„Við ætlumst til að fólk finni lausnir og leysi deiluna“ Ríkissáttasemjari býst við að boðað verði til fundar á morgun í kjaradeilu kennara. Verkföll hefjast í ríflega tuttugu leik- og grunnskólum eftir helgi takist ekki að semja. Foreldri undrast aðgerðarleysi í deilunni síðustu vikur og óttast verkföll. Innlent 29. janúar 2025 19:31
Jörundur og Magdalena selja íbúð á eftirsóttum stað Leikarinn Jörundur Ragnarsson og sambýliskona hans Magdalena Björnsdóttir hafa sett íbúð sína við Brávallagötu í Reykjavík á sölu. Ásett verð er 82,9 milljónir. Lífið 29. janúar 2025 12:32
„Mér finnst ekkert skemmtilegra en að spila bridge“ Langfjölmennasta og sterkasta alþjóðlega bridsmót ársins hefst í Hörpu 30. janúar næstkomandi. Mótið er í raun byrjað en það hefst á tvímenningi. Síðan hefst sveitakeppnin á fimmtudaginn. Lífið 29. janúar 2025 10:19
Gekk út blóðugur með hendur á lofti og féll til jarðar Maður sem er grunaður um stunguárás í Grafarvogi í október síðastliðnum sagði við lögreglumenn, eftir að hann hafði verið handtekinn og verið var að flytja hann á lögreglustöð, að hann hafi verið að „verja sig gegn ranghugmyndum“. Innlent 29. janúar 2025 08:33
Gómuðu leðurblökuna Leðurblakan sem hefur verið á sveimi um Hlíðar og Laugardal undanfarna daga hefur verið fönguð af Dýraþjónustu Reykjavíkur. Hún var varla með lífsmarki og hefur verið svæfð. Innlent 28. janúar 2025 18:21
Hvatvísin hafi verið við völd þegar hún tók upp tólið Inga Sæland félags- og húsnæðismálaráðherra segir hvatvísina hafa verið við völd þegar hún tók upp tólið og hringdi, sem amma, í skólameistara Borgarholtsskóla vegna týnds skópars barnabarns síns. Hún segist ætla að gera betur og biðst afsökunar á því að hafa hringt þetta símtal. Ábyrgð hennar sé mikil í dag sem ráðherra. Innlent 28. janúar 2025 13:16
Selur tvær íbúðir í fallegu húsi í miðbænum Thor holding, félag í eigu Bergþórs Baldvinssonar framkvæmdastjóra Nesfisks, hefur auglýst tvær eignir í sama húsi í miðborg Reykjavíkur til sölu. Mögulegt er að sameina íbúðirnar í eina stærri eign sem telur 196 fermetra samtals. Lífið 28. janúar 2025 12:45
Örfáir læknar sinni hundruðum Hundruð sækja Læknavaktina daglega og framkvæmdastjóri segir læknaskort plaga starfsemina. Mikil veikindi herji nú á landsmenn. Innlent 28. janúar 2025 11:36
Snjómokstur hófst um klukkan fjögur í nótt Eiður Fannar Erlendsson yfirmaður vetrarþjónustu Reykjavíkur segir snjómokstur hafa gengið vel í nótt og í morgun. Snjómokstur hófst um klukkan fjögur í nótt og hefur verið kallaður út aukamannskapur til að ryðja snjónum burt. Veður 28. janúar 2025 08:41
Óvæntur afrakstur ástarævintýris á Grund gerði allt vitlaust Páfagaukapar á dvalarheimilinu Grund eignaðist óvænt unga fyrir áramót, heimilisfólki til ómældrar gleði. Sérstakur fuglahirðir Grundar segir dýr ómetanlegan félagsskap á dvalarheimilum. Lífið 28. janúar 2025 08:02
Ráðherra hringdi í skólastjóra vegna týnds skópars Inga Sæland félags- og húsnæðismálamálaráðherra mun hafa sagst hafa ítök í lögreglunni þegar hún hellti sér yfir skólastjóra Borgarholtsskóla vegna týnds skópars barnabarns hennar. Skórnir komu í leitirnar en ekki vegna pressu ráðherra. Inga segir málið ekki koma Vísi við. Innlent 27. janúar 2025 14:28
Eik tók hæð við Rauðalæk í gegn Í Heimsókn í síðustu viku skellti Sindri Sindrason sér í heimsókn í íbúð Eikar Gísladóttur, flugfreyju. Lífið 27. janúar 2025 14:00
Óhapp á Reykjavíkurflugvelli og flugbraut lokað Flugbraut á Reykjavíkurflugvelli var lokað í kjölfar þess að flugvél fór út af braut við lendingu. Um var að ræða litla kennsluvél sem hlekktist á í lendingu samkvæmt upplýsingum frá Guðjóni Helgasyni, upplýsingafulltrúa ISAVIA. Atvikið átti sér stað um klukkan 11 í dag. Einn var um borð í vélinni. Innlent 27. janúar 2025 12:42
Engin leit í gangi að leðurblökunni Dýraþjónusta Reykjavíkur hefur ekki fengið neinar tilkynningar í dag um leðurblökuna sem lék lausum hala í Reykjavík í gær. Greint var frá því um helgina að leðurblaka hefði sést við Laugardalslaug og nærri Listaháskólanum í Laugarnesi. Innlent 27. janúar 2025 11:42
