Rússland
8 9 10 11 12 13 14 15 16 … 99 ›
Sigurinn fordæmdur af evrópskum og bandarískum stjórnvöldum Stjórnvöld í Evrópu og Bandaríkjunum hafa fordæmt úrslit forsetakosninganna í Rússlandi sem fram fóru um helgina. Á meðan hafa stjórnvöld í Kína, Indlandi, Norður Kóreu og Íran óskað Pútín til hamingju með sigurinn. Erlent 18.3.2024 21:10
Úkraínumenn senda fjölda dróna langt inn í Rússland Varnarmálaráðuneyti Rússlands sakar stjórnvöld í Úkraínu um að hafa reynt að hafa áhrif á forsetakosningarnar í landinu með einni umfangsmestu drónaárás sem Úkraínumenn hafa gert á Rússland. Erlent 18.3.2024 08:24
Pútín fagnar sigri Vladímír Pútín hefur lýst yfir sigri í forsetakosningunum í Rússlandi. Erlent 17.3.2024 21:29
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Pútín sagður ætla að „taka til“ eftir kosningarnar Hægt hefur á sókn Rússa vestur af Avdívka, fyrstu borgina sem fallið hefur í hendur Rússa um langt skeið. Rússneskir hermenn gera þó áfram tiltölulega smáar árásir víðsvegar á víglínunni í austurhluta Rússlands, að virðist í leit að veikleikum á vörnum Úkraínumanna. Erlent 17.3.2024 08:00
Sorgardagur í Odessa Tuttugu hið minnsta eru látnir og tugir særðir eftir eldflaugaárás Rússa á borgina Odessa í Úkraínu í dag. Sorgardegi hefur verið lýst yfir í borginni á morgun. Þá hófust forsetakosningar í Rússlandi í dag; enn önnur sex ár af Vladímír Pútín blasa við. Erlent 15.3.2024 21:27
Forsetakosningar hafnar í Rússlandi Forsetakosningar eru hafnar í Rússlandi en þær standa í þrjá daga í þessu víðfema landi. Vladímír Pútín er svo gott sem einn í kjöri og talinn öruggur um að hljóta kosningu í fimmta sinn í embættið. Erlent 15.3.2024 07:00
„Vopnin eru til þess að nota þau“ Vladimír Pútín, forseti Rússlands, ítrekaði enn eina ferðina í morgun að Rússar væru tilbúnir fyrir kjarnorkustyrjöld. Notkun slíkra vopna kæmi til greina ef öryggi Rússlands eða fullveldi væri ógnað. Erlent 13.3.2024 13:52
Ráðist á vopnabróður Navalnís með hamri Ráðist var á Leonid Volkov, sem var lengi vel bandamaður Alexeis Navalnís, fyrir utan heimili hans í Vilníus, höfuðborg Litáen, í kvöld. Erlent 12.3.2024 23:44
Herflugvél brotlenti skömmu eftir flugtak Fimmtán eru sagðir hafa dáið þegar rússnesk herflugvél af gerðinni Il-76 brotlenti skömmu eftir flugtak í morgun. Myndbönd sýna að minnsta kosti einn hreyfil flugvélarinnar í ljósum logum skömmu eftir flugtak og féll hann af henni áður en hún brotlenti. Erlent 12.3.2024 11:34
Gerðu árásir í átta héruðum Rússlands Úkraínumenn gerðu umfangsmiklar drónaárásir í að minnsta kosti átta héruðum Rússlands í nótt. Í einu tilfelli var gerð árás á olíuvinnslustöð í um 775 kílómetra fjarlægð frá landamærum Úkraínu. Þá hafa rússneskir menn sem berjast með Úkraínu gert aðra atlögu inn í Belgórodhérað og Kúrskhérað í Rússlandi. Erlent 12.3.2024 10:42
Alþjóðahreyfingin krafin aðgerða vegna Rauða krossins í Rússlandi Alþjóðahreyfing Rauða krossins og Rauða hálfmánans er nú sögð sæta þrýstingi af hálfu þjóða sem leggja samtökunum til fjármagn um að grípa til aðgerða vegna þjónkunnar Rauða krossins í Rússlandi við þarlend stjórnvöld. Erlent 12.3.2024 07:03
