Lögreglan leitar bifhjólaníðings Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar bifhjólaökumanns sem ók á konu á reiðhjóli í Elliðaárdal á fjórða tímanum í gær. Konan var að hjóla á göngustíg norðan Stekkjarbakka beint fyrir neðan Skálará þegar bifhjólamaðurinn ók á hana. Innlent 7. maí 2021 17:33
Í farbanni vegna mannslátsins í Kópavogi Karlmaður á þrítugsaldri verður gert að sæta áframhaldandi farbanni næstu átta vikurnar að kröfu lögreglu. Maðurinn hefur stöðu sakbornings í rannsókn á mannsláti í Vindakór í Kópavogi í byrjun apríl. Innlent 7. maí 2021 14:33
Grunsamlegar mannaferðir og eldur í runna Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti nokkuð fjölbreyttum verkefnum í gærkvöldi og nótt og var meðal annars kölluð til vegna grunsamlegra mannaferða og elds í runna. Þá var tilkynnt um nokkur innbrot og umferðaróhöpp. Innlent 7. maí 2021 06:25
Ók á hjólreiðamann og fór af vettvangi Ökumaður bifhjóls ók í dag á hjólreiðamann á göngustíg í Breiðholti í dag. Ökumaður bifhjólsins fór af vettvangi án þess að kanna ástanda hjólreiðamannsins, en sá var fluttur með sjúkrabíl á bráðamóttöku. Innlent 6. maí 2021 19:48
Glæpahópar flytji inn konur til að stunda vændi Lögregla telur að skipulagðir glæpahópar á Íslandi sendi konur til landsins í þeim eina tilgangi að stunda vændi. Viðskipti með fólk er eitt það arðbærasta í skipulagðri glæpastarfsemi að sögn lögreglufulltrúa. Innlent 6. maí 2021 16:06
Söguleg ákæra vegna skorts á brunavörnum á Smiðshöfða Ákæra héraðssaksóknara gegn eiganda starfsmannaleigu um hættubrot og brot á lögum um brunavarnir er sú talin sú fyrsta sinnar tegundar hér á landi að sögn saksóknara. Maðurinn er ákærður fyrir að stofna á ófyrirleitinn hátt heilsu og lífi á þriðja tug starfsmanna í hættu. Aðalmeðferð fer fram í næstu viku og er málið fordæmisgefandi. Innlent 6. maí 2021 14:01
Lögmaður Sölva segir málið komið í réttan farveg „Það er auðvitað komið fram núna að það séu komnar kærur og það er auðvitað bara rétti farvegurinn. Þar getur hann tekið til varna,“ segir Saga Ýrr Jónsdóttir, lögmaður Sölva Tryggvasonar fjölmiðlamanns. Innlent 6. maí 2021 09:21
Þrír börðu aldraðan mann til óbóta með bareflum Aldraður maður var barinn til óbóta af þremur mönnum sem réðust að honum með bareflum í austurbænum í dag. Mennirnir stálu ýmsum munum af manninum og brutu gleraugu hans. Maðurinn lá í blóði sínu þegar lögregluþjóna bar að garði. Innlent 6. maí 2021 00:03
Tvær konur hafa tilkynnt Sölva til lögreglu vegna meints ofbeldis Tvær konur hafa stigið fram og sagt frá meintu ofbeldi sem þær hafi verið beittar af Sölva Tryggvasyni, dagskrárgerðarmanni. Þær hafa báðar leitað til lögreglu vegna meints ofbeldis. Innlent 5. maí 2021 19:41
Lokavitni, myndband og málflutningur á lokadegi Síðasti dagur aðalmeðferðar í máli ákæruvaldsins gegn Marek Moszczynski, pólskum karlmanni á sjötugsaldri, er í dag. Marek er ákærður fyrir brennu, manndráp og tilraun til manndráps. Þrír fórust í brunanum að Bræðraborgastígi 1 í fyrrasumar. Hann hefur neitað sök og hefur jafnframt verið metinn ósakhæfur. Innlent 5. maí 2021 09:01
Deilir áhyggjum lögreglu af albönsku mafíunni Dómsmálaráðherra tekur undir áhyggjur lögreglu um að albanska mafían fari að láta til sín taka hér á landi. Það þurfi með öllum mætti að tryggja öryggi borgaranna með því að styrkja lögregluna. Innlent 4. maí 2021 17:44
Skorar á ríkisstjórnina að opna augun eftir umfjöllun Kompáss Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði ríkisstjórnina hafa brugðist því að verja þjóðina gegn skipulagðri glæpastarfsemi. Þetta sagði hún eftir að hafa horft á umfjöllun Kompáss um málefnið. Innlent 4. maí 2021 15:00
Ákærður fyrir tilraun til að drepa eiginkonu sína á Hótel Borg Karlmaður hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps og stórfellt brot í nánu sambandi fyrir að hafa veist að eiginkonu sinni á Hótel Borg í Reykjavík í lok janúar síðastliðnum. Þetta kemur fram í ákæru á hendur manninum sem fréttastofa hefur undir höndum. Innlent 4. maí 2021 10:15
„Þetta var bara aftaka“ Þóranna Helga Gunnarsdóttir, ekkja Armando Beqirai, telur yfirvöld hafa brugðist. Hún er gagnrýnin á að lögregla hafi haft upplýsingar um að sá sem gengist hefur við morðinu hafi verið vopnaður skammbyssu þremur vikum áður og verið á Íslandi þrátt fyrir að vera eftirlýstur í heimalandi. Innlent 4. maí 2021 08:00