Bíða þess að samningur um neyslurými verði endurnýjaður Frá því að neyslurýmið Ylja opnaði í ágúst á síðasta ári hafa um 140 einstaklingar leitað þangað. Meðalaldur notenda er um 38 ára og flestir karlmenn. Verkefnið er tímabundið og rennur samningur við ráðuneytið um rekstur rýmisins út í apríl. Sigríður Ella Jónsdóttir, teymisstjóri skaðaminnkunar og félagslegra verkefna hjá Rauða krossinum, segir unnið hörðum höndum að því að endurnýja samninginn. Tölurnar sýni að þörfin sé mikil. Innlent 27. janúar 2025 06:47
Leðurblaka flögrar um Hlíðarnar Lögreglu barst tilkynning um leðurblöku á flugi í hlíðunum í dag en þegar lögreglumenn mættu á vettvang hafði hún flogið á braut. Innlent 26. janúar 2025 21:51
Harður árekstur á Miklubraut Tveggja bíla árekstur varð á Miklubraut um níuleytið í kvöld. Einn var fluttur með sjúkrabíl af vettvangi en áverkar hans eru ekki taldir vera alvarlegir. Innlent 26. janúar 2025 21:37
Laugin muni ekki opna fyrr en í fyrsta lagi seinnipart mánudags Vesturbæjarlaug var áfram lokuð í dag og verður ekki opnuð fyrr en í fyrsta lagi seinnipart mánudags. Lauginni var lokað tímabundið í gær vegna netbilunar sem gerði það að verkum að öryggisbúnaður virkar ekki. Innlent 26. janúar 2025 18:31
Byssumaðurinn hafi miðað á aðra í hópnum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var með mikinn viðbúnað í gær vegna tilkynningar um ungmenni með skotvopn. Byssumannsins er enn leitað. Hann meðhöndlaði byssuna í kringum hóp annarra ungmenna og hefur lögreglu tekist að bera kennsl á einhver þeirra. Innlent 26. janúar 2025 11:26
Svona var umhorfs í Reykjavík á áttunda áratugnum Á áttunda áratugnum var öðruvísi um að litast í Reykjavíkurborg en í dag. Sum kennileiti eru enn á sínum stað á meðan önnur er fyrir löngu horfin. Lífið 26. janúar 2025 09:02
Byssumaður farinn af vettvangi þegar lögreglan kom Lögreglunni var tilkynnt um mann sem var að meðhöndla skammbyssu á almannafæri í hverfi 108 í Reykjavík í gærkvöld eða nótt. Innlent 26. janúar 2025 07:35
Enginn þreyir þorrann eins og Áslaug Arna Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir mætti á þrjú þorrablót á síðustu átta dögum sem er eftirtektarverð mæting. Áslaug er sögð munu tilkynna framboð sitt til formanns Sjálfstæðisflokksins á morgun. Lífið 26. janúar 2025 00:06
Vesturbæjarlaug lokað tímabundið vegna netbilunar Vesturbæjarlaug hefur verið lokað tímabundið þar sem öryggisbúnaður virkar ekki vegna netbilunar. Ekki liggur fyrir hvenær laugin verður opnuð á ný. Innlent 25. janúar 2025 22:56
Sleðar bannaðir á opnunartíma: „Leið eins og maður væri ekki velkominn“ Reykjavíkurborg hefur tekið þá ákvörðun að banna umferð sleða á skíðasvæðum borgarinnar meðan á opnun skíðalyftanna stendur. Iðkandi til margra ára er forviða á reglunum og lýsir leiðinlegri upplifun á skíðasvæðinu í Ártúnsbrekku er honum var tjáð um breytinguna. Innlent 25. janúar 2025 17:25
Sleginn í höfuðið með áhaldi Líkamsárás sem lýst var sem „meiriháttar“ í dagbók lögreglu í morgun reyndist ekki jafnalvarleg og talið var í fyrstu, að sögn Guðbrands Sigurðssonar, aðalvarðstjóra hjá lögreglu á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 25. janúar 2025 13:21
Óvenjulegt mál með hörmulegum afleiðingum Mál þar sem litáískur maður lést eftir að hafa hlotið eitt lófahögg á skemmtistaðnum Lúx í Austurstræti í Reykjavík í júní í hitteðfyrra var óvenjulegt að mati Héraðsdóms Reykjavíkur, sem dæmdi í málinu. Innlent 25. janúar 2025 10:43
Áslaug Arna boðar til fundar Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi ráðherra, boðar til fundar í Sjálfstæðisalnum við Austurvöll, í gamla NASA. Innlent 25. janúar 2025 08:01
Þýðir ekki að fara á taugum segir borgarstjóri og hyggur á endurkjör Einar Þorsteinsson borgarstjóri lætur engan bilbug á sér finna þrátt fyrir slægt gengi Framsóknarflokksins í könnunum bæði á landsvísu og í borginni. Í Samtalinu með Heimi Má á fimmtudag sagðist hann hafa fulla trú á að árangur flokksins í borginni muni skila sér í næstu kosningum og telur farsælast að Sigurður Ingi Jóhannsson haldi áfram að leiða Framsóknarflokkinn á landsvísu. Innlent 25. janúar 2025 08:00
Meiriháttar líkamsárás í miðbænum Einstaklingur var handtekinn eftir meiriháttar líkamsárás í miðbæ Reykjavíkur í gærkvöld eða nótt. Sá grunaði hljóp á brott þegar lögreglu bar að garði en var handtekinn eftir stutta eftirför og vistaður í fangaklefa. Innlent 25. janúar 2025 07:31