Yamal yngsti leikmaður Barcelona í sögunni Lamine Yamal varð í gær yngsti leikmaður Barcelona í sögunni þegar hann kom inn af varamannabekknum í 4-0 sigri liðsins gegn Real Betis. Yamal er aðeins 15 ára og 290 daga gamall. Fótbolti 30. apríl 2023 07:01
Birkir: Frábær tilfinning að sjá boltann í netinu Birkir Heimisson var hetja Vals þegar liðið vann dramatískan 3-2 sigur á móti Stjörnunni í fjórðu umferð Bestu deildar karla í fótbolta í kvöld. Fótbolti 29. apríl 2023 22:50
Umfjöllun og viðtöl: Keflavík-ÍBV 1-3 | Eyjamenn unnu fyrsta útisigurinn Keflavík og ÍBV mættust í fjórðu umferð Bestu deildar karla á heimavelli Keflvíkinga á gervigrasvellinum við Nettó-höllina. Eftir markalausan fyrri hálfleik komust Keflvíkingar yfir 1-0 en Eyjamenn voru fljótir að svara fyrir sig og komust í 1-3 sem urðu lokatölur leiksins. ÍBV vann sinn annan sigur í röð í deildinni og lyfti sér upp í sjötta sæti með sex stig. Keflvíkingar sitja hins vegar enn í áttunda sæti með fjögur stig. Íslenski boltinn 29. apríl 2023 21:29
Börsungar nýttu liðsmuninn og eru átta stigum frá titlinum Barcelona vann öruggan 4-0 sigur er liðið tók á móti Real Betis í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Fótbolti 29. apríl 2023 21:07
Umfjöllun og viðtöl: Valur 3 – 2 Stjarnan | Dramatískt sigurmark í uppbótartíma Valur vann Stjörnuna 3-2, þegar liðin mættust í lokaleik 4. umferðar Bestu deildar karla í knattspyrnu. Liðin mættust á Origo-vellinum og var það sigurmark Birkis Heimissonar á 97. mínútu sem skildi liðin að. Íslenski boltinn 29. apríl 2023 21:02
„Við stækkuðum um helming“ Hermann Hreiðarsson, þjálfari ÍBV í Bestu deild karla í knattspyrnu, lét vel í sér heyra á hliðarlínunni þegar hans lið heimsótti Keflavík í fjórðu umferð deildarinnar. Eyjamenn unnu 1-3 sigur eftir að hafa lent undir og Hermann fór ekki leynt með ánægju sína að leik loknum þegar hann ræddi við fréttamann Vísis. Fótbolti 29. apríl 2023 20:09
„Ég er eiginlega farinn að elska varnarleikinn meira en sóknarleikinn“ Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkinga, var stoltur af sínum mönnum eftir baráttusigur á móti KA í Víkinni í kvöld. Fótbolti 29. apríl 2023 19:47
Umfjöllun og viðtöl: Víkingur – KA 1-0 | Fullkomin byrjun Víkinga heldur áfram Víkingur sigraði KA í baráttuleik í Víkinni í fjórðu umferð Bestu deildar karla. Leikurinn endaði 1-0 þar sem færeyski landsliðsmaðurinn, Gunnar Vatnhamar, reyndist hetja heimamanna með marki á 88. mínútu leiksins. Íslenski boltinn 29. apríl 2023 19:00
Benzema með þrennu og Madrídingar halda í veika titilvon Real Madrid vann mikilvægan sigur er liðið tók á móti Almeria í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Lokatölur 4-2 og Madrídingar halda enn í veika von um spænska meistaratitilinn. Fótbolti 29. apríl 2023 18:30
Kjartan Henry: Nánast draumi líkast Kjartan Henry Finnbogason, leikmaður FH, var að vonum ánægður eftir 3-0 sigur liðsins á KR í dag þar sem hann skoraði tvö mörk. Fótbolti 29. apríl 2023 17:01
Umfjöllun og viðtöl: FH - KR 3-0 | Ósigrandi á Miðvellinum FH valtaði fyrir KR á gulum Miðvellinum í 4. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu. Kjartan Henry Finnbogason reyndist sínum gömlu félögum en skoraði tvö mörk. Það fyrra einkar glæsileg bakfallsspyrna og það síðara einföld afgreiðsla af stuttu færi. Fótbolti 29. apríl 2023 17:01
Umfjöllun og viðtöl: HK – Fylkir 1-0 | Örvar getur ekki hætt að skora HK vann Fylki í Kórnum 1-0. Allt benti til þess að leikurinn myndi enda með markalausu jafntefli.Örvar Eggertsson skoraði sigurmarkið á 84. mínútu þegar hann fylgdi eftir skot sem Ólafur Kristófer varði. Íslenski boltinn 29. apríl 2023 16:30
Brighton skoraði sex | Brentford kom til baka gegn Forest Öllum leikjum dagsins í ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu er nú lokið. Brighton & Hove Albion vann 6-0 stórsigur á Úlfunum á meðan Brentford vann dramatískan 2-1 sigur á Nottingham Forest Enski boltinn 29. apríl 2023 16:05
Er þetta stoðsending ársins? Jacob Murphy skoraði eitt af fjórum mörkum Newcastle United í 4-1 sigri á Everton í ensku úrvalsdeildinni. Það var hins stoðsendingin sem stal fyrirsögnunum en Alexander Isak lék þá á hvern leikmann Everton á fætur öðrum. Enski boltinn 29. apríl 2023 14:46