Dvalargestur sóttkvíarhótels í annarlegu ástandi hafði í hótunum við annan gest Lögregla var kölluð á vettvang snemma í gærkvöldi vegna dvalargests á sóttkvíarhóteli í póstnúmerinu 105. Maðurinn var í annarlegu ástandi og var til vandræða; hafði meðal annars haft í hótunum við annan gest. Þá er hann grunaður um eignaspjöll. Innlent 4. maí 2021 06:13
Íslenskt par talið hafa grætt 84 milljónir vegna sölu lyfseðilskyldra lyfja Íslenskt par er grunað um að hafa grætt rúmlega 84 milljónir króna á sölu og dreifingu lyfseðilskyldra lyfja. Talið er að parið, ásamt tveimur öðrum, hafi stundað glæpi kerfisbundið í tæpan áratug. Innlent 3. maí 2021 23:08
Sölvi segir sögurnar þvætting frá upphafi til enda Fjölmiðlamaðurinn Sölvi Tryggvason hefur tjáð sig á samfélagsmiðlum um sögusagnir sem gengið hafa um hann undanfarna daga. Hann segir þær enga stoð eiga í raunveruleikanum og birtir upplýsingar úr málaskrá lögreglu sem sýna að lögregla hefur engin afskipti haft af honum undanfarnar vikur. Lífið 3. maí 2021 14:55
Rauðagerðismálið til héraðssaksóknara Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur afhent embætti héraðssaksóknara gögn vegna rannsóknar Rauðagerðismálsins. Mun það falla í hlut embættisins að ákveða hvort ákærur verða gefnar út í málinu. Innlent 3. maí 2021 14:20
Óttast að lenda undir gegn þaulskipulögðum glæpahópum Aukin harka, þaulskipulögð tryggingasvik og tugmilljarða fíkniefnaviðskipti einkenna nú undirheima Íslands. Innlent 3. maí 2021 08:01
Krefjast kyrrsetningar eigna eiganda hússins við Bræðraborgarstíg Lögmaður aðstandenda þeirra sem létust í brunanum við Bræðraborgarstíg hefur krafist þess að eignir eiganda hússins verði kyrrsettar til tryggingar fullnustu bótakrafna umbjóðenda sinna. Innlent 3. maí 2021 06:48
Umferðarslys vegna blindandi sólarljóss og tillitslausrar gæsar Ökumaður bifhjóls var fluttur á slysadeild með sjúkrabifreið í gærkvöldi eftir að hann lenti aftan á bifreið sem snögghemlaði þegar gæs gekk yfir götu í Seljahverfi. Innlent 3. maí 2021 06:33
Handtekinn eftir að hafa kastað búslóðinni fram af svölum Rúmlega hundrað mál voru skráð hjá lögreglu í gærkvöldi og í nótt og hafði hún í nógu að snúast. Fimmtán hávaðakvartanir komu inn á borð lögreglu og voru fimm ökumenn stöðvaðir vegna vímuefnaaksturs, að því er fram kemur í dagbók lögreglu. Innlent 2. maí 2021 07:34
Ógnaði fólki í miðbænum Lögreglu barst tilkynning á áttunda tímanum í gærkvöldi um mann sem hafði verið að ógna fólki í miðbænum. Þegar lögregla kom á vettvang var maðurinn í mjög annarlegu ástandi og enn að ógna fólki, að því er fram kemur í dagbók lögreglu. Var hann handtekinn og vistaður í fangageymslu. Innlent 1. maí 2021 07:25
Mældu ökumann á 190 km/klst og veittu eftirför Lögreglan á Suðurnesjum hóf eftirför í gær þegar bifreið mældist á 190 km/klst, þar sem henni var ekið í átt að Hafnarfirði. Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var gert viðvart en í Hafnarfirði náði ökumaður að stinga lögreglu af um stund. Innlent 30. apríl 2021 06:38
Rauðagerðismálið til ákærusviðs á morgun Rannsókn á morðinu í Rauðagerði er að mestu lokið og stefnt er að því að senda málið til ákærusviðs lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á morgun. Þetta segir Margeir Sveinsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild, í samtali við fréttastofu. Innlent 29. apríl 2021 18:19
Yfirheyra loks manninn sem rauf einangrun og er talinn hafa komið af stað hópsmitinu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hyggst á næstu dögum taka skýrslu af karlmanni sem er bæði grunaður um brot á sóttkví og einangrun. Þá er grunur um að hann tengist hópsmitinu sem upp kom á leikskólanum Jörfa. Innlent 29. apríl 2021 14:11
Sextíu prósent Íslendinga eru fylgjandi afglæpavæðingu neysluskammta Sextíu prósent landsmanna eru nú fylgjandi afglæpavæðingu neysluskammta fíkniefna, ef marka má nýja könnun Félagsvísindastofnunar. Innlent 29. apríl 2021 06:41
Maðurinn sem lýst var eftir er kominn í leitirnar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti fyrr í kvöld eftir manni á áttræðisaldri sem ekkert hafði til spurst frá sunnudeginum 25.apríl. Innlent 28. apríl 2021 17:21
Fjögurra ára drengur lést af slysförum Fjögurra ára drengur lést á Landspítala í fyrradag eftir að aðskotahlutur festist í hálsi hans á miðvikudag í síðustu viku. Innlent 28. apríl 2021 15:34
Ölvaðir til vandræða í miðborginni Nokkuð annríki var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt, ekki síst vegna ökumanna sem grunur lék á að væru undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna. Innlent 28. apríl 2021 06:20