Flug
57 58 59 60 61 62 63 64 65 … 173 ›
Úkraínskur auðjöfur grunaður um landráð Úkraínska öryggislögreglan hefur handtekið Vyacheslav Boguslaev, einn ríkasta auðjöfur Úkraínu og fyrrverandi eiganda umsvifamikillar hreyflaverksmiðju. Hann er grunaður um landráð. Erlent 23.10.2022 08:15
Þýskur líkamsræktarfrömuður um borð í vélinni sem hvarf Þýski líkamsræktarfrömuðurinn Rainer Schaller er talinn hafa verið um borð í flugvélinni sem hvarf í gærkvöldi. Förinni var heitið frá Mexíkó til Kosta ríka. Yfirvöld telja sig hafa fundið flak vélarinnar í Karíbahafi en hættu við leit í gær vegna slæms veðurs. Erlent 22.10.2022 16:38
Alicante-farar fá engar bætur eftir að Play flaug með leiguflugvél í stað Airbus Fjórir viðskiptavinir Play fá engar skaðabætur úr hendi flugfélagsins eftir að það neyddist til að notast við leiguflugvél í áætlunarflugi til Alicante á Spáni í júní síðastliðnum. Hópurinn kvartaði þar sem hann taldi að um niðurfærslu í flugi væri að ræða og að þau hafi borgað fyrir að fljúga með Airbus-vél flugfélagsins. Neytendur 21.10.2022 10:49
Farþegatekjur Icelandair 54 milljarðar og aldrei verið meiri á einum fjórðungi Icelandair skilaði rekstrarhagnaði (EBIT) upp á 92,7 milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði 12,3 milljarða króna, á þriðja ársfjórðungi og jókst hann um 11,2 milljarða frá sama tímabili í fyrra. Forstjóri flugfélagsins segir að með því að skila svo góðu uppgjöri á þessum tímapunkti á grundvelli sterkrar tekjumyndunar sýni „augljóslega að viðskiptalíkan félagsins sé að sanna gildi sitt.“ Innherji 20.10.2022 16:21
Munu fljúga til Aþenu næsta sumar Flugfélagið Play hefur hafið miðasölu á áætlunarferðum til grísku höfuðborgarinnar Aþenu. Áætlað er að fyrsta ferðin verði farin 2. júní 2023 en flogið verður tvisvar í viku, á mánudögum og föstudögum, út október 2023. Viðskipti innlent 19.10.2022 09:06
Segir alla elska Akureyrarflugvöll Umsvif flugvallarins á Akureyri eru alltaf að aukast og aukast enda mikið um farþegaþotur, sem koma með farþega á völlinn eða fljúga út með farþega í millilandaflugi . Þá er verið að stækka flugstöðina. „Það elska allir flugvöllinn á Akureyri,“ segir flugvallarstjórinn. Innlent 17.10.2022 20:31
Orrustuþota brotlenti á fjölbýlishúsi í Rússlandi Rússnesk orrustuþota brotlenti á fjölbýlishúsi í borginni Yeysk í suðurhluta Rússlands í dag. Minnst tveir eru látnir en mikill eldur kviknaði í húsinu við brotlendinguna. Erlent 17.10.2022 18:07
Daginn sem Icelandair skaut sig í fótinn Á þessum degi í október fyrir 20 árum kynnti Icelandair „Netsmellur“ til sögunnar, helmingi lægri fargjöld en áður höfðu þekkst hjá félaginu. Þessi fargjöld stóðu engan veginn undir kostnaði Icelandair af flugferðunum. Enda var tilgangur þeirra ekki sá, heldur að fórna tekjum með stórfelldum undirboðum til að drepa fyrirhugaða samkeppni frá Iceland Express. Skoðun 17.10.2022 08:01
Margrét Friðriks krefst 29 milljóna vegna brottvísunarinnar Margrét Friðriksdóttir, ritstjóri vefsins Frettin.is, krefst rúmlega 29 milljóna króna vegna brottvísunar úr flugvél Icelandair í septembermánuði. Hún krefst meðal annars bóta vegna aukins launakostnaðar í 7 daga, samtals 150 þúsund krónur á dag. Innlent 16.10.2022 12:03
