Þór Akureyri

Þór Akureyri

Fréttir af Íþróttafélaginu Þór á Akureyri.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Frestun á frestun ofan í martraðarheimferð frá Gauta­borg

Heimferð fótboltakrakka og aðstandenda þeirra úr Garðabæ og Akureyri eftir fótboltamót í Gautaborg hefur enn frestast vegna vandræðagangs Icelandair við að fljúga hópnum heim. Foreldrar hrósa viðhorfi barnanna en eru hugsi yfir vinnubrögðum flugfélagsins.

Innlent
Fréttamynd

„Þurfum að læra að stýra spennustiginu á milli verk­efna“

„Þetta var ekki góður leikur hjá okkur, mikið af tæknifeilum. Við vorum bara ekki líkir sjálfum okkur. Við vorum að taka góð hlaup bak við vörnina og þá var sendingin kannski of löng, þannig einfaldar sendingar voru að klikka.“ sagði Sölvi Geir Ottesen Jónsson þjálfari Víkings eftir fyrsta tapleik liðsins í Bestu deildinni í sumar gegn Þór á Akureyri í dag, 2-1. 

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Eina leiðin er upp“

„Fagmannleg frammistaða hjá okkur, mér fannst við loka vel á styrkleika þeirra og unnum þetta saman sem lið í dag. Það hefur vantað smá geðveiki í þetta en við vorum fínir í því í dag og það skóp þennan sigur,“ sagði Aron Einar Gunnarsson eftir 2-1 sigur á Víking Reykjavík á Akureyri í dag.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Aron Einar og Gyrðir Hrafn í Þór

Aron Einar Gunnarsson, fyrrverandi landsliðsfyrirliði, er mættur heim í Þorpið og mun spila með Þór út leiktíðina í Bestu deildinni í fótbolta. Gyrðir Hrafn Guðbrandsson er sömuleiðis kominn til Þórs, að láni frá KR.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Búið að opna gluggann: Hvað er búið að gerast og hvað þarf að gerast?

Félagaskiptaglugginn á Íslandi verður opnaður á ný í dag, 16. júlí. Þá gefst liðum tækifæri til að styrkja sig fyrir seinni hluta tímabilsins. En hvað eru liðin í Bestu deild karla búin að gera og hvað þurfa þau að gera í glugganum? Vísir leitaði til Baldurs Sigurðssonar, sérfræðings Stúkunnar, um hvað liðin tólf þyrftu að gera áður en glugganum verður lokað 12. ágúst.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Við erum að spila hérna á móti Paragvæ nánast“

„Ég er ánægður með frammistöðuna, mér fannst við spila mjög fínan leik í dag. Þannig ég er bara sáttur við stelpurnar,“ sagði Gylfi Tryggvason þjálfari Grindavík/Njarðvík eftir 1-0 tap á móti Þór/KA á útivelli í kvöld. 

Sport
Fréttamynd

Átti Amin að sjá rautt?

Akureyringar kröfðust þess að Amin Cosic, leikmaður KR, sæi rautt spjald í leik við Þór norðan heiða í gær. Hann virtist traðka á Christian Greko Jakobsen, leikmanni Þórs.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Mér leið svipað í 3-0 eins og í 0-0“

„Mér fannst við bara flottir, við gáfum allt í þetta. Við erum að spila á móti liði sem að hefðu geta lent 7-0 undir en hefðu samt alltaf komið aftur á okkur og haft trú á því að þeir væru að fara að vinna leikinn,“ sagði Sigurður Heiðar Höskuldsson þjálfari Þórs eftir 3-3 jafntefli á móti KR á Akureyri í dag. 

Íslenski boltinn