Mátu helmingslíkur á kjarnorkustyrjöld haustið 2022 Haustið 2022 mátu yfirvöld í Bandaríkjunum stöðu mála í Úkraínu þannig að það væru helmingslíkur á að stjórnvöld í Rússlandi myndu beita kjarnorkuvopnum til að stöðva Úkraínumenn ef herinn kæmist í gegnum varnir Rússa á Krímskaga. Erlent 12.3.2024 06:21
Segir Trump ætla að stöðva alla aðstoð handa Úkraínumönnum Viktor Orban, umdeildur forsætisráðherra Ungverjalands, segir Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna og núverandi forsetaframbjóðanda, hafa sagt sér að verði hann forseti á nýjan leik muni hann binda endi á alla hernaðaraðstoð til Úkraínu. Það er samkvæmt Orban liður í „nákvæmum áætlunum“ Trumps um að binda enda á stríðið í Úkraínu. Erlent 11.3.2024 14:26
Danir skuli forðast fjöldasamkomur vegna hryðjuverkahættu Danska utanríkisráðuneytið hefur varað danska ríkisborgara búsetta í Moskvu við að sækja fjöldasamkomur í borginni um helgina. Í varúðartilkynningu til þeirra kemur fram að aukin hætta sé á árásum á fjöldasamkomur í Moskvu. Ekki liggur þó fyrir hvað býr á baki þessum viðvörunum. Erlent 8.3.2024 22:45
Vara við árásum öfgamanna í Moskvu Sendiráð Bandaríkjanna í Moskvu varaði við því í gærkvöldi að „öfgamenn“ hyggðu á árásir í borginni. Til stæði að ráðast á staði þar sem fólk kæmi saman, eins og á tónleikum, og voru Bandaríkjamönnum í Rússlandi ráðlagt að forðast mannmergð næstu tvo sólarhringa. Erlent 8.3.2024 10:28
Stríðið í Úkraínu háð í Súdan Þegar herforinginn Abdel Fattah al-Burhan, leiðtogi hers Súdan, átti í miklu basli síðasta sumar vegna uppreisnar fyrrverandi samstarfsmanns hans, Mohamed Hamdan Daglo, leiðtogi öflugra sveita sem kallast RSF, hringdi hann til Úkraínu eftir aðstoð. Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, svaraði kallinu. Erlent 7.3.2024 08:00
Sprengdu loks fyrsta HIMARS-kerfið Svo virðist sem rússneskir hermenn hafi loks náð að granda M142 HIMARS-eldflaugakerfi í Úkraínu. Í það minnsta gerðist það í fyrsta sinn í gær að Rússar birtu myndband af vel heppnaðri árás þar sem sjá má HIMARS-kerfi grandað. Erlent 6.3.2024 10:55
Lýsa eftir rússneskum herforingjum fyrir glæpi gegn mannkyninu Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn í Haag hefur gefið út handtökuskipun á hendur tveimur háttsettum rússneskum herforingjum fyrir glæpi gegn mannkyninu. Þeir eru sakaðir um umfangsmiklar árásir á borgara og borgaralega innviði í Úkraínu. Erlent 5.3.2024 14:21
Sökktu enn einu herskipinu Úkraínumenn virðast hafa sökkt enn einu rússneska herskipinu á Svartahafi í nótt. Leyniþjónusta úkraínska hersins (GUR) birti í morgun myndband af drónaárás sem gerð var á skipið Sergei Kotov og fylgir myndbandinu að skipið hafi sokkið. Erlent 5.3.2024 10:28
