Birtir launaseðla leikskólaleiðbeinenda Töluverður munur er á launum leikskólaleiðbeinenda sem vinna í Reykjavík og í Kópavogi. Samkvæmt launaseðlum sem formaður BSRB birtir í dag fær leiðbeinandi í Kópavogi um 45 þúsund krónum minna í heildarlaun fyrir skatt. Innlent 25. maí 2023 17:43
Afar ósáttur við auglýsingar BSRB sem hann telur ólöglegar Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, er allt annað en sáttur við auglýsingar BSRB í nafni Reykjanesbæjar þar sem óskað er eftir nægjusömum starfskrafti. Félagsmenn í Starfsmannafélagi Suðurnesja lögðu niður störf í grunnskólum í dag og fjölmenntu á bókasafn bæjarsins í morgun og hittu fyrir bæjarstjórann. Innlent 24. maí 2023 12:00
Yfirlýsing vegna MA málsins Þann 11. maí síðastliðin gaf Menntaskólinn á Akureyri út yfirlýsingu og bað þar geranda afsökunar á að hafa trúað því sem þau kalla „sögusögn“. Skoðun 24. maí 2023 07:30
Mesta brottfall í Evrópu Brottfall ungs fólks úr námi er á uppleið aftur eftir covid faraldurinn og er nú það hæsta í Evrópu. Tvöfalt fleiri drengir hverfa á brott úr námi en stúlkur. Dósent í félagsfræði segir vandann hefjast í grunnskólum. Innlent 24. maí 2023 07:00
Sú fyrsta sem fær tíu í einkunn fyrir meistaravörn Guðrún Sólveig Sigríðardóttir Pöpperl, laganemi við Háskóla Íslands, hlaut í gær 10 í einkunn fyrir vörn á meistararitgerð sinni í greininni. Þetta er í fyrsta sinn sem hæsta einkunn er gefin fyrir meistararitgerð við deildina. Lífið 23. maí 2023 15:17
Amma kölluð út í morgun vegna verkfalla Verkföll BSRB hófust af fullum þunga í morgun í níu sveitarfélögum. Samband íslenskra sveitarfélaga og BSRB funduðu hjá ríkissáttasemjara síðdegis en enn er langt í land. Amma var kölluð út í morgun vegna verkfalla í leikskólanum hjá einu barnabarninu. Innlent 22. maí 2023 18:49
Getur ekki sótt þá slitnu skólastarfsemi sem er í boði vegna verkfalla Verkföll BSRB hófust að fullum þunga í tíu sveitarfélögum í dag. Samtal er í gangi milli samningsaðila þó ekki hafi veirð formlega fundað í tæpar tvær vikur. Foreldri fatlaðs barns í Ölfus segir verkföllin hafa mikil áhrif en óvíst er hvort foreldrar fái veikindafrí, þurfi að taka út sumarfrí eða verði launalausir til að vera heima með börnunum. Innlent 22. maí 2023 12:57
Sameining Kvennó og MS: Til varnar því sem vel er gert Ég hef hugsað mér að láta af störfum sem framhaldsskólakennari vorið 2024 eftir 24 ára starf við Kvennaskólann í Reykjavík. Þá eru jafnframt liðin 50 ár frá því ég útskrifaðist úr skólanum með landspróf upp á vasann. Síðar sama ár verður skólinn 150 ára þannig að ég hef fylgt skólanum í þriðjung af þeim tíma sem hann hefur starfað. Skoðun 21. maí 2023 14:00
„Þetta er blaut tuska í andlitið á Þóru Melsteð stofnanda Kvennaskólans“ Fyrirhugaðri sameiningu Menntaskólans við Sund og Kvennaskólans í Reykjavík var harðlega mótmælt á fjöldafundi í dag. Nemendur og kennarar skoruðu á menntamálaráðherra að falla frá hugmyndinni; menningarverðmæti beggja skóla muni glatast við samrunann. Innlent 19. maí 2023 23:01
Gelkúlur úr leikfangabyssum valda usla á leikskólalóðum Gelkúlur úr leikfangabyssum eru farnar að valda usla á leikskólalóðum landsins. Kennarar biðla til foreldra barna og unglinga að halda byssunum frá leikskólalóðum enda komist kúlurnar auðveldlega í litla munna, nef og eyru. Innlent 19. maí 2023 20:01
Starfsmenn og nemendur mótmæla fyrirhugaðri sameiningu Kvennó og MS Nemendur og kennarar við Kvennaskólann í Reykjavík og Menntaskólann við Sund mótmæla fyrirhuguðum samruna skólanna og segja mennta- og barnamálaráðuneytið taka stór skref án samráðs og aðkomu nemenda og starfsmanna. Samband íslenskra framhaldsskólanema, nemendur skólanna beggja og kennarar hafa boðið til mótmæla í dag sem hefjast klukkan eitt í dag fyrir utan mennta- og barnamálaráðuneytið. Skólameistari Kvennaskólans segir alveg ljóst að mikil andstaða sé við hugmyndina. Innlent 19. maí 2023 13:16