Jómfrúin opnar á Keflavíkurflugvelli Veitingastaðurinn Jómfrúin og bistro-staður undir nafninu Elda munu opna í Keflavíkurflugvelli í febrúar næstkomandi. Snorri Victor Gylfason, kokkur á Vox mun sjá um þróun og hönnun á öllum réttum Elda. Viðskipti innlent 14.10.2022 11:02
Innanlandsvélar Icelandair gætu verið knúnar vetni eftir þrjú ár Tækni til að umbreyta olíuknúnum innanlandsflota Icelandair í vetnisknúnar flugvélar verður tilbúin eftir þrjú ár. Þetta kom fram á fundi um orkuskipti í flugi á Reykjavik Edition hótelinu í dag í tengslum við Hringborð norðurslóða. Innlent 13.10.2022 22:23
Bein útsending: Orkuskipti í flugi - tækifæri fyrir Ísland Morgunfundur Icelandair, Isavia, Landsvirkjunar og Samtaka ferðaþjónustunnar sem ber yfirskriftina Orkuskipti í flugi - tækifæri fyrir Ísland hefst í dag klukkan 8:30. Búist er við því að fundinum ljúki klukkan 10. Viðskipti innlent 13.10.2022 08:01
Segist heyra margar kjaftasögur um Play en blæs á þær allar Birgir Jónsson, forstjóri flugfélagsins Play, segist heyra margar kjaftasögur um starfsemi félagsins. Hann blæs á þær allar og minnir á að félagið sé skráð á markað. Viðskipti innlent 12.10.2022 19:41
Ráðinn nýr fjármálastjóri Play Ólafur Þór Jóhannesson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fjármálasviðs PLAY. Hann tekur við starfinu af Þóru Eggertsdóttur og hefur störf í byrjun nóvember. Viðskipti innlent 11.10.2022 09:07
Hróp og köll gerð að forstjórum Air France og Airbus vegna flugslyssins mannskæða fyrir þrettán árum Aðstandendur þeirra sem létust þegar Airbus-þota franska flugfélagsins Air France hrapaði í Atlantshaf árið 2009 gerðu hróp og köll að forstjórum flugvélaframleiðandans og flugfélagsins þegar dómsmál vegna flugslysins hófst í Frakklandi í dag. Erlent 10.10.2022 22:23
Aftur byrjuð að ávarpa farþega fyrst á íslensku Flugliðar í áhöfn flugvéla Icelandair eru aftur farnir að ávarpa farþega fyrst á íslensku og að því loknu á ensku við flugtak og lendingu. Með þessu er horfið aftur til þess sem áður var, en fyrir nokkrum árum var fyrirkomulaginu breytt og farþegar fyrst ávarpaðir á ensku. Innlent 10.10.2022 06:31
Spáð að þessi verði fyrsta rafknúna farþegaflugvélin Þegar rafmagnsflugvélin Alice hóf sig til flugs fyrir tólf dögum frá Grant County-alþjóðaflugvellinum í Washington-ríki í Bandaríkjunum sagði CNN-fréttastofan að hún væri fyrsta farþegaflugvél heims, sem alfarið væri rafknúin, til að taka flugið. Þetta fyrsta reynsluflug hennar varði í átta mínútur og fór hún í 3.500 feta hæð. Viðskipti erlent 9.10.2022 14:14
Besta sætanýting í september frá upphafi Sætanýting Icelandair í september var 83,3 prósent. Um er að ræða bestu sætanýtingu félagsins í september frá upphafi. Heildarfarþegafjöldi félagsins í september var 387 þúsund. Viðskipti innlent 7.10.2022 10:06
Rúmlega þrjú þúsund sóttu um hjá Play Alls sóttu um þrjú þúsund manns um stöður hjá Play þegar flugfélagið auglýsti eftir 150 flugliðum og 55 flugmönnum á dögunum. Viðskipti innlent 7.10.2022 09:58
Taka upp áætlunarflug til Las Palmas Icelandair hefur hafið sölu á flugi til Las Palmas á Gran Canaria sem er nýr áfangastaður í leiðakerfi félagsins. Viðskipti innlent 6.10.2022 11:22
Bætir við sig öðrum áfangastað í Portúgal Flugfélagið Play hefur hafið sölu á áætlunarferðum til borgarinnar Porto í Portúgal. Viðskipti innlent 6.10.2022 10:32
