HM í fótbolta 2026

HM í fótbolta 2026

HM í fótbolta karla fer fram í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó dagana 11. júní til 19. júlí 2026.

Leikirnir




    Fréttamynd

    Yngstur til að byrja leik á HM í 24 ár

    Mexíkóska ungstirnið Gilberto Mora varð í nótt yngsti leikmaður til að byrja inn á í leik á heimsmeistaramóti í 24 ár. Hann lét til sín taka og átti þátt í marki í leiknum gegn Tékkum.

    Fótbolti
    Fréttamynd

    Sakar þekktan Ís­lending um kynþátta­hatur á HM

    Enska YouTu­be-stjarnan Morgan Sam Lee Burtwist­le, betur þekktur sem An­gry Gin­ge, sakar ís­lenska áhrifa­valdinn og fyrr­verandi fót­bolta­manninn Sigurð Gísla Bond Snorra­son um kynþátta­hatur á leik Eng­lands og Gana á HM í fót­bolta í Boston fyrr í vikunni.

    Fótbolti
    Fréttamynd

    Af hverju mega sumir tala bak við lófa á HM en aðrir ekki?

    Paragvæmaðurinn Miguel Almiron varð sá fyrsti til að vera rekinn af velli á heimsmeistaramótinu fyrir að tala við mótherja á meðan hann heldur fyrir muninn. Hann er líka sá eini sem hefur fengið rautt fyrir þetta þrátt fyrir að aðrir hafi gerst sekir um að tala bak við lófa.

    Fótbolti
    Fréttamynd

    „Ég held að við séum á heim­leið“

    Steve Clarke, landsliðsþjálfari Skotlands, óttast að lið hans sé á heimleið eftir 3-0 tap gegn Brasilíu í gær en úrslitin þýða að möguleikar þeirra á að komast í útsláttarkeppni heimsmeistaramótsins eru í lausu lofti.

    Fótbolti
    Fréttamynd

    Maður dagsins á HM: „Ég er mættur aftur“

    Cristiano Ronaldo skráði sig á spjöld sögunnar í gær þegar hann varð fyrsti leikmaðurinn til að skora á sex mismunandi heimsmeistaramótum, en hann skoraði þá tvö mörk í 5-0 sigri Portúgals á Úsbekistan.

    Fótbolti
    Fréttamynd

    Ronaldo í sögu­bækurnar í stór­sigri Portúgals

    Eftir vonbrigðin gegn Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó sýndu Cristiano Ronaldo og félagar hans í portúgalska landsliðinu styrk sinn þegar þeir rúlluðu yfir Úsbekistan, 5-0, í K-riðli heimsmeistaramótsins. Ronaldo skoraði tvívegis og hefur því skorað á sex heimsmeistaramótum á ferlinum.

    Fótbolti
    Fréttamynd

    Neitar að róa með Norð­mönnum

    Norskur stuðningsmaður vildi ekki taka þátt í róðri norskra stuðningsmanna í leik Noregs gegn Senegal í gær. Honum fannst fagnið of líkt víkingaklappi Íslendinga.

    Fótbolti
    Fréttamynd

    Hörð bar­átta um Gullskóinn

    Mikil spenna ríkir um hver á heimsmeistaramótinu verður markahæsti leikmaður mótsins. Sjaldan hefur verið skorað svona mikið af mörkum svona snemma á mótinu.

    Fótbolti