Markasúpa í fyrsta leik dagsins Crystal Palace vann West Ham United í stórskemmtilegum leik í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Lokatölur 4-3 og Palace svo gott sem búið að bjarga sér frá falli. Enski boltinn 29. apríl 2023 13:47
Bandaríkjamenn varaðir við fagnaðarlátunum í Napólí Bandaríska sendiráðið í Napólí á Ítalíu hefur varað Bandaríkjamenn í borginni og nærumhverfi við mögulegum fagnaðarlátum þegar Napólí tryggir sér ítalska meistaratitilinn í knattspyrnu. Fótbolti 29. apríl 2023 13:00
Skoruðu sigurmarkið í hinum margfræga „Fergie-tíma“ Kvennalið Manchester United heldur svo sannarlega í gömlu góðu gildin sem gerðu karlalið félagsins jafn sigursælt og raun bar vitni. Liðið tvívegis undir gegn Aston Villa á útivelli en tókst á einhvern undraverðan hátt að snúa dæminu sér í vil og tryggja sér dramatískan 3-2 sigur með marki í uppbótartíma. Enski boltinn 29. apríl 2023 12:31
„Segir ekki bara að hann sé að gefa tækifæri heldur einnig til um gæði leikmannsins“ „Það sem við gagnrýndum Pétur mikið fyrir í fyrra var að gefa ekki þessum ungu leikmönnum nægilega mörg tækifæri,“ sagði Harpa Þorsteinsdóttir í síðasta þætti Bestu markanna um Íslandsmeistaralið Vals og þjálfara þess Pétur Pétursson. Íslenski boltinn 29. apríl 2023 12:00
Stefnir í að Man United verði dýrasta íþróttafélag heims Allt bendir til þess að heimsmet verði sett þegar Glazer-fjölskyldan loks selur Manchester United. Enski boltinn 29. apríl 2023 11:00
Sigurmark Klæmints, þrennan hjá Stefáni Inga og öll hin mörkin Íslandsmeistaralið Breiðabliks vann Fram í hreint út sagt ótrúlegum leik í Bestu deild karla á föstudagskvöld. Mörkin úr 5-4 sigri Blika má sjá hér að neðan. Íslenski boltinn 29. apríl 2023 10:31
Sögulegur leikur í Njarðvík Kvennalið Njarðvíkur mætir Grindavík í Mjólkurbikar kvenna í knattspyrnu á gervigrasinu fyrir utan Nettóhöllina í dag, laugardag. Um er að ræða sögulegan leik þar sem þetta er fyrsti meistaraflokksleikur Njarðvíkurliðsins. Íslenski boltinn 29. apríl 2023 10:00
Stefán Ingi: Ef þú ert hlutlaus þá var þetta geggjaður leikur Stefán Ingi Sigurðarson, leikmaður Breiðabliks, fór á kostum í leik liðsins gegn Fram í kvöld en hann skoraði þrjú mörk og var maður leiksins. Fótbolti 28. apríl 2023 23:18
Segja ákvörðun KSÍ íslenskri knattspyrnu ekki til heilla Stjórn knattspyrnudeildar FH sendi frá sér yfirlýsingu í dag þar sem félagið gagnrýnir vinnubrögð Knattspyrnusambands Íslands í kjölfar þess að KSÍ varð ekki við ósk félagsins um að fresta leik FH og KR sem átti að fara fram á Kaplakrikavelli í kvöld. Fótbolti 28. apríl 2023 21:35
Ronaldo skoraði er Al-Nassr komst aftur á sigurbraut Eftir tþrjá leiki í röð án sigurs vann Al-Nassr öruggan 4-0 sigur gegn Al-Raed í sádí-arabísku deildinni í knattspyrnu í kvöld. Fótbolti 28. apríl 2023 20:29
Kristian tryggði Ajax sigur í Íslendingaslag Kristian Nökkvi Hlynsson skoraði eina mark leiksins er Jong Ajax vann 1-0 útisigur gegn Kristóferi Inga Kristinssyni og félögum hans í Venlo í hollensku B-deildinni í fótbolta í kvöld. Fótbolti 28. apríl 2023 19:57
Vann serbneska titilinn á mettíma en óvíst að hann haldi áfram með liðið Hinn serbneski og íslenski Miloš Milojević stýrði Rauðu Stjörnunni til serbneska meistaratitilsins í fótbolta á mettíma á dögunum. Það er þó óvíst að hann stýri liðinu á næstu leiktíð. Fótbolti 28. apríl 2023 19:31
Aron hetja Horsens í Íslendingaslag Aron Sigurðarson skoraði jöfnunarmark Horsens er liðið gerði 2-2 jafntefli gegn Aroni Elísi Þrándarsyni og félögum hans í OB í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Fótbolti 28. apríl 2023 18:56
Vítaklúður Hlínar kom ekki að sök | Diljá kom inn á í tapi Íslendingalið Kristianstad, undir stjórn Elísabetar Gunnarsdóttur, vann góðan 1-0 sigur er liðið tók á móti Linköping í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Á sama tíma máttu Diljá Ýr Zomers og stöllur í Norrköping þola 1-0 tap gegn Häcken. Fótbolti 28. apríl 2023 17:59
Lúðvík hættir eftir sautján ár í sömu nefnd hjá UEFA Ísland missir mann úr nefnd hjá Knattspyrnusambandi Evrópu á þessu ári. Fótbolti 28. apríl 2023 16:46
Næstum því helmingur umboðsmannanna féll á nýja FIFA prófinu Alþjóða knattspyrnusambandið er að herða kröfurnar á umboðsmenn fótboltans og það lítur út fyrir að nýja umboðsmannaprófið hafi sýnt að allt of margir þeirra séu ekki starfi sínu vaxnir. Fótbolti 28. apríl 2023 12:30