Vonast til að öryggis- og varnarsamstarf borgi rekstur Kangerlussuaq-flugvallar Stærsti stjórnmálaflokkur Grænlands, Siumut, vonast til að samningar um öryggis- og varnarsamstarf við danska herinn, og hugsanlega einnig Bandaríkin, greiði hluta af þeim kostnaði sem fylgir því að reka flugvöllinn í Kangerlussuaq áfram eftir að hann missir hlutverk sitt sem aðalflugvöllur Grænlands eftir tvö ár. Þetta sagði talsmaður flokksins, Doris J. Jensen, í umræðum í grænlenska þinginu í liðinni viku. Erlent 2.10.2022 11:08
Ískyggilegar aðstæður á slysaæfingu Mörgum brá ef til vill í brún vegna elds og mikils viðbúnaðar á Reykjavíkurflugvelli í morgun. Þar var verið að halda stórslysaæfingu á vegum Isavia og almannavarna þar sem æfð voru viðbrögð við umfangsmiklu flugslysi. Hér í innslaginu að ofan má virða fyrir sér aðstæður á „slysstað.“ Innlent 1.10.2022 19:36
Sprengjuhótunin barst til UPS í Bandaríkjunum Keflavíkurflugvelli var lokað í nótt eftir að flugvél var lent vegna sprengjuhótunar sem barst bandaríska flutningafyrirtækinu UPS og beindist að pakka um borð. Í honum reyndust vera eftirlíkingar af skotvopnum, flugeldar og vökvi sem lögregla er með til rannsóknar. Innlent 29.9.2022 12:08
Margrét fær ekki endurgreitt og ætlar í hart við Icelandair Margrét Friðriksdóttir, ritstjóri vefsins Frettin.is, fær ekki endurgreitt frá Icelandair eftir að henni var vísað úr flugvél félagsins í lögreglufylgd í síðustu viku. Hún segist munu fara með málið fyrir dómstóla en Icelandair segir starfsfólk ekki átt annarra kost á völ en að fylgja henni frá borði. Innlent 29.9.2022 10:33
Fundu flugelda og eftirlíkingar af skotvopnum í pakka um borð Lögreglan á Suðurnesjum fann pakka um borð flugvélar UPS sem lenti á Keflavíkurflugvelli í gær en pakkinn innihélt flugelda og eftirlíkingar af skotvopnum. Málið er nú til rannsóknar en enginn var í hættu á meðan aðgerðum stóð að sögn lögreglu. Keflavíkurflugvelli var lokað í um fjóra klukkutíma í nótt vegna málsins. Innlent 29.9.2022 08:52
Engin sprengja fundist enn sem komið er Lögregla er enn að störfum á Keflavíkurflugvelli eftir að sprengjuhótun um borð í flugvél barst í gærkvöldi. Flugvellinum var lokað um tíma en samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var opnað aftur fyrir umferð í nótt. Engin sprengja hefur enn fundist. Innlent 29.9.2022 06:23
Flugvélum beint frá Keflavík vegna sprengjuhótunar Flutningaflugvél UPS lenti á Keflavíkurflugvelli upp úr klukkan ellefu í kvöld vegna sprengjuhótunar. Samkvæmt heimildum fréttastofu var flugvélin á leið frá Köln í Þýskalandi til Kentucky í Bandaríkjunum þegar flugstjóri óskaði eftir leyfi til lendingar á Keflavíkurflugvelli vegna sprengjuhótunar. Ekki er vitað nánar hvernig sú hótun barst áhöfn flugvélarinnar. Innlent 29.9.2022 00:21
„Sé hina vélina skuggalega nálægt“ „Þetta var alveg mikill skellur,“ segir Evalilja Bjarnadóttir, ein þeirra farþega sem sátu í flugvél Icelandair sem lenti í árekstri á Heathrow fyrr í kvöld. Innlent 28.9.2022 22:35
Vél Icelandair lenti í minniháttar árekstri Vél Icelandair lenti í minniháttar árekstri við vél frá Koreanair á flugvellinum Heathrow í London í í kringum klukkan átta í kvöld. Enginn slasaðist og engar tafir eru á flugum til og frá flugvellinum. Innlent 28.9.2022 21:11