„Ég er ógeðslega reiður“ Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 30. september 2026 08:59 Aðalsteinn Árni Baldursson formaður stéttarfélagsins Framsýnar segist reiður og fúll vegna ummæla fjármálráðherra. vísir Formaður stéttarfélagsins Framsýnar segist „ógeðslega reiður“ og fúll vegna ummæla fjármálaráðherra. Reynslu- og sambandsleysi einkenni ríkisstjórnina og ljóst að lægst launaða fólkið í landinu þoli ekki efnahagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar.
Aðalsteinn Árni Baldursson formaður stéttarfélagsins Framsýnar segist reiður vegna ummæla fjármálaráðherra um að íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann sem fylgi því að ná aga í ríkisfjármálum. Þessi ummæli lét Daði falla í ítarlegu sjónvarpsviðtali á Vísi. „Mér brá alveg rosalega,“ sagði Aðalsteinn Árni í Bítinu á Bylgjunni í morgun. „Ég hef sagt það áður að hrokinn í þessum fjármálaráðherra er með þvílíkum ólíkindum að ég hef aldrei kynnst öðru eins.“ Lýsir raunum eldri konu Aðalsteinn lýsir aðstæðum sem hann varð vitni að á heilbrigðisstofnun í gær þegar eldri kona bað um að fá að greiða læknisgjaldið eftir útborgun um mánaðamótin og segir Aðalsteinn að reikningurinn hafi ekki verið hár. „Hún fékk leyfi fyrir því að skilja skuldina eftir og svo daginn eftir hlustar maður á fjármálaráðherra tala um að þola sársauka. Þetta er einmitt fjármálaráðherrann sem stóð að því að hækka komugjöld á heilbrigðisstofnanir í sumar um hundrað prósent.“ Reynslu- og sambandsleysi Í viðtalinu við fjármálaráðherra segir hann að ríkisstjórnin hafi ekki hækkað tekjuskatt þegar hann er spurður út í loforð sem gefin voru í kosningabaráttunni um að skattar yrðu ekki hækkaðir. Heildarskatttekjurnar hafi ekki aukist. „Þetta er bara reynsluleysi og það er að koma í ljós að þessi ríkisstjórn, það er tvennt: reynsluleysi og þetta mikla sambandsleysi. Við erum núna með lausa kjarasamninga og fundum myrkranna á milli um stöðuna og hvað við ætlum að gera þann 8. október.“ „Það liggur fyrir, eins og staðan er núna þegar við erum að tala saman, að samningum verður sagt upp og hér mun loga allt í leiðindum örugglega næstu vikurnar og mánuðina. Af hverju segi ég þetta? Jú, vegna þess að þau (ríkisstjórnin) hafa ekki fyrir því að vera í sambandi við verkalýðshreyfinguna til að reyna að leysa þessi mál. Forsætisráðherra er týndur, maður veit ekkert hvar hún er. Hún tjáir sig ekki um málið.“ Á sama tíma hafi Samband íslenskra sveitarfélaga lofað að halda hækkunum almennra gjaldskráa innan 2,5% og stærstu matvörukeðjurnar fryst verð. „Á sama tíma er þessi blessaða ríkisstjórn að hækka alla skapaða hluti.“
Bítið Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Efnahagsmál Kjaramál Tengdar fréttir Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Fjármálaráðherra segir að íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann sem felst í því að ná aga í ríkisfjármálum. Hann segir ekki rétt að launþegar hafi það verr nú en fyrir tveimur árum og fullyrðir að ummæli sem formaður efnahagsnefndar Alþingis lét falla um helgina séu ekki rétt. 30. september 2026 06:46 Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira
Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Fjármálaráðherra segir að íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann sem felst í því að ná aga í ríkisfjármálum. Hann segir ekki rétt að launþegar hafi það verr nú en fyrir tveimur árum og fullyrðir að ummæli sem formaður efnahagsnefndar Alþingis lét falla um helgina séu ekki rétt. 30. september 2026 06:46