

Fréttir, beinar lýsingar, úrslit og myndbönd úr efstu deildum í fótbolta á Íslandi.
Miðvörðurinn Eiður Aron Sigurbjörnsson snéri aftur í lið Vals er liðið vann 1-0 sigur á KA í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu í dag.
Tveimur leikjum af fimm er lokið í Lengjudeild karla í dag. Leiknir Fáskrúðsfjörður vann ótrúlegan sigur á Grindavík. Þá gerðu Afturelding og Vestri markalaust jafntefli.
Leikmannasamtökin á Íslandi gerðu könnun meðal leikmanna í Pepsi Max deild karla og kvenna varðandi viðhorf þeirra til að byrja að spila fótbolta aftur eftir að ný bylgja kórónuveirusmita fór af stað í lok síðasta mánaðar.
Fimm mörk voru skoruð í leikjum gærkvöldsins í Pepsi Max-deild karla. FH vann KR á Meistaravöllum og Stjarnan og Gróttu skildu jöfn.
Karl Friðleifur Gunnarsson tryggði Gróttu stig gegn Stjörnunni á Samsung-vellinum í Garðabænum í kvöld.
Þjálfari Gróttu var ánægður með stigið sem hans menn fengu í Garðabænum í kvöld.
Rúnar Kristinsson var nokkuð sáttur með spilamennsku sinna manna þrátt fyrir 2-1 tap gegn FH í kvöld þegar fótboltinn snéri aftur hér heima eftir hlé vegna kórónufaraldursins.
Logi Ólafsson var eðlilega sáttur með að næla í þrjú stig á Meistaravöllum er Pepsi Max deild karla snéri aftur.
Fram lenti þrisvar sinnum undir gegn ÍBV en náði samt í stig, þökk sé tveimur varamönnum.
Daníel Hafsteinsson skoraði mörk FH, í bæði skiptin eftir undirbúning Þóris Jóhanns Helgasonar, þegar liðið vann dísætan 2-1 útisigur á KR í fyrsta leiknum eftir hléið í Pepsi Max-deildinni í fótbolta.
Hinn þrautreyndi kanadíski markvörður, Erin McLeod, mun leika með Stjörnunni út tímabilið.
Áhorfendabannið kemur illa við félögin á Íslandi. Margir af stærstu leikjum fótboltasumarsins eru framundan.
Það verður sannkölluð fótboltaveisla á Stöð 2 Sport og Vísi um helgina nú þegar íslenski boltinn byrjar að rúlla að nýju eftir hlé vegna kórónuveirufaraldursins.
FH-ingar verða líklega fljótir að fyrirgefa Ólafi Karli Finsen fari hann að sýna sínar bestu hliðar í FH-búningnum.
Alls bárust ÍSÍ umsóknir um yfir 700 milljónir króna frá íþróttafélögum og sérsamböndum vegna fjárhagslegs tjóns af völdum kórónuveirufaraldursins í vor. ÍSÍ hefur hins vegar 150 milljónir til að deila út.
Eiður Smári Guðjohnsen, aðstoðaþjálfari FH, segir að það hafi verið eins og kippt hafi verið undan honum fótunum er Pepsi Max-deild karla hafi verið sett á pásu, skömmu eftir að Eiður tók við starfinu.
KSÍ sendi frá sér skilaboð til síns fólks í gær og þar kemur meðal annars fram að allir þurfi nú að snúa bökum saman og sýna að íslenka knattspyrnufjölskyldan sé traustsins verð.
Boltinn byrjar aftur að rúlla í Pepsi Max-deild karla í fótbolta þar sem segja má að Stjarnan sé næst titlinum. Breiðablik stendur vel að vígi í Pepsi Max-deild kvenna þar sem heil umferð fer fram á sunnudag og mánudag.
Ólafur Karl Finsen styrkir lið FH fyrir seinni hluta tímabilsins. Þetta segir Logi Ólafsson, annar þjálfara FH.
Danski miðvörðurinn Martin Rauschenberg hefur verið lánaður til HK og mun klára tímabilið með liðinu.
Ítalski framherjinn Angela Pia Caloia er komin í Garðbæinn og mun spila með Stjörnunni það sem eftir lifir sumar.
Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn, segir sjálfsagt mál að knattspyrnufólk sýni ábyrgð í sínu daglega lífi, til að forðast kórónuveirusmit, í ljósi þeirra forréttinda sem það nýtur varðandi tveggja metra regluna.
FH mun leika heimaleik sinn gegn Dunajská Streda í forkeppni Evrópudeildarinnar á heimavelli.
Þeir Guðmundur Benediktsson, Atli Viðar Björnsson og Tómas Ingi Tómasson krufðu neðri hluta Pepsi Max-deildarinnar til mergjar í Stúkunni sem var á dagskrá á mánudagskvöldið.
Ólafur Karl Finsen, sem gekk í raðir FH á láni frá Val í gær, segist hafa verið heill heilsu í allt sumar.
Þjálfari ÍA segir að félagið muni gera sitt allra besta til að fara eftir ströngum sóttvarnarreglum þegar keppni á Íslandsmótinu hefst á ný.
Valur hefur lánað Ólaf Karl Finsen til FH og mun hann leika með Fimleikafélaginu út tímabilið.
Þrátt fyrir að Ísland sé nú komið á rauðan lista í Noregi er enn stefnt að því að Breiðablik mæti Rosenborg í Þrándheimi í forkeppni Evrópudeildarinnar í fótbolta.
Enski knattspyrnumaðurinn Michael Kedman er orðinn gjaldgengur með liði Fylkis í Pepsi Max-deildinni í fótbolta. Hann getur spilað með liðinu gegn ÍA á laugardaginn.
Spekingar Pepsi Max stúkunnar hafa ekki verið hrifnir af varnarleik Skagamanna í sumar og segja að þeir hafi verið full djarfir að nota tveggja metra regluna í sumar.