Boða til frekari verkfalla í 29 sveitarfélögum Félagsmenn í BSRB samþykktu í morgun frekari verkfallsaðgerðir um land allt vegna kjaradeilu félagsins við sveitarfélög. Boðað hefur verið til aðgerða í 29 sveitarfélögum. Innlent 19. maí 2023 12:52
Kvennaskólinn lagður niður á 150 ára afmælisárinu? Ásmundur Einar Daðason hefur unnið að góðum málum í síðustu og núverandi ríkisstjórn, komið vel fyrir og lagt mikla áherslu á mál barna. En varðandi komandi breytingar á framhaldsskólakerfinu hafa málin heldur betur farið illa af stað og snúist í höndum ráðuneytis hans, mörgum framhaldsskólum hefur verið komið í opna skjöldu. Skoðun 19. maí 2023 09:01
Bætum líðan, bætum árangur og eflum áhugahvöt barna Kveikjum neistann er rannsóknar og þróunarverkefni, sem Grunnskóli Vestmannaeyja tekur þátt í hefur verið í gangi með nemendum í næstum tvö ár. Verkefnið hefur farið afar vel af stað og árangur nemenda lofar góðu. Það er einmitt árangur nemenda sem er skýrt leiðarljós þeirra sem að verkefninu koma og mjög ánægjulegt að sjá mælanlegan góðan árangur í færni jafnt sem líðan undanfarin tvö ár. Skoðun 19. maí 2023 08:30
Kennarinn á Sjónarhóli Flestir vita eflaust að lykillinn að því að líða vel er sá að líkami og sál gangi í takt. Bæði fyrirbærin hlúa hvort að öðru og næra. Stundum koma upp aðstæður sem höggva í þessi fyrirbæri og skilja eftir sár og sorg. Skoðun 19. maí 2023 08:00
Smiður í mannauðsmálin: „Okkur vantar okkar Óla Stef í hjúkrunarfræðina“ „Ég segi fyrir mitt leyti að það hafði ekki tekist í grunnskóla að vekja áhuga minn á einhverju til að stefna á í framhaldsskóla. Ég fór í Verkmenntaskólann á Akureyri eftir grunnskóla en það var eiginlega bara af skyldurækni. Ég vissi ekkert hvað ég var að gera þar,“ segir Daníel Gunnarsson, mannauðssérfræðingur hjá Alvotech. Atvinnulíf 19. maí 2023 07:00
Nicole Leigh Mosty ráðin leikskólastjóri í Vík í Mýrdal Nicole Leigh Mosty hefur verið ráðin í starf leikskólastjóra leikskólans Mánalands í Vík í Mýrdal. Innlent 18. maí 2023 12:15
Þurfti að geyma vinnufötin í plastkassa vegna myglu Á dögunum sendi starfsfólk Laugarnesskóla borgarstjóra opið bréf þar sem það krefst úrbóta á starfsaðstæðum. Dæmi eru um að starfsfólk hrökklist úr starfi vegna veikinda sem rakin eru til myglu og raka. Nýlega barst borgarfulltrúum ályktun frá fulltrúum starfsfólks Laugarnesskóla sem segir komið að þolmörkum. Innlent 18. maí 2023 08:30
Friðlýsa ætti Kvennaskólann í Reykjavík Kvennaskólinn í Reykjavík var stofnaður á heimili hjónanna Þóru og Páls Melsteð við Austurvöll árið 1874 og síðar var byggt yfir hann húsið sem flestir þekkja nú sem Nasa. Þar var skólinn til ársins 1909 að hann flutti í núverandi aðalbyggingu að Fríkirkjuvegi 9. Á aldarafmæli skólans 1. október 1974 var gefin út mjög merkileg bók, Kvennaskólinn í Reykjavík 1874-1974, um sögu skólans sem jafnframt er saga réttindabaráttu kvenna til náms á Íslandi. Árið 1874 áttu konur ekki kost á neinni menntun eftir barnaskólann og fengu ekki inngöngu í Lærða skólann. Skoðun 18. maí 2023 06:30
Innlegg í sameiningarumræðu Kvennaskólans og Menntaskólans við Sund Tillaga mennta- og barnamálaráðuneytis um sameiningu margra mennta- og framhaldsskóla kom flestum, ef ekki öllum, eins og þruma úr heiðskýru lofti. Þessar fregnir hafa ollið mikilli óreiðu og óvissu innan skólasamfélagsins. Við í nemendafélaginu Keðjunni og Skólafélagi Menntaskólans í Sund fengum að vita af þessu á sama hátt og allir aðrir, í gegnum forsíðufréttir helstu fréttamiðla landsins. Engin umræða tekin fyrirfram við nemendur. Þau vinnubrögð finnst okkur vera vafasöm en það er eins og það er. Skoðun 17. maí 2023 22:30