Navalní borinn til grafar Jarðarför helsta andstæðings Rússlandsforseta Vladimírs Pútín fer fram í Moskvu höfuðborg Rússlands í dag. Fjöldi fólks hefur safnast saman fyrir utan kirkjuna þar sem athöfnin fer fram í suðausturhluta Moskvu í hverfinu Maryino, þar sem Navalní átti áður heima. Erlent 1.3.2024 11:34
Varar Vesturlönd við því að senda hermenn inn í Úkraínu Rússland er „stoð lýðræðis“ og Vesturlönd, sem freistuðu þess að stuðla að úrkynjun þjóðarinnar hafa tapað þeirri baráttu. Þetta sagði Vladimír Pútín Rússlandsforseti nú fyrir stundu, í árlegri stefnuræðu sinni fyrir rússneska þinginu. Erlent 29.2.2024 10:05
Yfirvöld í Transnistríu biðla til Rússa um aðstoð Bandaríkjamenn segjast fylgjast grannt með þróun mála í Transnistríu, eftir að yfirvöld á sjálfsstjórnarsvæðinu biðluðu til Rússa um „vernd“. Erlent 29.2.2024 08:44
Navalní borinn til grafar á föstudag Alexei Navalní verður borinn til grafar í Moskvu á föstudag. Það staðfestir talsmaður tengdur honum. Athöfnin fer fram í Borisovskoye kirkjugarðinum í Moskvu eftir kveðjuathöfn sem haldin verður í Maryino hverfi borgarinnar. Erlent 28.2.2024 10:31
Einn helsti mannréttindafrömuður Rússlands dæmdur í fangelsi Oleg Orlov, einn fremsti mannréttindafrömuður Rússlands, hefur verið dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi af dómstóli í Moskvu. Hinn sjötugi Orlov var dæmdur fyrir að „vanvirða“ rússneska hersins ítrekað með því að lýsa yfir andstöðu við innrásina í Úkraínu. Erlent 27.2.2024 18:06
Rannsaka aftöku á minnst sjö stríðsföngum Yfirvöld í Úkraínu hafa til rannsóknar myndband sem virðist sýna rússneska hermenn taka minnst sjö úkraínska hermenn sem hafa gefist upp af lífi. Atvikið var fangað á myndband með dróna sem var yfir svæðinu. Erlent 26.2.2024 22:46
Fyrsta Abrams skriðdrekanum grandað nærri Avdívka Úkraínskir hermenn hafa hörfað frá þorpi í austurhluta Úkraínu, skammt vestur af borginni Avdívka, sem féll nýverið í hendur Rússa eftir gífurlega harða bardaga frá því í október. Þaðan hörfuðu hermenn til þorpsins Lastochkyne og hafa þeir nú hörfað lengra til vesturs. Erlent 26.2.2024 18:42
Segir Pútín hafa hætt við yfirvofandi fangaskipti og látið myrða Navalní Andófsmaðurinn Alexei Navalní var í þann mund að verða frjáls maður þegar hann lést skyndilega í fangelsi í Rússlandi 15. febrúar síðastliðinn. Erlent 26.2.2024 12:56
Lík Navalní afhent móður hans Lík rússneska andspyrnuleiðtogans Alexej Navalní hefur verið afhent Ljúdmílu Navalnaja móður hans. Hann lést í fangelsi í Síberíu á dögunum. Erlent 24.2.2024 17:15
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Úkraínumenn í slæmri stöðu eftir tveggja ára átök Eftir tveggja ára stríðsrekstur hefur Rússum vaxið ásmegin í átökunum í Úkraínu. Þeir hafa sótt fram í austurhluta landsins og eru byrjaðir á umfangsmiklum árásum í suðri. Ólíklegt er þó að þeir hafi burði til að leggja umfangsmikil landsvæði undir sig, að svo stöddu. Erlent 24.2.2024 08:01
Vaknaðu núna Svokallaðir sérfræðingar í varnarmálum flykkjast nú hver af öðrum í fjölmiðla með áróður hergagnaiðnaðirns að þjóðir Evrópu verði að setja stóraukin fjáraustur í hermangið. Skoðun 23.2.2024 11:31