:30