Breytt viðhorf: Unga fólkið að velja nám á allt annan hátt en áður „Við lifum á mjög merkilegum tímum. Gervigreindin mun til dæmis hafa mikil áhrif á nám og það hvernig fólk mun læra, en við erum ekki enn farin að sjá hvernig,“ segir Hildur Elín Vignir framkvæmdastjóri Iðunnar fræðsluseturs. Sem meðal annars heldur utan um sveinspróf í iðngreinum. Atvinnulíf 17. maí 2023 07:01
Fjölmennt á sýningu Upplýsingatækniskólans Óhætt er að segja að útskriftarsýning nemenda Upplýsingatækniskólans hafi heppnast með eindæmum vel um helgina, en fjölmenni sótti sýninguna þegar hún var opnuð í húsakynnum Tækniskólanum við Háteigsveg 35–39 á föstudag. Lífið 16. maí 2023 21:02
Látið Kvennaskólann í friði Menntamálayfirvöld íhuga nú að sameina Kvennaskólann í Reykjavík og Menntaskólann við Sund. Enn og aftur er reynt að afmá konur og verk þeirra af spjöldum sögunnar. Á næsta ári verður Kvennaskólinn 150 ára gamall og sýnir hvorki ellimörk né veitir afslátt á námi. Skoðun 16. maí 2023 08:31
24 kvartanir á sjö árum vegna eineltis eða áreitni af hálfu starfsmanna Frá 2016 til með apríl 2023 bárust Háskóla Íslands 24 ábendingar eða kvartanir um einelti, kynferðislega eða kynbundna áreitni eða ofbeldi af hálfu starfsmanna skólans. Innlent 16. maí 2023 07:01
Skólastjóri segir börnum með fötlun mismunað Skólastjóri segir dapurt að verkfallsundanþágur hafi ekki verið veittar vegna barna með fötlun, sem nú þurfi að sitja heima meðan bekkjarfélagar þeirra komist í skólann. Verkföll hjá félagsfólki BSRB sem starfar í leik-og grunnskólum hófust á miðnætti. Innlent 15. maí 2023 19:15
Vill sjá undanþágur vegna barna í viðkvæmri stöðu Formaður heimilis og skóla hefur áhyggjur af því að verkfall aðildarfélaga BSRB bitni mest á viðkvæmustu hópum barna. Talsvert hefur borist af undanþágubeiðnum, meðal annars frá foreldrum fatlaðra barna sem hefur verið synjað. Formaður BSRB segir ekkert samtal í gangi varðandi samninga. Innlent 15. maí 2023 12:00
Verkfallsaðgerðir BSRB hafnar Verkföll hjá BSRB fólki sem starfar hjá flestum stærstu sveitarfélögum landsins að Reykjavík undanskilinni hófust á miðnætti og í dag. Innlent 15. maí 2023 07:45
Skert gæsla í frímínútum og engir stuðningsfulltrúar Verkföll hefjast að óbreyttu á morgun meðal félagsfólks í BSRB. Skert gæsla í frímínútum og engir stuðningsfulltrúar í grunnskólum eru meðal þeirra áhrifa sem verkföllin munu hafa. Innlent 14. maí 2023 10:04
Vildi oft deyja: „Ég fékk bara ógeð á sjálfri mér“ „Já ég man mjög vel eftir því. Það var einn daginn þegar að ég vaknaði einhvers staðar að ég held í Breiðholtinu eftir mikið djamm og leit í spegil. Og ég fékk bara ógeð á sjálfri mér,“ svarar Hafrún Ósk Hafsteinsdóttir aðspurð um það hvort hún muni eftir því augnabliki þegar hún tók ákvörðun um að snúa við blaðinu, hætta í neyslu, óska eftir aðstoð við andlegum veikindum sínum og hreinlega taka ákvörðun um að vilja lifa. Áskorun 14. maí 2023 08:01
Starfslok í háskólanum en ekki í lífinu Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor í stjórnmálaheimspeki, var kvaddur með alþjóðlegri ráðstefnu í Háskóla Íslands í dag. Hannes varð sjötugur í febrúar síðastliðnum og sem opinber starfsmaður þarf hann að láta af störfum við þann aldur. Hann segir að ekki sé um að ræða starfslok í lífinu þó starfi hans í háskólanum sé lokið. Innlent 12. maí 2023 22:01