Íslenski boltinn

„Reynum að kveikja í hræðslu hjá þeim“

Valur Páll Eiríksson skrifar
Sigurður Heiðar Höskuldsson er spenntur fyrir því að komast aftur út á völl og mæta Eyjamönnum í gríðarlega mikilvægum leik í dag.
Sigurður Heiðar Höskuldsson er spenntur fyrir því að komast aftur út á völl og mæta Eyjamönnum í gríðarlega mikilvægum leik í dag. Vísir / Hulda Margrét

Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, hlakkar til að komast aftur út á völl með sitt lið eftir langa landsliðspásu. Gríðarlega mikilvægur leikur við ÍBV er fram undan á Akureyri í dag.

Þrír leikir fara fram í neðri hluta deildarinnar í dag og þeir eru allir klukkan 14:00. Flestra augu eru á leik Þórs og ÍBV og gert ráð fyrir að taplið þess leiks sé gott sem fallið. ÍBV er á botni deildarinnar með 19 stig en Þór með 21 stig í efra fallsætinu.

Þórsarar hafa líkt og aðrir haft langan tíma til að undirbúa leikinn eftir þriggja vikna landsleikjapásu og menn spenntir að komast aftur út á völl.

„Já, já. Við höfðum alveg gott af viku pásu og sérstaklega eftir leikinn sem við spiluðum á móti KA. Það var gott að komast aðeins frá þessu og fá að pústa aðeins í einrúmi. Við áttum svo fína æfingaviku og spiluðum svo alvöru æfingaleik við KR síðustu helgi. Þannig að ég held að undirbúningurinn okkar í þessu fríi sé bara búinn að vera mjög góður og eins og þú segir, bara spenningur að spila þennan leik á eftir, það er klárt,“ segir Sigurður í samtali við Vísi.

Er eitthvað sérstakt sem þið hafið einblínt á, á þessum æfingum?

„Við erum búnir að vera einblína á hugarfarið. Að finna hjá okkur sjálfstraust og kraft til að einhvern veginn sækja þessa þrjá leiki, ekki koma hræddir inn í þetta og eitthvað varkárir,“ segir Sigurður en þrjár umferðir eru eftir af deildinni sem skera úr um það hvort Þór haldi sæti sínu eða ekki.

„Við ætlum bara að mæta með kassann úti, trúa á okkar og reyna að draga fram þetta hjá okkur sem að við höfum gert þegar við höfum verið góðir. Þá höfum við verið mjög góðir að okkar mati, en það hefur ekki verið nægilega oft og ekki nægilega lengi en samt þannig bragur á okkur svona undanfarið – fyrir utan eða síðasta leik,“

Ég meina, við erum búnir að vinna þrjá síðustu fjórum heimaleikjum þannig að sjálfstraustið er þarna og trúin á þetta er til staðar. Þannig að við erum bara búnir að vera að einblína á það og ætlum bara að finna það hjá okkur í þessum síðustu leikjum,“ segir Sigurður.

Talandi um sjálfstraust, þá eruð þið nú að mæta Eyjaliði sem að hefur nú varla unnið leik síðan fyrir stríð. Það er 4. júlí sem þeir vinna síðast leik. Hvernig býstu við Eyjamönnunum í dag?

„Ég bara býst við þeim dýrvitlausum. Ég held að þeir horfi á það þannig að þeir megi ekki tapa. Þannig að þeir koma dýrvitlausir með blóð á tönnunum en við þurfum einhvern veginn að stoppa það sem að þeir eru góðir í og ekki hleypa þeim í sinn leik. Þeir eru að mínu mati betra lið en taflan sýnir og þeir verða mjög erfiðir en við þurfum einhvern veginn líka að reyna að kveikja í hræðslu hjá þeim að mega ekki tapa og það er svona það sem að svona okkar markmið,“ segir Sigurður en Þór er tveimur stigum ofar en ÍBV sem situr á botninum og bæði í fallsæti.

Vinni Þór leik dagsins og KA tapi sínum leik fyrir Stjörnunni í Garðabæ fara Þórsarar upp fyrir granna sína af fallsvæðinu. Það er draumastaðan eftir daginn.

„Það er það klárlega. En það er bara gamla klisjan. Við erum bara með fókus á sjálfa okkur og markmiðið okkar er náttúrulega bara að vinna alla þessa þrjá leiki sem eftir eru, tveir heimaleikir og svo útileikur í síðustu umferð. Þannig að við höfum bara þannig trú á okkur og ég held að ef við klárum okkar það sem eftir er að þá munum við alltaf enda uppi sko,“ segir Sigurður.

Leikir dagsins í Bestu deild karla:

  • 14:00 Stjarnan - KA (Sýn Sport Ísland)
  • 14:00 Valur - FH (Sýn Sport Ísland 2)
  • 14:00 Þór - ÍBV (Sýn Sport Ísland 3)
  • 19:15 Fram - KR (Sýn Sport Ísland)



Fleiri fréttir

Sjá meira


×